Fréttablaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 30
Stjórnsýsla póstmála hefur nú flust til Byggðastofnunar, skv. lögum um póstþjónustu. Byggðastofnun leitar að tveimur sérfræðingum með góða samskipta- og skipulagshæfileika sem eru tilbúnir að takast á við krefjandi og áhugaverð verkefni á nýju verkefnasviði stofnunarinnar, auk þess að vinna að þeim fjölbreyttu þáttum byggðamála sem sinnt er af stofnuninni. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Starfshlutfall beggja starfa er 100%. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Tvö störf á lögfræði- og fyrirtækjasviði Byggðastofnunar Byggðastofnun | Sauðármýri 2 | 550 Sauðárkrókur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . Lögfræðingur Starfið er á lögfræðisviði Byggðastofnunar. Helstu verkefni og ábyrgð lögfræðings eru umsjón með og afgreiðsla stjórnsýsluverkefna auk eftirlits á sviði póstmála samkvæmt lögum um póstþjónustu og umsjón með gerð álita og úrskurða á málefna- sviðinu. Möguleiki er á þátttöku í erlendu samstarfi. Athygli er vakin á því að í samræmi við byggðastefnu stjórnvalda er starfið auglýst án staðsetningar, en skal þó unnið á starfssvæði Byggðastofnunar, utan höfuðborgarsvæðisins. Hæfniskröfur • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði • Mjög góð þekking á stjórnsýslurétti • Þekking á evrópurétti er kostur • Gott vald á íslensku í ræðu og riti • Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt og í hópi • Drifkraftur, metnaður og skipulagshæfileikar Sérfræðingur í greiningu fjárhagsupplýsinga Starfið er á fyrirtækjasviði Byggðastofnunar. Helstu verkefni sérfræðings eru markaðsgreiningar og greiningar fjárhagsupplýsinga fyrirtækja á markaði fyrir póstþjónustu, umsjón með flutningsjöfnunar- styrkjum skv. lögum nr. 160/2011 um svæðisbundna flutningsjöfnun, eftir atvikum greining lánsbeiðna á fyrirtækjasviði og samskipti við viðskiptavini. Staðsetning starfsins er á skrifstofu Byggðastofnunar á Sauðárkróki. Hæfniskröfur • Menntun á sviði hagfræði, viðskiptafræði eða sambærileg háskólamenntun sem nýtist í starfi • Hæfni í og reynsla af greiningu fjárhagsupplýsinga • Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur • Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt og í hópi • Drifkraftur, metnaður og skipulagshæfileikar Umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Senda á umsókn til Byggðastofnunar, Sauðármýri 2, 550 Sauðárkróki eða á netfangið postur@byggdastofnun.is. Frekari upplýsingar um störfin veita Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri, Hjalti Árnason, forstöðumaður lögfræðisviðs og Arnar Már Elíasson, staðgengill forstjóra. Umsóknarfrestur er til og með 26. júlí 2021. Fyrirtæki ársins 2021 RÁÐNINGAR Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu, getu og reynslu starfsmanna. Hver einstök ráðning er mikilvæg fjárfesting og er hagur bæði fyrirtækis og viðkomandi einstaklings að vel takist til.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.