Fréttablaðið - 03.07.2021, Qupperneq 30
Stjórnsýsla póstmála hefur nú flust til Byggðastofnunar, skv. lögum um póstþjónustu.
Byggðastofnun leitar að tveimur sérfræðingum með góða samskipta- og skipulagshæfileika sem
eru tilbúnir að takast á við krefjandi og áhugaverð verkefni á nýju verkefnasviði stofnunarinnar,
auk þess að vinna að þeim fjölbreyttu þáttum byggðamála sem sinnt er af stofnuninni.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Starfshlutfall beggja starfa er 100%.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja.
Tvö störf á lögfræði- og
fyrirtækjasviði Byggðastofnunar
Byggðastofnun | Sauðármýri 2 | 550 Sauðárkrókur
. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
Lögfræðingur
Starfið er á lögfræðisviði Byggðastofnunar.
Helstu verkefni og ábyrgð lögfræðings eru umsjón
með og afgreiðsla stjórnsýsluverkefna auk eftirlits á
sviði póstmála samkvæmt lögum um póstþjónustu
og umsjón með gerð álita og úrskurða á málefna-
sviðinu. Möguleiki er á þátttöku í erlendu samstarfi.
Athygli er vakin á því að í samræmi við byggðastefnu
stjórnvalda er starfið auglýst án staðsetningar, en
skal þó unnið á starfssvæði Byggðastofnunar, utan
höfuðborgarsvæðisins.
Hæfniskröfur
• Embættis- eða meistarapróf í lögfræði
• Mjög góð þekking á stjórnsýslurétti
• Þekking á evrópurétti er kostur
• Gott vald á íslensku í ræðu og riti
• Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
og í hópi
• Drifkraftur, metnaður og skipulagshæfileikar
Sérfræðingur í greiningu
fjárhagsupplýsinga
Starfið er á fyrirtækjasviði Byggðastofnunar.
Helstu verkefni sérfræðings eru markaðsgreiningar
og greiningar fjárhagsupplýsinga fyrirtækja á markaði
fyrir póstþjónustu, umsjón með flutningsjöfnunar-
styrkjum skv. lögum nr. 160/2011 um svæðisbundna
flutningsjöfnun, eftir atvikum greining lánsbeiðna á
fyrirtækjasviði og samskipti við viðskiptavini.
Staðsetning starfsins er á skrifstofu
Byggðastofnunar á Sauðárkróki.
Hæfniskröfur
• Menntun á sviði hagfræði, viðskiptafræði eða
sambærileg háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Hæfni í og reynsla af greiningu fjárhagsupplýsinga
• Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
• Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
og í hópi
• Drifkraftur, metnaður og skipulagshæfileikar
Umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi
í starfið. Senda á umsókn til Byggðastofnunar,
Sauðármýri 2, 550 Sauðárkróki eða á netfangið
postur@byggdastofnun.is.
Frekari upplýsingar um störfin veita
Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri,
Hjalti Árnason, forstöðumaður lögfræðisviðs
og Arnar Már Elíasson, staðgengill forstjóra.
Umsóknarfrestur er til og með 26. júlí 2021.
Fyrirtæki
ársins
2021
RÁÐNINGAR
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu, getu og reynslu
starfsmanna. Hver einstök ráðning er mikilvæg fjárfesting
og er hagur bæði fyrirtækis og viðkomandi einstaklings
að vel takist til.