Fréttablaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 21
Alexandra og Gylfi með Melrós Míu á skírnardaginn hennar sem fagnað var með vinum og fjölskyldu. Mynd/Aðsend
Ástfangin við Como vatn á Ítalíu. MYND/LUCAS&CO
Alexandra og
Gylfi gerðu hlé á
ferlinu í kringum
tilraunir til barn-
eigna á meðan
á brúðkaups-
undirbúningi
stóð enda
höfðu von-
brigðin tekið á.
MYND/LUCA&CO
um barneignir þegar þú þráir ekk-
ert heitar en að eignast barn og
hefur reynt allt til að uppfylla þann
draum,“ segir hún einlæg.
Viss um að hún yrði mamma
En þrátt fyrir mótlætið kom uppgjöf
aldrei upp í hugann. „Ég hef alltaf
verið viss um að ég yrði mamma
einn daginn, en ég vissi ekki hvaða
veg ég yrði að ganga til þess að það
yrði að veruleika.“
Aðspurð segir Alexandra góðan
stuðning frá maka öllu skipta í
slíku ferli og mikilvægt sé að hlúa
vel hvort að öðru. „Ég kynntist
yndislegu fagfólki á þessum tíma
sem hjálpaði mér í gegnum erfið-
ustu tímabilin og aðstoðaði mig
við að byggja mig upp aftur. Mér
fannst líka gott að hlusta á hlað-
varpsþætti tengda málefninu, þar
sem fólk sagði frá sinni upplifun og
sjá umræðu í fjölmiðlum frá fólki í
svipaðri stöðu.“
Erfitt að þjást í þögn
Hún segir umræðu um ófrjósemi
mikilvæga enda þjáist margir í þögn
eins og hún sjálf gerði í upphafi.
„Það er alltaf gott þegar fólk opnar á
umræðuna og fær stuðning utan frá.
Það er mjög erfitt að fara í gegnum
svona erfitt verkefni í þögninni því
þetta tekur gífurlega á andlega.“
Eftir að Alexandra sagði frá erfið-
leikum þeirra hjóna á Instagram,
segir hún fólk hafa haft beint sam-
band og þakkað henni fyrir að opna
á umræðuna og það hafi henni þótt
vænt um.
„Ástæðan fyrir því að mig langaði
að tala um þetta opinberlega var til
þess að vonandi veita einhverjum
í þessari stöðu von og styrk til að
halda áfram sinni vegferð. Það er
svo mikilvægt að missa ekki trúna.“
Þorði ekki að trúa prófinu
Eins og fyrr segir komst Alexandra
að því í lok ágúst á síðasta ári að hún
væri, öllum að óvörum, ófrísk.
„Það var ótrúlega skrítið að sjá
óvænt jákvætt ólettupróf í fyrsta
skipti eftir öll þessi ár. Ég þorði ekki
að trúa þessu fyrr en ég fékk þetta
staðfest í blóðprufu. Maður heyrir
oft svona sögur þar sem fólk er
búið að reyna lengi og svo gengur
það upp náttúrulega að lokum, en
maður heldur aldrei að það muni
gerast fyrir mann sjálfan.“
Meðgangan gekk vel þó Alex-
andra hafi fundið fyrir ógleði alveg
fram á síðasta dag, sem hún viður-
kennir að hafi verið strembið. „En
annars var ég hraust og allt annað
gekk vel, sem ég var mjög þakklát
fyrir.“
Sannkölluð forréttindi
Melrós Mía kom í heiminn í Bret-
landi þann 5.maí síðastliðinn og
segir Alexandra fæðinguna hafa
gengið eins og í sögu.
„Við vorum ótrúlega heppin með
fyrsta barn hvað allt gekk vel. Ég átti
hana í svokölluðu „birth centre,” eða
fæðingarheimili, þar sem áhersla er
lögð á að allt sé sem náttúrulegast
og sem minnst inngrip notuð. Ljós-
mæðurnar sem voru með okkur
voru yndislegar,“ segir hún. „Það
kom mér á óvart hversu magn-
aður líkaminn er og ég öðlaðist enn
meiri virðingu fyrir honum að hafa
afrekað þetta. Bæði að búa til full-
komna barnið okkar og koma því
í heiminn. Svo finnst mér magnað
að hann geti líka framleitt næringu
fyrir barnið eftir að það kemur í
heiminn, þetta er svo stórkostlegt
ferli og sannkölluð forréttindi að fá
að upplifa það á þennan hátt,“ segir
Alexandra einlæg.
Ástfangin upp fyrir haus
Dóttirin er nú rúmlega tveggja
mánaða og segir nýbökuð móðirin
fjölskylduna aðlagast hvert öðru vel.
„Hún hefur verið mjög vær og góð
og við foreldrarnir erum ástfangin
upp fyrir haus af henni. Fyrstu tvær
vikurnar eftir fæðingu eru vissu-
lega smá sjokk þar sem líkaminn
þarf að jafna sig eftir fæðinguna og
hormónarnir eru á fullu ásamt því
að vera í nýju hlutverki,“ segir hún.
Móðir Alexöndru var fyrstu vik-
urnar hjá fjölskyldunni í Englandi
og segir Alexandra það hafa verið
ómetanlegt enda miklar annir hjá
eiginmanninum í fótboltanum á
þeim tíma.
„Hann fær ekkert frí í fótbolt-
anum í kringum fæðinguna svo það
var gott að hafa stuðning frá henni
heima þegar hann fór í útileiki og á
æfingar.“
Aðspurð segist Alexandra horfa
til beggja foreldra sinna sem fyrir-
mynda í uppeldinu.
„Báðir foreldrar mínir voru allt-
af miklir vinir mínir og við erum
mjög náin. Það er eitthvað sem mig
langar að taka með mér áfram sem
foreldri. Mér finnst mikilvægt að
barnið upplifi traust og stuðning
og geti leitað til manns í öllum þeim
aðstæðum sem það lendir í í lífinu.“
Fjölskyldan hefur dvalið hér á
landi í sumar og nýttu nýbökuðu
foreldrarnir tækifærið til að láta
skíra dótturina á heimili þeirra hér
á landi að viðstöddum fjölskyldu og
vinum. Dóttirin fékk nafnið Melrós
Mía en Alexandra segir það í raun
vera „út í loftið.“
„Ég hafði séð nafnið Melrós áður
en ég varð ólétt og heillaðist alveg af
því. Við vorum svo bæði mjög hrifin
af Míu nafninu og fannst nöfnin
passa einstaklega vel saman.“
Hún segir þau hafa vitað snemma
á meðgöngunni að von væri á stelpu
og þá strax farið að kalla hana nöfn-
unum.
„Þau festust í raun þar með og svo
þegar hún fæddist fannst okkur þau
fara henni mjög vel,“ segir nýbakaða
móðirin að lokum, yfir sig heilluð af
fögrum frumburðinum sem beðið
hafði verið eftir. n
Mér fannst það ákveð-
inn léttir þegar við
sögðum fólkinu í
kringum okkur frá
stöðunni. Það er erfitt
að vera stanslaust að fá
spurningar um barn-
eignir þegar þú þráir
ekkert heitar en að
eignast barn og hefur
reynt allt til að upp-
fylla þann draum.
„Það kom mér á óvart
hversu magnaður
líkaminn er og ég
öðlaðist enn meiri
virðingu fyrir honum
að hafa afrekað þetta.
Bæði að búa til full-
komna barnið okkar
og koma því í heim-
inn."
Sannarlega glæsileg verðandi móðir. MYND/SAGA SIG
Hjónin á brúð-
kaupsdaginn
með hundinn
sinn, Koby.
MYND/LUCAS&CO
Helgin 21LAUGARDAGUR 3. júlí 2021 FRÉTTABLAÐIÐ