Fréttablaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 18
Það er mikið í gangi
þarna sem maður sér
ekki annars staðar. Þau
eru svo opin fyrir
óbeislaðri sköpunar-
gleði og að fram-
kvæma hinu ótrúleg-
ustu hluti.
Hafdís Bjarnadóttir.
Listahátíðin Reykjavík Fringe
hefst í dag og stendur yfir til
11. júlí. Fréttablaðið hafði
uppi á nokkrum jaðarsettum
listamönnum sem koma fram
á hátíðinni og tók á þeim
púlsinn.
Tilvistarkreppa og töfrakakó
„Ég hef mætt á þessa hátíð oft áður
og mér hefur alltaf þótt þetta verið
frábær viðbót í menningarlífið á
íslandi,“ segir kvikmyndagerða
konan og grínistinn Lovísa Lára,
sem verður með tvö uppistandssett
á Reykjavík Fringe.
Í sýningunni Lovísa Battlefield
tekur Lovísa á mjög erfiðu ári í lífi
sínu og segir frá því hvernig hún
hefur reynt að finna húmorinn í
því. Ég missti mömmu mína 2011
og pabbi minn fór í janúar 2020.
Þannig að árið fór í að reyna að
heila mig andlega og aðlagast því
að verða fullorðinn munaðarleys
ingi. Ég prufaði kristalla, töfrakakó
ayahuasca og í raun allt annað en
faglega aðstoð, sem að hafði með
sér í för mikið af sprenghlægileg
um atvikum. Sýninguna Identity
Crisis vinnur hún í samstarfi við
uppistandarana Dan Nava og Regn
Sólmundi þar sem þau taka meðal
annars á geðheilsu, kynhneigð,
innflytjendum og tilvistarkreppu.
„Við hittumst fyrir nokkrum
árum síðan þar sem við vorum að
koma vikulega fram á Gauknum á
uppistandskvöldum, sem miðuð
voru að konum og queer fólki,“
segir Lovísa. „Við tókum eftir því
þegar við vorum að vinna í sett
unum okkar að það væru ýmis
svipuð þemu hjá okkur, einna helst
þessi tilvistarkreppa – að átta sig
ekki alveg á því hver maður er. Við
ákváðum þess vegna að vinna þetta
saman.“
Uppistandssenan á Íslandi hefur
verið að ranka við sér eftir farald
urinn og Lovísa segist spennt fyrir
þeim sýningum sem boðið verður
upp á á Reykjavík Fringe. „Maður
inn minn verður með sett sem
heitir Awkwardly confident, svo
ég er auðvitað spennt að sjá hann,“
segir hún. „Þar fyrir utan langar
mig líka að sjá What Would Kimi
Do?, Making Peace, Lolly’s book og
sýninguna hjá Söru Rut í Tjarnar
bíói.“
Troðið upp fyrir kindur
„Við vorum að vinna saman í Fær
eyjum fyrir nokkrum árum þegar
hugmyndin kom upp,“ segir tón
listarkonan Hafdís Bjarnadóttir,
sem mun ásamt dúóinu Passe
partout Duo troða upp á tónleik
um fyrir kindur á Árbæjarsafni. „Í
Færeyjum eru kindur bókstaflega
alls staðar og finnast jafnvel í bak
görðum hjá fólki. Rétt eins og á
Íslandi eru þar f leiri kindur en fólk
og okkur datt í hug að setja upp
tónleika miðaða að þeim.“
Passepartout Duo samanstendur
af Bandaríkjamanninum Christop
her Salvito og hinni ítölsku Nico
letta Favari. „Þau spila á alls konar
hljóðfæri og það er ansi magnað
að þau ferðast með allt í handfar
angri,“ segir Hafdís. „Lítið batterí,
en ansi öflugt.
Aðspurð um hvers konar tónlist
kindur sæki í segir Hafdís að þær
forðist óþægileg og skyndileg hljóð.
„Þær elska hljóðið í graskögglum í
fötum, sem hefur kannski eitt
hvað að segja með að þær vilji éta
þá,“ segir hún hlæjandi. „Þær elska
mjúk og mild hljóð og að ná teng
ingu við f lytjendurna.“
Hafdís hefur ekki komið fram
á hátíðinni áður en segist spennt
að taka þátt. „Það er mikið í gangi
þarna sem maður sér ekki annars
staðar,“ segir hún. „Þau eru svo opin
fyrir óbeislaðri sköpunargleði og að
framkvæma hina ótrúlegustu hluti.“
Að lokum vekur Hafdís athygli á
því að þríeykið mun halda í kinda
tónleikaferðalag út á land í sumar,
Jaðrinum fagnað
Almar Blær Sigurjónsson er hluti af leikhópnum Kex sem flytur einleikinn
Nokkur orð um mig í Tjarnarbíói. Djúpar pælingar tæklaðar af glettni.
Hafdís Bjarnadóttir og Passepartout dúóið verða með tónleika fyrir kindur á Árbæjarsafninu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Lovísa Lára vonast til að uppistandssenan á Íslandi fari að ranka við sér, en
hún skemmtir áhorfendum í tveimur settum á hátíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Arnar Tómas
Valgeirsson
arnartomas
@frettabladid.is
þar sem hún hvetur áhugasama til
að smalast saman.
Pælingar hvíts karlmanns
„Þetta var upphaflega skólaverkefni
sem tók síðan á sig stærri mynd,“
segir Almar Blær Sigurjónsson,
sem hluti af leikhópnum Kex, mun
f lytja einleikinn Nokkur orð um
mig í Tjarnarbíói. Leikhópurinn er
einnig þekktur sem AABA og dregur
nafn sitt á upphafsstöfum meðlima
hópsins.
„Þetta fjallar í grófum dráttum
um ungan, hvítan karlmann sem
deilir sinni sögu með áhorfendum
og veltir fyrir sér tilvistarlegum
spurningum og því hvernig hann
hefur lifað lífinu í þessu samfélagi
sem er svona hratt og mikil krafa
um framleiðni,“ segir Almar. „Síðan
koma dýpri spurningar þarna inn í
eins og ábyrgð og ábyrgðarleysi og
annað slíkt.“
Almar segir þó að verkið sé ekki
of þungt. „Þetta er mjög fyndið, eða
mér finnst það allavega! Mikið af
textanum varð til í spuna úti á gólfi
svo hann er mjög lífrænn og oft á
tíðum mjög skemmtilegur.“
Almar segir að leikhópurinn sé
bæði glaður og þakklátur að hafa
komist inn á hátíðina. „Við fengum
líka inn á Fringe hátíðina í Finn
landi,“ segir hann. „Þetta opnar
strax heiminn fyrir okkur. Þarna
eru listamenn alls staðar að og von
andi áhorfendur líka. Það er ótrú
lega spennandi.“ n
Hvað er Fringe?
Fringe-hátíðin er haldin árlega víða um heim og
á rætur sínar að rekja til Edinborgarhátíðarinnar
1947. Þar mættu átta leikfélög óboðin til að
koma fram, en þar sem allir helstu staðir borgar-
innar voru bókaðir fyrir opinberu hátíðina, voru
viðburðir þessarar jaðarhátíðar settir upp á
smærri stöðum.
Þetta er í fjórða skipti sem hátíðin er haldin
hér á landi og hefur hún vaxið hér á landi eins
og annars staðar í heiminum. Í ár verða 70 atriði
á hátíðinni, 55 íslensk og 15 erlend. Þar kennir
margra grasa og verður meðal annars boðið
upp á kabarett, hjólaskautadiskó, veggjalist
og margt fleira. Dagskrána í heild má finna á
rvkfringe.is
18 Helgin 3. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
3. júlí 2021 LAUGARDAGURHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ