Fréttablaðið - 03.07.2021, Qupperneq 17
kristinnpall@frettabladid.is
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Það verður
ekkert úr því að að Sha'Carri
Richardson, spretthlaupari frá
Bandaríkjunum, fái að keppa á
Ólympíuleikunum í Tókýó. Richard
son var í gær dæmd í eins mánaðar
bann eftir að kannabis fannst í lyfja
prófi hjá henni eftir úrtökumót
Bandaríkjanna fyrir Ólympíuleik
anna. Richardson kom fyrst í mark
í úrtökumótinu á 10,86 sekúndum
en þau úrslit voru dæmd ógild.
Árangur Richardson í úrtöku
mótinu gerði það að verkum að
vonir stóðu til þess hún gæti orðið
fyrst bandarískra kvenna til að
vinna til gullverðlauna í hundrað
metra spretthlaupi í 25 ár. Á síðustu
Ólympíuleikum hefur sigurvegar
inn yfirleitt verið að hlaupa á um
10,7 sekúndum. Besti tími Richard
son á þessu ári 10,72 sekúndur.
Samkvæmt reglum Alþjóðalyfja
eftirlitsins getur fall á lyfjaprófi
vegna kannabisefna orðið að eins
mánaðar til fjögurra ára banni. Á
sama tíma er kannabis löglegt í átján
fylkjum Bandaríkjanna og stærstu
deildirnar Vestanhafs hafa verið
að slaka á reglum þegar kemur að
kannabisefnum í lyfjaeftirliti.
„Kannabis er enn þá á svo
lítið gráu svæði, því það hefur
verið álitamál lengi hvort það falli
jafn vel undir sömu skilgreiningu
og viðmið og mörg önnur bönnuð
efni. Þetta hefur þokast í þá átt að
refsiramminn fyrir brot hefur verið
að minnka í ljósi þess að þetta er
ekki hormónalyf sem hefur lang
tímaáhrif á árangur og er komið í
almenna sölu víða. Einnig er alltaf
hætta á að íþróttafólk geti með því
mælst jákvætt í lyfjaprófi, þrátt fyrir
að ásetningurinn um brot hafi verið
lítill eða enginn, “ segir Birgir Sverr
isson, framkvæmdastjóri Lyfjaeftir
lits Íslands, aðspurður út í málið.
„Kannabis er enn á bannlista í
keppni í íþróttum ef umfram eitt
hvað ákveðið magn mælist, rétt eins
og koffín var um tíma á bannlista
ef umfram eitthvað ákveðið magn
mældist í sýni,“ segir Birgir. n
Sigurstranglegur spretthlaupari situr eftir vegna kannabissýnis í úrtökumóti Bandaríkjanna
Richardson sem er 21 árs gæti keppt
á Ólympíuleikunum í París árið 2024.
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Toni Kroos, miðjumaður
Real Madrid, tilkynnti í gær að 106.
landsleikur hans fyrir hönd Þýska
lands gegn Englandi á Evrópumót
inu í knattspyrnu hefði verið hans
síðasti fyrir þýska landsliðið. Hann
mun því ekki gefa kost á sér í fyrsta
landsliðsverkefni Þjóðverja undir
stjórn Hansi Flick síðar á þessu ári,
þegar Þjóðverjar koma í heimsókn í
Laugardalinn.
Kroos sem lék í ellefu ár með
þýska landsliðinu og fór á sjö stór
mót, er sjöundi leikjahæsti leik
maður þýska landsliðsins frá upp
hafi ásamt Thomas Müller. Hann
var í lykilhlutverki þegar Þjóðverjar
urðu heimsmeistarar árið 2014 og
var í kjölfarið tilnefndur sem einn
af bestu leikmönnum mótsins.
Í yfirlýsingunni sem Kroos sendi
frá sér gaf hann út að hann hefði
verið búinn að ákveða fyrir löngu
að EM 2020 yrði hans síðasta mót. n
Kroos kemur ekki
til Íslands í haust
Toni Kroos vissi eftir Englandsleik-
inn að landsliðsferlinum væri lokið.
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Valskonur fengu afar
erfiða andstæðinga í undankeppni
Meistaradeildar Evrópu, en til þess
að komast á næsta stig keppninnar
þarf Valur að hafa betur gegn þriðja
besta liði Þýskalands, Hoffenheim,
og AC Milan. Íslandsmeistarar
Breiðabliks fengu talsvert greiðari
leið og geta leyft sér að eygja sæti á
seinna stigi undankeppninnar.
Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland
er með tvö lið í undankeppninni
en henni er skipt í tvo hluta. Í fyrri
hlutanum er um fjögurra liða mót
að ræða þar sem eitt lið fer áfram á
næsta stig.
Valur mætir Hoffenheim, sem er
að hefja níunda tímabil sitt í röð í
efstu deild þýska boltans, en félagið
hefur undanfarin tvö ár lent í þriðja
sæti deildarinnar á eftir Bayern
München og Wolfsburg. Takist Val
að vinna þýska félagið verður næsta
viðureign gegn Zürich frá Sviss eða
AC Milan sem Guðný Árnadóttir
leikur með.
Breiðablik mætir færeyska liðinu
Klaksvík en takist Blikum að sigra
Færeyingana bíður þeirra einvígi
gegn Gintra frá Litháen eða Flora
Tallin frá Eistlandi. n
Erfið leið Vals í
Meistaradeildina
Nýr 9 kg þurrkari með íslensku stjórnborði. Sjálfhreinsandi
rakaþéttir. Rafeindastýrð rakaskynjun. Sérkerfi: Blandaður
þvottur, ull, útifatnaður, handklæði, tímastillt kerfi,
hraðkerfi 40 mín., undirfatnaður og skyrtur.
Gildir til og með 31. júlí 2021 eða á meðan birgðir endast.
Ný þvottavél og
nýr þurrkari frá
Siemens
Við leggjum áherslu á hágæða vörur
og fyrsta flokks þjónustu á góðu verði.
Þvottavél, iQ500
WU 14UTL9DN
Fullt verð: 149.900 kr.
Kynningarverð:
114.900 kr.
Ný 9 kg þvottavél með íslensku stjórnborði. 1400 sn./mín.
Kolalaus, hljóðlátur og sparneytinn mótor með 10 ára ábyrgð.
15 mín. hraðþvottakerfi. Við hönnun vélarinnar hefur verið
leitast við að gera hana mjög stöðuga og hljóðláta.
Þurrkari, iQ500
WT 45WTA8DN
Fullt verð: 149.900 kr.
Kynningarverð:
114.900 kr.
Tekur mest
9
Tekur mest
9
10 ára
ábyrgð á
iQdrive
mótornum.
hraðkerfi
40 mín.
hraðkerfi
15 mín.
Á kynningarverði í júlí:
LAUGARDAGUR 3. júlí 2021 Íþróttir 17FRÉTTABLAÐIÐ