Fréttablaðið - 03.07.2021, Síða 29

Fréttablaðið - 03.07.2021, Síða 29
Íslenskukennari 100% staða kennara í íslensku skólaárið 2021-2022 er laus til umsóknar. Kröfur til umsækjenda: Háskólapróf í íslensku ásamt kennsluréttindum í fram- haldsskóla. Leitað er að einstaklingi sem skorar hátt á sviði samskipta og kennslustækni og fellur vel að aðstæðum og þörfum skólans. Umsóknir ásamt ferilskrá, prófskírteinum og saka- vottorði berist Kvennaskólanum í Reykjavík í netfangið hjalti@kvenno.is fyrir 19. júlí. Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og fjármálaráðu- neytis. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar gefur undirritaður í netfanginu hjalti@kvenno.is. Upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans www.kvenno.is Skólameistari Lagna- og loftræsihönnuður NNE Verkfræðistofa leitar eftir góðu fagfólki til framtíðarstarfa á lagna- og loftræsisviði. Í boði er gott og fjölskylduvænt starfsumhverfi. Starfið felst í allri almennri lagna- og loftræsihönnun. Menntunar- og hæfniskröfur • Tækni- eða verkfræðimenntun • Gott vald á Revit og Autocad • Góð starfsreynsla er æskileg • Sjálfstæði í starfi • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum. • Góð kunnátta í íslensku og ensku Fyrirspurnir og umsóknir sendist á netfangið hoo@nne.is. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað. NNE Verkfræðistofa er lítið en öflugt fyrirtæki á sviði mannvirkjahönnunar. Fyrirtækið þjónustar fjölbreyttan hóp viðskiptavina og framundan eru spennandi verkefni. www.nne.is Leikskólastjóri Laufás Þingeyri Fullt starf Stjórnendur. Leikskólinn Laufás leitar að öflugum leikskólastjóra. Viðkomandi verður að geta hafið störf í ágúst. Sjá nánar á Job Kynningarfulltrúi BHM Bandalag háskólamanna (BHM) óskar eftir að ráða kynningarfulltrúa í krefjandi og fjölbreytt starf. Kynningarfulltrúi miðlar upplýsingum um starfsemi bandalagsins, stefnu og baráttumál til markhópa og stuðlar að því að bandalagið sé sýnilegt í opinberri umræðu. Hann annast einnig skipulag og framkvæmd viðburða á vegum bandalagsins, s.s. fundi og ráðstefnur. • Upplýsingamiðlun til ƒölmiðla um málefni BHM • Aðstoð við ƒölmiðlasamskipti formanns bandalagsins • Ábyrgð á framkvæmd kynningarstefnu BHM, þ.m.t. miðlun upplýsinga um starfsemi BHM til markhópa • Ábyrgð á ritstjórn og þróun vefs og samskiptasíðna BHM • Ritun frétta, greina og pistla • Ábyrgð á skipulagi og undirbúningi viðburða á vegum bandalagsins • Ábyrgð á gerð og dreifingu kynningarefnis og auglýsinga • Þátttaka í innra starfi BHM og samskiptum við innlenda og erlenda samstarfsaðila • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Reynsla af störfum við ƒölmiðlun, almannatengsl eða kynningarmál • Góð þekking á vefumsjón, upplýsingamiðlun á samfélagsmiðlum og útgáfu • Þekking á hlutverki stéttarfélaga og málefnum vinnumarkaðar • Mjög góð íslenskukunnátta í ræðu og riti og hæfni til að setja fram efni á skýran hátt • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni • Geta til að vinna sjálfstætt og undir álagi • Góð enskukunnátta í ræðu og riti, kunnátta í Norðurlandamálum er æskileg Starfssvið kynningarfulltrúa BHM Menntunar- og hæfniskröfur Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is Með umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferlisskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 19. júlí 2020. BHM er vinnustaður þar sem jafnrétti er haft að leiðarljósi við ráðningar. Bandalag háskólamanna var stofnað árið 1958 og er regnhlífar- samtök fag- og stéttarfélaga háskólamenntaðs fólks á íslenskum vinnumarkaði. Innan BHM eru nú 28 aðildarfélög með samtals um 16 þúsund félagsmenn sem starfa í ýmsum atvinnugreinum, bæði hjá hinu opinbera og á almennum markaði. Hjá BHM starfa 22 starfsmenn og skrifstofa félagsins er í Borgartúni 6. K O N T O R R E Y K JA V ÍK

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.