Fréttablaðið - 24.06.2021, Page 1
f r e t t a b l a d i d . i sf r e t t a b l a d i d . i s
1 2 2 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 2 4 . J Ú N Í 2 0 2 1
Samkvæmt nýrri greiningu
Samtaka iðnaðarins hafa
fasteignaskattar atvinnu
húsnæðis hækkað mikið
á undanförnum árum og
eru háir í samanburði við
nágrannalöndin.
kristinnhaukur@frettabladid.is
EFNAHAGSMÁL Fasteignaskattar á
atvinnuhúsnæði hafa hækkað mikið
á undanförnum áratug og eru háir í
alþjóðlegum samanburði. Sveitar
félög landsins innheimta rúmlega
28 milljarða króna í ár, en árið 2012
innheimtu þau 14 milljarða. Þetta
kemur fram í nýrri greiningu Sam
taka iðnaðarins.
Aðeins tæplega 20 prósent af hús
næði er atvinnuhúsnæði, en engu að
síður telur það tæplega 56 prósent af
heildarskattinum. Vegin meðalskatt
prósenta á atvinnuhúsnæði er 1,56
prósent, en aðeins 0,23 af íbúðar
húsnæði. Nærri helmingur sveitar
félaganna er með skatthlutfallið í
löglegu hámarki, 1,65 prósentum, og
Reykjavíkurborg, þar sem um helm
ingur heildarverðmætis atvinnuhús
næðis er staðsettur, er mjög nálægt
hámarkinu.
Ingólfur Bender, aðalhagfræðing
ur samtakanna, segir að fasteigna
verðið sjálft hafi þrýst sköttunum
upp á undanförnum árum og sveit
arfélögin hafi ekki brugðist við með
því að lækka prósentuna. Á síðustu
sex árum hafi skattarnir hækkað
um 68 prósent, en verðmætasköpun
hagkerfisins einungis um 27 prósent.
Þetta leggist illa á fyrirtæki í öllum
greinum sem þurfa rými og hafnar á
endanum á heimilunum sem greiða
fyrir með hærra verðlagi.
„Sveitarfélögin eru að taka sífellt
stærri hluta af kökunni með þessari
skattlagningu,“ segir Ingólfur. „Hlut
ur sveitarfélaganna í hagstjórninni
hefur verið að stækka og þau verða
að axla sína ábyrgð. Þetta er einn af
þeim hlutum sem skapa samkeppn
ishæfnina fyrir okkar fyrirtæki. Með
lækkun skattanna væri hægt að örva
efnahagslífið til vaxtar og skapa störf
sem við þurfum verulega á að halda
nú eftir niðursveifluna undanfarið.“
Árið 2019 voru tekjur sveitar
félaganna af fasteignasköttum 0,9
prósent af landsframleiðslu. Er þetta
hærra en gengur og gerist á Norður
löndunum og í Evrópu. Í Svíþjóð og
Finnlandi er hlutfallið 0,4 prósent og
0,2 í Noregi.
Þrátt fyrir áskoranir hafa aðeins 6
af 69 sveitarfélögum landsins lækkað
skattprósentu sína á þessu ári, þar á
meðal Reykjavík um 0,05 prósent. En
eitt þeirra, Grindavík, hækkaði sinn
skatt um 0,13 prósent.
Ingólfur segir jákvætt að Reykja
vík hafi lækkað, en að það þurfi
miklu meira til að hafa alvöru áhrif.
Bendir hann á að tvö nágranna
sveitarfélög með mikið af atvinnu
húsnæði hafi verið til fyrirmyndar.
Það er Hafnarfjörður þar sem pró
sentan var í hámarki árið 2017 en er
nú 1,4 og Kópavogur, sem lækkaði
nýlega niður í 1,47 prósent.
Almennt séð hefur landsbyggðin
hins vegar verið eftirbátur þegar
kemur að lækkunum skattanna.
Til að mynda eru Skagafjörður, Ísa
fjörður, Múlaþing og Fjarðabyggð
í hámarkinu og Akureyri nálægt
því. „Við furðum okkur á þessu
því að samkeppnishæfni þeirra er
skert með þessum hætti líkt og á
höfuðborgarsvæðinu,“ segir Ingólfur.
„Fyrir tæki þurfa á því að halda að
hafa lága skattprósentu.“ ■
Fasteignaskattar á
atvinnuhúsnæði
tvöfaldast á áratug
Hlutur sveitarfélag-
anna í hagstjórninni
hefur verið að stækka
og þau verða að axla
sína ábyrgð.
Ingólfur Bender,
aðalhagfræðingur SI.
Pssst ...
Góðar á
grillið!Nektarínur Krónanmælir með!
Mmm ...
Nektarínur
Bestar núna!
Ísólfsskáli sést hér skammt undan hrauninu sem rennur nú úr Geldingadölum og niður í Nátthaga. Jörðin var um
langan tíma notuð sem bújörð en verður líklega komin undir hraun á næstu dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
benediktboas@frettabladid.is
UMHVERFISMÁL 150 tonn af bænda
plasti eru föst í móttökustöð Flokku
á Sauðárkróki. Fyrirtækið vill f lytja
plastið til endurvinnslu í Hveragerði
en Úrvinnslusjóður neitar að koma
til móts við f lutningskostnaðinn.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
umhverfis og auðlindaráðherra,
segir Úrvinnslusjóð með flutnings
jöfnunarkerfið til heildstæðrar
endurskoðunar og vonast eftir því
að sú vinna verði farsæl. – SJÁ SÍÐU 4
Pattstaða í Skagafirði