Fréttablaðið - 24.06.2021, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 24.06.2021, Blaðsíða 50
KVIKMYNDIR Heiti myndar Leikstjórn: Xxxxxxxx Leikarar: xxxxxxxxx, xxxxxxxxx xxxxxxxxx xxxxxxxxx ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON NETFLIX Katla Leikstjórar: Baltasar Kormákur, Börkur Sigþórsson, Þóra Hilmarsdóttir Handrit: Ólafur Egilsson, Sigurjón Kjartansson, Baltasar Kormákur, Davíð Már Stefánsson, Lilja Sigurðardóttir Aðalhlutverk: Guðrún Ýr Eyfjörð, Íris Tanja Flygenring, Ingvar Sigurðsson, Guðrún Gísladóttir, Björn Thors, Aliette Opheim, Hlynur Harðarson Spennan sem kraumaði undir sjón­ varpsþáttum Baltasars Kormáks sem kenndir eru við eldfjallið Kötlu var orðin slík að Katla yfirgnæfði lúðrablástur og innblásin ræðuhöld þegar hún loksins gaus á Netflix á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Katla hefur síðustu viku að sjálf­ sögðu vermt efsta sætið á lista Netflix yfir mest streymda efnið á Íslandi og jafnvel látið þannig á sér kræla erlendis að segja má að ellefu ára hótun Ólafs Ragnars Gríms­ sonar, þáverandi forseta, á BBC hafi loksins ræst: „Og það sem við höfum orðið vitni að er í raun lítil æfing fyrir það sem mun gerast, ekki ef, heldur þegar Katla gýs.“ Sameiningartáknið Frumsýningardagsetningin var því vægast sagt viðeigandi ef ekki beinlínis táknræn, þar sem á þeirri sléttu viku sem þættirnir hafa verið í boði á efnisveitunni hefur Baltasar og hans fólk heldur betur þjappað þjóðinni saman. Allir eru að tala um Kötlu og allir hafa skoðun á Kötlu. Að því er virðist alveg óháð því hvort fólk hafi horft á alla þættina átta eða ekki. Þannig að formsins vegna er viss­ ara að bera í bakkafullan lækinn og skrá í annál þennan að þættirnir gerast ári eftir að eldgos hófst í Kötlu með afdrifaríkum afleiðingum fyrir friðsæla smábæinn Vík og þá fáu íbúa hans sem þar hafast enn við í öskukófinu. Ofan á allt annað er jökullinn byrjaður að bráðna við gosopið og dularfull fyrirbæri taka að birtast undan honum og hrista með ófyrir­ sjáanlegum af leiðingum heldur betur upp í þegar truflaðri tilveru ringlaðra þorpsbúa og örfárra villu­ ráfandi gesta þeirra. Hægur bruni Þótt mikil undur gerist í Vík og heil­ mikið sé í gangi hjá fjölskrúðugu persónugalleríinu, fer Katla hljóð­ lega af stað. Óþolinmóðum gætu því þótt fyrstu fjórir þættirnir heldur viðburðasnauðir og óneitanlega er atburðarásin undirbyggð með því mjög svo móðins stílbragði sem kennt er við hægan bruna. Þetta lukkast með slíkum ágæt­ um að vaxandi óvissa og áleitnar spurningar um hver djöfullinn sé eiginlega í gangi leita á áhorf­ andann og stigmagna og viðhalda spennunni þangað til byrjar að sjóða undir sögunni í fimmta þætti. Frá upphafi er nefnilega ofboðslega mikið í gangi og í raun er eiginlega kraftaverk að höfundum takist að halda þessu öllu saman, en ekki missa þetta í allar áttir og út í tóma vitleysu. Það gerist hins vegar ekki þar sem Baltasar Kormákur hefur hér smalað saman einvala liði handrits­ höfunda, leikara og annars fagfólks sem sprengir með honum grunn­ hugmynd hans út í þessa marglaga og margbrotnu seríu, sem er slíkur suðupottur hugmynda, stemninga, kvikmyndagreina og tilfinninga, að Baltasar sjálfum virðist svo erfitt að skilgreina hana að hann hefur lýst Kötlu sem bræðingi þjóðsagna, vís­ indaskáldskapar og sálfræðilegrar rökkurráðgátu. Katla er allt þetta og meira að segja miklu meira og ekki verður af Baltasar tekið að sem kvikmynda­ leikstjóri er hann, óháð efnisvali, mikill handverksmaður og áhrifa­ mikil og sterk heildarmynd Kötlu ber fagmennsku hans fagurt vitni. Annarleg fegurð Þótt sumt í Kötlu komi kunnuglega fyrir sjónir og þar bergmáli margt yfir ólíkum straumum og stefnum úr ýmsum höfuðáttum dægur­ menningarsögunnar, þá er þátta­ röðin óneitanlega tímamótaverk. Í það minnsta á íslenskan mæli­ kvarða þar sem ekkert í líkingu við Kötlu hefur áður sést í íslenskri kvikmyndagerð. Allt útlit og yfirbragð þáttanna er frábært. Tæknibrellur og öll grafík eru fyrsta f lokks og hrá, köld og öskumenguð sviðsmyndin er svaka­ lega töff, þar sem allt er stíliserað svo mjög í drasl að stundum er eins og allir þorpsbúar hafi keypt innbú sitt úr sama gáminum í Góða hirð­ inum. Eitthvað er víst deilt um hver eigi heiðurinn af leikmyndinni en flott er hún og þau taka það bara til sín sem eiga það. Katla er því mikið fyrir augað og eyrað þar sem tónlist Högna Egils­ sonar harmónerar skemmtilega við drungann og annarlegt andrúms­ loftið í bænum. Kvikmyndataka þeirra Bergsteins Björgúlfssonar og Árna Filippus­ sonar rammar þetta síðan allt inn. Ferlega smart og heillandi á köflum, þar sem sum skot og rammar eru hreint út sagt brjálæðislega falleg. Auk þess sem lýsingin og fimleikar með tökuvélina varpa skuggum tor­ tryggni á persónur og leikendur. Öskuklónar við Fjórdranga Að ofansögðu má ljóst vera að Katla er enginn aukvisi en helsti styrkur hennar er þó fólginn í skemmtilegri samsuðu þar sem þjóðsagnaminni, útburðir, umskiptingar og huldu­ fólk jarðtengja vísindaskáldskapinn og þiggja um leið trúverðugleika frá honum. Þessi blanda mallar við hárrétt hitastig á mótum hryllings og vís­ indaskáldskapar og er svo görótt að í öskumekkinum má með góðum vilja greina áhrif, vísanir og hughrif í The Invasion of the Body Snatch­ ers, Ringu, Stephen King, Kies­ lowski, The Omen, H.P. Lovecraft, Pet Sematary, The Shining, Svövu Jakobsdóttur, The Stepford Wives og Tarkovsky. Yfir og allt um kring svífur svo andi Davids Lynch, hvort sem það er meðvitað eða ómeðvitað, með kröftugu bergmáli frá Mullholland Drive, auk þess sem Vík og furðu­ legir íbúar hennar minna óhjá­ kvæmilega á Tvídranga. Mannlegir harmleikir, for­ og hliðarsögur þorpsbúanna smyrja síðan enn einu spennulaginu yfir Kötlu, í bland við freudískar pæl­ ingar, leik með tvífaraminnið, hið ókennilega og drauma, þar sem atburðarásin er fyrir einni persónu draumur sem hún vill aldrei vakna af á meðan önnur upplifir sig fasta í martröð. Að ógleymdri hinni eilífu grundvallarspurningu: Hver er ég? Móðir, hvað er barnið þitt? Leikhópurinn vegur ekki síður þungt fyrir heildarmyndina, en þætt­ irnir eru gegnumsneitt feikilega vel leiknir þannig að hér er hvergi nærri pláss til þess að sýna öllum sem þar brillera sóma. Fyrsta ber þó að nefna nýliðann Guðrúnu Ýri Eyfjörð sem skilar erfiðu aðalhlutverki af aðdá­ unarverðu öryggi, ekki síst þegar á hana renna tvær Grímur. Guðr ún Gísladóttir k lik kar heldur ekki og er nógu dularfull til þess að annarleikinn á hótelinu í Vík verður ansi þrúgandi. Sól­ veig Arnarsdóttir kemur líka sterk inn þegjandi og orðalaust og deilir mögnuðum senum með Þorsteini Bachmann sem er sjálfum sér líkur, auk þess sem hann fer mikinn með hinu þekkta Kubrick­augnaráði. Sænska leikkonan Aliette Opheim fremur einhvers konar galdra þegar hún rís úr öskustónni og varla er hægt að lofa hinn unga Hlyn Harð­ arson nógsamlega fyrir frábæra túlkun á því sem sumir vilja kalla „djöflabarnið“. Líklega hefur ekki jafn óhugnanlegt barn komið fram síðan Damien Thorne var og hét. Þrátt fyrir þessa lofrullu er Katla vitaskuld ekki gallalaus frekar en önnur mannanna verk, en misfell­ urnar eru merkilega fáar og aminn af þeim vart mælanlegur. Samtölin eru þó á köflum undar­ lega stirð miðað við hversu vanur mannskapurinn er sem skrifar þau ofan í persónurnar og ítarlegar útskýringarnar ramba á barmi þess að verða of vandræðalegar þegar Víkurundrin eru sett í einhvers konar rökrétt samhengi í lokin. Þær ganga samt einhvern veginn upp eða halda innan ramma sögunnar og eru næstum óhjákvæmilegar, fyrst Lynch var ekki tekinn alla leið með því að skilja áhorfandann eftir í lausu lofti á eigin ábyrgð. n NIÐURSTAÐA: Katla er býsna tilkomumikil og vönduð þáttaröð og skemmtilega vel heppnuð þjóðsaga með hryllingsívafi og vísindatengingum. Magnað út- lit og sterkur leikhópur ramma áhugaverða sögu svo vel inn að smávægilegir hnökrar hverfa sársaukalítið undir öskulagið. Margt býr í öskunni Guðrún Ýr smellpassar við drungann yfir Fjórdröngum og magnað þegar á hana renna tvær Grímur. MYND/ LILJA JÓNSDÓTTIR Allt útlit og yfirbragð þáttanna er frábært og vægast sagt töff. MYND/NETFLIX Guðrún Gísladóttir er dularfull og varla öll þar sem hún er séð. MYND/NETFLIX Katla yfirgnæfði lúðra- blástur og innblásin ræðuhöld þegar hún loksins gaus á Netflix á sjálfan þjóðhátíðar- daginn. 30 Lífið 24. júní 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 24. júní 2021 FIMMTUDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.