Fréttablaðið - 24.06.2021, Qupperneq 50
KVIKMYNDIR
Heiti myndar
Leikstjórn: Xxxxxxxx
Leikarar: xxxxxxxxx, xxxxxxxxx
xxxxxxxxx xxxxxxxxx
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
NETFLIX
Katla
Leikstjórar: Baltasar Kormákur,
Börkur Sigþórsson, Þóra
Hilmarsdóttir
Handrit: Ólafur Egilsson, Sigurjón
Kjartansson, Baltasar Kormákur,
Davíð Már Stefánsson, Lilja
Sigurðardóttir
Aðalhlutverk: Guðrún Ýr Eyfjörð,
Íris Tanja Flygenring, Ingvar
Sigurðsson, Guðrún Gísladóttir,
Björn Thors, Aliette Opheim,
Hlynur Harðarson
Spennan sem kraumaði undir sjón
varpsþáttum Baltasars Kormáks
sem kenndir eru við eldfjallið Kötlu
var orðin slík að Katla yfirgnæfði
lúðrablástur og innblásin ræðuhöld
þegar hún loksins gaus á Netflix á
sjálfan þjóðhátíðardaginn.
Katla hefur síðustu viku að sjálf
sögðu vermt efsta sætið á lista
Netflix yfir mest streymda efnið á
Íslandi og jafnvel látið þannig á sér
kræla erlendis að segja má að ellefu
ára hótun Ólafs Ragnars Gríms
sonar, þáverandi forseta, á BBC hafi
loksins ræst: „Og það sem við höfum
orðið vitni að er í raun lítil æfing
fyrir það sem mun gerast, ekki ef,
heldur þegar Katla gýs.“
Sameiningartáknið
Frumsýningardagsetningin var
því vægast sagt viðeigandi ef ekki
beinlínis táknræn, þar sem á þeirri
sléttu viku sem þættirnir hafa verið
í boði á efnisveitunni hefur Baltasar
og hans fólk heldur betur þjappað
þjóðinni saman. Allir eru að tala um
Kötlu og allir hafa skoðun á Kötlu.
Að því er virðist alveg óháð því
hvort fólk hafi horft á alla þættina
átta eða ekki.
Þannig að formsins vegna er viss
ara að bera í bakkafullan lækinn og
skrá í annál þennan að þættirnir
gerast ári eftir að eldgos hófst í Kötlu
með afdrifaríkum afleiðingum fyrir
friðsæla smábæinn Vík og þá fáu
íbúa hans sem þar hafast enn við í
öskukófinu.
Ofan á allt annað er jökullinn
byrjaður að bráðna við gosopið og
dularfull fyrirbæri taka að birtast
undan honum og hrista með ófyrir
sjáanlegum af leiðingum heldur
betur upp í þegar truflaðri tilveru
ringlaðra þorpsbúa og örfárra villu
ráfandi gesta þeirra.
Hægur bruni
Þótt mikil undur gerist í Vík og heil
mikið sé í gangi hjá fjölskrúðugu
persónugalleríinu, fer Katla hljóð
lega af stað. Óþolinmóðum gætu því
þótt fyrstu fjórir þættirnir heldur
viðburðasnauðir og óneitanlega er
atburðarásin undirbyggð með því
mjög svo móðins stílbragði sem
kennt er við hægan bruna.
Þetta lukkast með slíkum ágæt
um að vaxandi óvissa og áleitnar
spurningar um hver djöfullinn
sé eiginlega í gangi leita á áhorf
andann og stigmagna og viðhalda
spennunni þangað til byrjar að
sjóða undir sögunni í fimmta þætti.
Frá upphafi er nefnilega ofboðslega
mikið í gangi og í raun er eiginlega
kraftaverk að höfundum takist að
halda þessu öllu saman, en ekki
missa þetta í allar áttir og út í tóma
vitleysu.
Það gerist hins vegar ekki þar
sem Baltasar Kormákur hefur hér
smalað saman einvala liði handrits
höfunda, leikara og annars fagfólks
sem sprengir með honum grunn
hugmynd hans út í þessa marglaga
og margbrotnu seríu, sem er slíkur
suðupottur hugmynda, stemninga,
kvikmyndagreina og tilfinninga, að
Baltasar sjálfum virðist svo erfitt að
skilgreina hana að hann hefur lýst
Kötlu sem bræðingi þjóðsagna, vís
indaskáldskapar og sálfræðilegrar
rökkurráðgátu.
Katla er allt þetta og meira að
segja miklu meira og ekki verður af
Baltasar tekið að sem kvikmynda
leikstjóri er hann, óháð efnisvali,
mikill handverksmaður og áhrifa
mikil og sterk heildarmynd Kötlu
ber fagmennsku hans fagurt vitni.
Annarleg fegurð
Þótt sumt í Kötlu komi kunnuglega
fyrir sjónir og þar bergmáli margt
yfir ólíkum straumum og stefnum
úr ýmsum höfuðáttum dægur
menningarsögunnar, þá er þátta
röðin óneitanlega tímamótaverk.
Í það minnsta á íslenskan mæli
kvarða þar sem ekkert í líkingu
við Kötlu hefur áður sést í íslenskri
kvikmyndagerð.
Allt útlit og yfirbragð þáttanna er
frábært. Tæknibrellur og öll grafík
eru fyrsta f lokks og hrá, köld og
öskumenguð sviðsmyndin er svaka
lega töff, þar sem allt er stíliserað
svo mjög í drasl að stundum er eins
og allir þorpsbúar hafi keypt innbú
sitt úr sama gáminum í Góða hirð
inum. Eitthvað er víst deilt um hver
eigi heiðurinn af leikmyndinni en
flott er hún og þau taka það bara til
sín sem eiga það.
Katla er því mikið fyrir augað og
eyrað þar sem tónlist Högna Egils
sonar harmónerar skemmtilega við
drungann og annarlegt andrúms
loftið í bænum.
Kvikmyndataka þeirra Bergsteins
Björgúlfssonar og Árna Filippus
sonar rammar þetta síðan allt inn.
Ferlega smart og heillandi á köflum,
þar sem sum skot og rammar eru
hreint út sagt brjálæðislega falleg.
Auk þess sem lýsingin og fimleikar
með tökuvélina varpa skuggum tor
tryggni á persónur og leikendur.
Öskuklónar við Fjórdranga
Að ofansögðu má ljóst vera að Katla
er enginn aukvisi en helsti styrkur
hennar er þó fólginn í skemmtilegri
samsuðu þar sem þjóðsagnaminni,
útburðir, umskiptingar og huldu
fólk jarðtengja vísindaskáldskapinn
og þiggja um leið trúverðugleika frá
honum.
Þessi blanda mallar við hárrétt
hitastig á mótum hryllings og vís
indaskáldskapar og er svo görótt að
í öskumekkinum má með góðum
vilja greina áhrif, vísanir og hughrif
í The Invasion of the Body Snatch
ers, Ringu, Stephen King, Kies
lowski, The Omen, H.P. Lovecraft,
Pet Sematary, The Shining, Svövu
Jakobsdóttur, The Stepford Wives
og Tarkovsky.
Yfir og allt um kring svífur svo
andi Davids Lynch, hvort sem það
er meðvitað eða ómeðvitað, með
kröftugu bergmáli frá Mullholland
Drive, auk þess sem Vík og furðu
legir íbúar hennar minna óhjá
kvæmilega á Tvídranga.
Mannlegir harmleikir, for og
hliðarsögur þorpsbúanna smyrja
síðan enn einu spennulaginu yfir
Kötlu, í bland við freudískar pæl
ingar, leik með tvífaraminnið, hið
ókennilega og drauma, þar sem
atburðarásin er fyrir einni persónu
draumur sem hún vill aldrei vakna
af á meðan önnur upplifir sig fasta í
martröð. Að ógleymdri hinni eilífu
grundvallarspurningu: Hver er ég?
Móðir, hvað er barnið þitt?
Leikhópurinn vegur ekki síður þungt
fyrir heildarmyndina, en þætt
irnir eru gegnumsneitt feikilega vel
leiknir þannig að hér er hvergi nærri
pláss til þess að sýna öllum sem þar
brillera sóma. Fyrsta ber þó að nefna
nýliðann Guðrúnu Ýri Eyfjörð sem
skilar erfiðu aðalhlutverki af aðdá
unarverðu öryggi, ekki síst þegar á
hana renna tvær Grímur.
Guðr ún Gísladóttir k lik kar
heldur ekki og er nógu dularfull
til þess að annarleikinn á hótelinu
í Vík verður ansi þrúgandi. Sól
veig Arnarsdóttir kemur líka sterk
inn þegjandi og orðalaust og deilir
mögnuðum senum með Þorsteini
Bachmann sem er sjálfum sér líkur,
auk þess sem hann fer mikinn með
hinu þekkta Kubrickaugnaráði.
Sænska leikkonan Aliette Opheim
fremur einhvers konar galdra þegar
hún rís úr öskustónni og varla er
hægt að lofa hinn unga Hlyn Harð
arson nógsamlega fyrir frábæra
túlkun á því sem sumir vilja kalla
„djöflabarnið“. Líklega hefur ekki
jafn óhugnanlegt barn komið fram
síðan Damien Thorne var og hét.
Þrátt fyrir þessa lofrullu er Katla
vitaskuld ekki gallalaus frekar en
önnur mannanna verk, en misfell
urnar eru merkilega fáar og aminn
af þeim vart mælanlegur.
Samtölin eru þó á köflum undar
lega stirð miðað við hversu vanur
mannskapurinn er sem skrifar
þau ofan í persónurnar og ítarlegar
útskýringarnar ramba á barmi þess
að verða of vandræðalegar þegar
Víkurundrin eru sett í einhvers
konar rökrétt samhengi í lokin. Þær
ganga samt einhvern veginn upp
eða halda innan ramma sögunnar
og eru næstum óhjákvæmilegar,
fyrst Lynch var ekki tekinn alla leið
með því að skilja áhorfandann eftir
í lausu lofti á eigin ábyrgð. n
NIÐURSTAÐA: Katla er býsna
tilkomumikil og vönduð þáttaröð
og skemmtilega vel heppnuð
þjóðsaga með hryllingsívafi og
vísindatengingum. Magnað út-
lit og sterkur leikhópur ramma
áhugaverða sögu svo vel inn að
smávægilegir hnökrar hverfa
sársaukalítið undir öskulagið.
Margt býr í öskunni
Guðrún Ýr
smellpassar við
drungann yfir
Fjórdröngum og
magnað þegar á
hana renna tvær
Grímur.
MYND/
LILJA JÓNSDÓTTIR
Allt útlit og yfirbragð þáttanna er frábært og vægast sagt töff. MYND/NETFLIX Guðrún Gísladóttir er dularfull og varla öll þar sem hún er séð. MYND/NETFLIX
Katla yfirgnæfði lúðra-
blástur og innblásin
ræðuhöld þegar hún
loksins gaus á Netflix
á sjálfan þjóðhátíðar-
daginn.
30 Lífið 24. júní 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 24. júní 2021 FIMMTUDAGUR