Fréttablaðið - 24.06.2021, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 24.06.2021, Blaðsíða 31
Bio 10 forte Bio 10 forte línan frá Bella Aurora er öflug lýsingarmeðferð sem er sérhæfð fyrir mismunandi tegundir bletta. Örhylkin smjúga inn í grunnlag húðarinnar og losa virku efnin inn í sortufrumur. Virku lýsingarefnin virka ein- göngu á frumur sem framleiða melanín. Við vitum að það er ekki bara eitthvað eitt sem virkar fyrir alla. Blettamyndun í andliti er algengari en margir halda, ekki síst á Íslandi, og getur valdið þeim sem þjást af þeim mikilli vanlíðan. Sól, streita, hormónabreytingar og tíminn eru helstu óvinir húðarinnar og hraða öldrun hennar. „Einkenni öldrunar birtast meðal annars í húðþurrki, myndun dökkra bletta, minni teygjanleika, hrukkum og skorti á húðljóma,“ segir Þóra Gunnur Ísaksen, fram- kvæmdastjóri CU2 heildsölu. Hvað veldur blettum í húð? Dökkir blettir í húð geta verið af ýmsum toga og verða til við aukna melanínframleiðslu í húðinni. Blettir eru til dæmis freknur, sólar- blettir, elliblettir eða fæðingar- blettir. „Hormónabreytingar geta valdið aukinni blettamyndun og það er ekki óalgengt að konur fái melasma við þungun eða við inntöku á getnaðarvarnarpillum. Einnig getur orðið blettamyndun eftir bólgur í húðinni, en ýmislegt getur valdið bólgum eins og bólur, öramyndun, lasermeðferðir og fleira.“ Sólin segir Þóra að sé þó algengasti skaðvaldurinn þegar kemur að brúnum blettum þar sem melanínframleiðsla eykst, til þess að verja húðina fyrir bruna. „Þeir sem eru með ljósa húð eru í meiri hættu á að fá sólarbletti en aðrir. Bella Aurora hefur í um 130 ár sérhæft sig í meðhöndlun dökkra bletta í húð og hefur þróað sér- staka einkaleyfisvarða tækni sem gerir það að verkum að aðeins blettirnir lýsast en ekki húðin í kring. Að auki hefur merkið þróað sérstakar vörur sem vinna gegn ólíkum tegundum bletta, þannig að árangurinn verður þeim mun betri. Okkur fannst vanta meira úrval af vörum á íslenskan markað sem væru sérhæfðar í meðferð og forvörn fyrir ákveðnar tegundir bletta í andliti, en væru auk þess á sanngjörnu verði og góðar fyrir viðkvæma húð. Við vitum að það er ekki bara eitthvað eitt sem virkar fyrir alla, því finnst okkur mikilvægt að Bella Aurora sérhæfi sig eingöngu í meðferð bletta og sé með sérstakar lausnir fyrir mis- munandi tegundir bletta,“ segir Þóra Gunnur. Hvernig veit ég hvers konar bletti ég er með? Áður en meðferð hefst er gott að vita um hvers konar bletti er að ræða. Að sögn Þóru eru þessar þrjár gerðir bletta algengastar: n Blettir af völdum sólar og aldurs n Hormónablettir n Blettir sem myndast eftir bólgur Blettir af völdum sólar og aldurs eru ljósbrúnir, brúnir eða mjög dökkir, f latir, hring- og egglaga með reglulegum brúnum. Þeir koma fram stakir eða í hópum á svæði sem eru berskjölduð fyrir sólinni (andlit, hendur, háls, hand- leggir og bak). Þeir hverfa ekki yfir vetrartímann, heldur eru til staðar allan ársins hring. Hormónablettir eru dreifðir, óreglulegir dökkir blettir. Þeir birt- ast yfirleitt samhverfir á báðum hliðum andlitsins á svæðum sem eru berskjölduð fyrir sólinni (enni, höku, nefi, kinnum og efri vör). Þeir orsakast af sólinni eða vegna hormónatengdra þátta, álags, ofnæmisviðbragða eða lyfja. Blettir sem hafa myndast eftir bólgur eru ójafnir og takmarkast við svæðið sem varð fyrir bólgum. Blettirnir einskorðast ekki við svæði sem eru berskjölduð fyrir Baráttan við blettina Þóra Gunnur segir að það vanti meira úrval af vörum á íslenskan markað sem eru sérhæfðar í meðferð og forvörn fyrir ákveðnar tegundir bletta í andliti. Bella Aurora býður upp á sértækar lausnir fyrir húðbletti. Bella Aurora sólarvörn Sólarvörnin frá Bella Aurora fæst fyrir mismunandi húðgerðir. sólinni. Þeir myndast vegna aukinnar melanínframleiðslu sem viðbrögð við bólgum (erting, húð- sýking, bólumyndun, húðflögnun, lasermeðferðir og fleira). Meðferð við blettum Bio 10 forte línan frá Bella Aurora er öflug lýsingarmeðferð sem er sérhæfð fyrir mismunandi tegundir bletta. Að sögn Þóru inniheldur línan einkaleyfisvarða lýsingartækni, B-CORE22TM, sem er blanda fjögurra virkra inni- haldsefna sem eru samþjöppuð í svokallað örhylki. „Þessi örhylki smjúga inn í grunnlag húðarinnar og losa virku efnin inn í sortu- frumurnar, sem gerir það að verkum að virku lýsingarefnin ráðast eingöngu á frumur sem framleiða melanín, en ekki húðina í kring. Árangur meðferðarinnar fer að sjást eftir fjórar vikur, ef varan er notuð kvölds og morgna, en ráðlögð meðferð til að ná sem bestum árangri er tíu vikur. Mikilvægt er að nota sólarvörn á hverjum degi eftir að vörur í Bio 10 forte línunni hafa verið bornar á andlitið. En til þess að koma í veg fyrir blettamyndun og/eða halda henni niðri, er nauðsynlegt að nota sólarvörn með háum varnarstuðli daglega, allan ársins hring. Ef sólin fær að skína á óvarið svæði getur orðið bakslag á jafnvel margra mánaða meðferð við blettum.“ Varðveita æskuljómann Bella Aurora vörurnar eru prófaðar af húðlæknum. Þær eru mildar fyrir húðina og miða að því að auka lífvænleika frumna. „Vörur frá Bella Aurora innihalda ekki ljósnæm efni líkt og hydroquin- one, en það er þekkt húðlýsingar- efni sem getur valdið aukinni blettamyndun þegar sólin skín á húðina. Aðrar stuðningsvörur frá Bella Aurora eru einnig sérhæfðar til þess að draga úr dökkum blettum og hindra myndun nýrra bletta, en hafa auk þess önnur alhliða áhrif til þess að varðveita æskuljómann,“ segir Þóra. n Bella Aurora fæst hjá Beauty- box. is, Lyfjavali Mjódd, Apóteki Garðabæjar, Lyfjaveri, Urðarapó- teki og Efstaleitis apóteki. kynningarblað 9FIMMTUDAGUR 24. júní 2021 HÚÐ OG HÁR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.