Fréttablaðið - 24.06.2021, Síða 31
Bio 10 forte
Bio 10 forte línan frá Bella Aurora
er öflug lýsingarmeðferð sem
er sérhæfð fyrir mismunandi
tegundir bletta. Örhylkin smjúga
inn í grunnlag húðarinnar og losa
virku efnin inn í sortufrumur.
Virku lýsingarefnin virka ein-
göngu á frumur sem framleiða
melanín.
Við vitum
að það er
ekki bara
eitthvað
eitt sem
virkar fyrir
alla.
Blettamyndun í andliti er
algengari en margir halda,
ekki síst á Íslandi, og getur
valdið þeim sem þjást af
þeim mikilli vanlíðan. Sól,
streita, hormónabreytingar
og tíminn eru helstu óvinir
húðarinnar og hraða öldrun
hennar.
„Einkenni öldrunar birtast meðal
annars í húðþurrki, myndun
dökkra bletta, minni teygjanleika,
hrukkum og skorti á húðljóma,“
segir Þóra Gunnur Ísaksen, fram-
kvæmdastjóri CU2 heildsölu.
Hvað veldur blettum í húð?
Dökkir blettir í húð geta verið af
ýmsum toga og verða til við aukna
melanínframleiðslu í húðinni.
Blettir eru til dæmis freknur, sólar-
blettir, elliblettir eða fæðingar-
blettir. „Hormónabreytingar geta
valdið aukinni blettamyndun
og það er ekki óalgengt að konur
fái melasma við þungun eða við
inntöku á getnaðarvarnarpillum.
Einnig getur orðið blettamyndun
eftir bólgur í húðinni, en ýmislegt
getur valdið bólgum eins og bólur,
öramyndun, lasermeðferðir og
fleira.“ Sólin segir Þóra að sé þó
algengasti skaðvaldurinn þegar
kemur að brúnum blettum þar
sem melanínframleiðsla eykst, til
þess að verja húðina fyrir bruna.
„Þeir sem eru með ljósa húð eru í
meiri hættu á að fá sólarbletti en
aðrir.
Bella Aurora hefur í um 130 ár
sérhæft sig í meðhöndlun dökkra
bletta í húð og hefur þróað sér-
staka einkaleyfisvarða tækni sem
gerir það að verkum að aðeins
blettirnir lýsast en ekki húðin í
kring. Að auki hefur merkið þróað
sérstakar vörur sem vinna gegn
ólíkum tegundum bletta, þannig
að árangurinn verður þeim mun
betri.
Okkur fannst vanta meira úrval
af vörum á íslenskan markað
sem væru sérhæfðar í meðferð og
forvörn fyrir ákveðnar tegundir
bletta í andliti, en væru auk þess
á sanngjörnu verði og góðar fyrir
viðkvæma húð. Við vitum að það
er ekki bara eitthvað eitt sem
virkar fyrir alla, því finnst okkur
mikilvægt að Bella Aurora sérhæfi
sig eingöngu í meðferð bletta og
sé með sérstakar lausnir fyrir mis-
munandi tegundir bletta,“ segir
Þóra Gunnur.
Hvernig veit ég hvers konar
bletti ég er með?
Áður en meðferð hefst er gott að
vita um hvers konar bletti er að
ræða. Að sögn Þóru eru þessar
þrjár gerðir bletta algengastar:
n Blettir af völdum sólar og aldurs
n Hormónablettir
n Blettir sem myndast eftir bólgur
Blettir af völdum sólar og aldurs
eru ljósbrúnir, brúnir eða mjög
dökkir, f latir, hring- og egglaga
með reglulegum brúnum. Þeir
koma fram stakir eða í hópum á
svæði sem eru berskjölduð fyrir
sólinni (andlit, hendur, háls, hand-
leggir og bak). Þeir hverfa ekki yfir
vetrartímann, heldur eru til staðar
allan ársins hring.
Hormónablettir eru dreifðir,
óreglulegir dökkir blettir. Þeir birt-
ast yfirleitt samhverfir á báðum
hliðum andlitsins á svæðum sem
eru berskjölduð fyrir sólinni (enni,
höku, nefi, kinnum og efri vör).
Þeir orsakast af sólinni eða vegna
hormónatengdra þátta, álags,
ofnæmisviðbragða eða lyfja.
Blettir sem hafa myndast eftir
bólgur eru ójafnir og takmarkast
við svæðið sem varð fyrir bólgum.
Blettirnir einskorðast ekki við
svæði sem eru berskjölduð fyrir
Baráttan við blettina
Þóra Gunnur segir að það vanti meira úrval af vörum á íslenskan markað sem eru sérhæfðar í meðferð og forvörn
fyrir ákveðnar tegundir bletta í andliti. Bella Aurora býður upp á sértækar lausnir fyrir húðbletti.
Bella Aurora sólarvörn
Sólarvörnin frá Bella Aurora fæst
fyrir mismunandi húðgerðir.
sólinni. Þeir myndast vegna
aukinnar melanínframleiðslu sem
viðbrögð við bólgum (erting, húð-
sýking, bólumyndun, húðflögnun,
lasermeðferðir og fleira).
Meðferð við blettum
Bio 10 forte línan frá Bella Aurora
er öflug lýsingarmeðferð sem
er sérhæfð fyrir mismunandi
tegundir bletta. Að sögn Þóru
inniheldur línan einkaleyfisvarða
lýsingartækni, B-CORE22TM, sem
er blanda fjögurra virkra inni-
haldsefna sem eru samþjöppuð í
svokallað örhylki. „Þessi örhylki
smjúga inn í grunnlag húðarinnar
og losa virku efnin inn í sortu-
frumurnar, sem gerir það að
verkum að virku lýsingarefnin
ráðast eingöngu á frumur sem
framleiða melanín, en ekki húðina
í kring. Árangur meðferðarinnar
fer að sjást eftir fjórar vikur, ef
varan er notuð kvölds og morgna,
en ráðlögð meðferð til að ná
sem bestum árangri er tíu vikur.
Mikilvægt er að nota sólarvörn á
hverjum degi eftir að vörur í Bio 10
forte línunni hafa verið bornar á
andlitið. En til þess að koma í veg
fyrir blettamyndun og/eða halda
henni niðri, er nauðsynlegt að nota
sólarvörn með háum varnarstuðli
daglega, allan ársins hring. Ef sólin
fær að skína á óvarið svæði getur
orðið bakslag á jafnvel margra
mánaða meðferð við blettum.“
Varðveita æskuljómann
Bella Aurora vörurnar eru prófaðar
af húðlæknum. Þær eru mildar
fyrir húðina og miða að því að
auka lífvænleika frumna. „Vörur
frá Bella Aurora innihalda ekki
ljósnæm efni líkt og hydroquin-
one, en það er þekkt húðlýsingar-
efni sem getur valdið aukinni
blettamyndun þegar sólin skín á
húðina. Aðrar stuðningsvörur frá
Bella Aurora eru einnig sérhæfðar
til þess að draga úr dökkum
blettum og hindra myndun nýrra
bletta, en hafa auk þess önnur
alhliða áhrif til þess að varðveita
æskuljómann,“ segir Þóra. n
Bella Aurora fæst hjá Beauty-
box. is, Lyfjavali Mjódd, Apóteki
Garðabæjar, Lyfjaveri, Urðarapó-
teki og Efstaleitis apóteki.
kynningarblað 9FIMMTUDAGUR 24. júní 2021 HÚÐ OG HÁR