Fréttablaðið - 24.06.2021, Qupperneq 2
Við erum að reyna að
setja markið þannig að
íslenska geti staðið
jafnfætis stóru tungu-
málunum í stafræna
heiminum.
Njáll Skarphéðinsson.
Þeir sem ekki fá
sprautu eru afskráðir í
kerfinu.
Sjósund í sólinni
benediktboas@frettabladid.is
GERVIGREIND „Ég hef gaman af
nýsköpun og að búa til með hönd-
unum. Tölvunarfræðin er þannig að
hún býður upp á að geta búið eitt-
hvað til úr engu nema hugmyndinni
og tímanum sem maður setur í það
verkefni,“ segir Njáll Skarphéðins-
son, sem nýlega lauk BSc-gráðu í
tölvunarfræði frá Háskólanum í
Reykjavík með ágætiseinkunn og er
að hefja meistaranám í gervigreind
við Carnegie Melloner, einn fremsta
háskóla heims á því sviði.
Njáll stýrir verkefninu Spurningar,
sem er nýr símaleikur þar sem þátt-
takendur setja fram, fara yfir og svara
fjölbreyttum spurningum. Tilgangur
leiksins er að styðja við þróun mál-
tæknilausna fyrir íslensku, meðal
annars smíði íslensks snjallmennis
sem getur svarað spurningum á
íslensku. Markmiðið er að safna
100.000 spurningum og svörum í
opið gagnasafn sem getur nýst öllum
sem vinna að íslenskum máltækni-
lausnum.
Njáll, ásamt þremur öðrum nem-
endum, hefur sett sér það háleita
markmið að búa til gagnasafn á
heimsmælikvarða og er fyrirmynd-
in eitt stærsta slíka safn heims, Stan-
ford-gagnasafnið, með 100.000
spurningar og svör á ensku. „Þetta er
skemmtilegur Trivial-leikur og safn-
ið yrði einstakt á heimsmælikvarða.
Þekktasta svona safnið er notað og
kennt við Stanford-háskóla og er vel
þekkt í þessum geira.
Stundum er talað um að við
séum best miðað við höfðatölu en
þetta, ef þetta tekst, yrði einstakt
á heimsvísu. Við erum að reyna að
setja markið þannig að íslenska geti
staðið jafnfætis stóru tungumál-
unum í stafræna heiminum.“
Hægt er að nálgast leikinn og
frekari upplýsingar á spurningar.is
og á App Store og Google Play. Til að
tryggja stöðu íslensku í stafrænum
heimi er nauðsynlegt að byggja upp
innviði sem stuðla að framþróun og
grósku í heimi íslenskrar máltækni.
Nú geta allir tekið þátt í þróun mál-
tæknilausna fyrir íslensku með
því að spila þennan skemmtilega
spurningaleik.
Njáll, sem er Keflvíkingur, valdi
tölvunarfræði til að búa eitthvað til.
Hann er spenntur fyrir því að vera í
sumar í HR að vinna að þessu verk-
efni svo hægt sé að smíða alvöru
snjallmenni sem getur svarað
almennum spurningum um allt
milli himins og jarðar á íslensku.
Svo eru það Bandaríkin sem bíða
handan við hornið, en hann mun
hefja sitt meistaranám við Carne-
gie Melloner. „Það er eiginlega hálf
ótrúlegt að hafa komist inn. Það
voru 50 sem komust inn í þetta
nám og flestir frá Asíu og Bandaríkj-
unum en ég er sá eini sem kemur frá
Evrópu,“ segir hann stoltur. n
Stefna að stærra gagnasafni
en Stanford-háskóli notar
Njáll Skarphéðinsson og teymið hans við HR þar sem unnið er að því að
styrkja þróun máltæknilausna fyrir íslensku. Meðal annars við smíði íslensks
snjallmennis, sem getur svarað spurningum á íslensku. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG Þjóðleikhúsið hefur
leitað á náðir sveitarfélaga til að
hýsa tvo leikara og tæknimanneskju
frítt, á leikferðalagi leikhússins um
landið.
Í bréfi Magnúsar Geirs Þórðarson-
ar þjóðleikhússtjóra til Ísafjarðar-
bæjar segir að sýningin sé fyrir ungt
fólk og aðgangseyrir sé enginn. „Við
óskum þess í stað eftir samstarfi um
gistingu fyrir leikara og tæknifólk
og rými til að leika í.“
Kemur fram að rýmið þurfi að
vera með þriggja metra lofthæð
og leikrýmið 5x5 metrar. Rafmagn
þurfi að vera stöðugt og aðgengi að
minnst fjórum tenglum.
Sýningin Vloggið er sérstaklega
skrifað fyrir 10. bekk. Er það von
Magnúsar að hægt sé að halda áfram
að bjóða unga fólkinu á landsbyggð-
inni að fá Þjóðleikhúsið í heimsókn
og það verði fastur liður á hverju ári.
Samkvæmt ársreikningi Þjóðleik-
hússins 2019 fékk leikhúsið tæpa
1,4 milljarða frá ríkinu.n
Þjóðleikhúsið vill fría
gistingu um landið
Magnús Geir
Þórðarson,
Þjóðleikhús-
stjóri.
EL PLANTIO GOLF 4*
ALICANTE - 7 DAGAR 06. -13. SEPTEMBER
WWW.UU.IS | 585 4000 | INFO@UU.IS
INNIFALIÐ Í VERÐI: FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR,
HANDFARANGUR, FLUTNINGUR Á GOLFBÚNAÐ, AKSTUR TIL OG FRÁ
FLUGVELLI, MORGUNVERÐUR, ÓTAKMARKAÐ GOLF & GOLFBÍLL
VERÐ FRÁ: 219.900 KR.
Á MANN M.V. 4 FULLORÐNA
birnadrofn@frettabladid.is
COVID-19 Eitthvað hefur borið á
því að fólk mæti í bólusetningu í
Laugardalshöll, skrái sig inn með
strikamerki en yfirgefi svæðið áður
en það er sprautað. Ragnheiður Ósk
Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri
hjúkrunar, segir vel fylgst með þeim
sem vilji yfirgefa Höllina áður en
bóluefni er gefið.
„Við reynum að grípa þetta fólk,“
segir Ragnheiður. „Yfirleitt er þetta
fólk sem er kvíðið og við reynum þá
að bjóða því að koma afsíðis og róa
það,“ bætir hún við.
Ragnheiður segir að þiggi fólk
ekki bólusetningu eftir að reynt
hefur verið að koma til móts við
það og kjósi að yfirgefa svæðið án
þess að hafa verið sprautað, sé það
afskráð í kerfinu og geti ekki sótt
bólusetningarvottorð á Heilsuveru.
„Ég held að þetta sé ekki gert af
brotavilja og ég trúi því ekki að fólk
sé að reyna að komast undan. Það
er erfitt að komast fram hjá okkur
en ef það er einbeittur brotavilji þá
er það örugglega hægt,“ segir Ragn-
heiður. n
Fólk svindli ekki
í bólusetningunni
Sundhettur í öllum regnbogans litum sitja á kollum sundkappa, sem gera sig klára til að taka þátt í hinu árlega Fossvogssundi í kvöldsólinni. Þátttaka í
sundinu er yfirleitt góð, þar sem leiðin liggur frá Nauthólsvík og yfir til Kópavogs. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
2 Fréttir 24. júní 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ