Fréttablaðið - 24.06.2021, Qupperneq 6
Upphaflega átti platan
að verða spiluð af sin-
fóníuhljómsveit en í
faraldrinum þróaðist
hún í aðra átt
Verkir eru algengir
meðal almennings.
Þorbjörg Jóns-
dóttir, lektor
við Háskólann á
Akureyri.
Doktor Þorbjörg Jónsdóttir
hefur hafið viðamikla rann-
sókn á því hvernig heilsu-
tengd lífsgæði og lífshættir
hafa áhrif á heilsu almenn-
ings á Íslandi. Þátttakendur
eru 12 þúsund og verða niður-
stöður birtar með haustinu.
birnadrofn@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL „Verkir eru algengir
meðal almennings. Verkir sem ekki
eiga sér augljósa skýringu eru oft
vanmetnir og vanmeðhöndlaðir,
sem getur leitt til þess að þeir þróast
út í langvarandi heilsufarsvandamál
sem hefur neikvæð áhrif á lífsgæði
einstaklingsins,“ segir doktor Þor-
björg Jónsdóttir, lektor við Heilbrigð-
isvísindasvið Háskólans á Akureyri.
Hún fer fyrir viðamikilli rannsókn er
snýr að því hvernig heilsutengd lífs-
gæði og lífshættir hafa áhrif á heilsu
almennings á Íslandi.
Spurningalisti hefur verið sendur
til 12 þúsund þátttakenda, þar sem
safnað er upplýsingum um heilsu-
tengd lífsgæði og þætti varðandi
almenna lífshætti fólks, svo sem
atvinnuþátttöku, neyslu tóbaks,
áfengis og annarra vímuefna, sem
og upplýsingum um reynslu af
langvinnum veikindum og streitu-
valdandi áföllum, svo sem slysum og
ofbeldi. Einnig er spurt um reynslu
af verkjum, eðli og útbreiðslu verkja,
áhrif verkja á daglegt líf og lífsgæði
sem og aðgang að og notkun á heil-
brigðisþjónustu.
Þorbjörg hvetur alla sem fengið
hafa listann til að svara, mikilvægt
sé að fá svör frá sem flestum.
„Það vill oft verða þannig að þeir
sem telja sig hafa einkenni þess sem
verið er að rannsaka svari frekar en
aðrir, en það er mikilvægt að fá svör
frá sem fjölbreyttustum hópi,“ segir
Þorbjörg.
Búast má við fyrstu niðurstöðum
með haustinu og segir Þorbjörg að
þær muni auka þekkingu og skiln-
ing á því hvernig verkir til lengri eða
skemmri tíma tengist ýmsum þátt-
um í lífi fólks sem nýtist við með-
ferð verkja. „Og til að fyrirbyggja að
verkir þróist í að verða langvarandi
heilsufarsvandamál,“ segir hún.
Samkvæmt nýlegri skýrslu starfs-
hóps sem heilbrigðisráðherra fól að
greina fjölda einstaklinga með lang-
vinna verki hér á landi, glíma í það
minnsta 56 þúsund Íslendingar við
langvinna verki. Um það bil þriðj-
ungur þeirra er óvinnufær.
„Rannsóknir hafa sýnt að tengsl
verkja og heilsutengdra lífsgæða og
þróun langvinnra verkja er ekki línu-
legt samband orsaka og afleiðingar,
heldur flókið og gagnvirkt samspil
margra þátta í lífi einstaklingsins
sem geta haft áhrif hver á annan,“
útskýrir Þorbjörg.
„Margar rannsóknir hafa einnig
sýnt fram á tengsl verkja og ýmiss
konar áfalla fyrr á ævinni, sem og
ýmissa lífsstílsþátta. Ýmsir verkir
tengdir blæðingum kvenna, fæðing-
um og tíðahvörfum geta einnig haft
neikvæð áhrif á daglegt líf og heilsu-
tengd lífsgæði,“ segir Þorbjörg.
Hún segir niðurstöðurnar geta
hjálpað við að efla þekkingu, hvað
varðar tengingu á milli langvinnra
verkja og ýmissa þátta í lífsháttum
og lífssögu fólks. n
Rannsaka tengsl langvarandi verkja
við lífshætti og heilsutengd lífsgæði
Margar rannsóknir hafa sýnt að verkir geta tengst áföllum sem fólk hefur orðið fyrir um ævina. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
kristinnpall@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR Rafíþróttasamtök Íslands,
RÍSÍ, hafa lýst yfir áhuga á því að
hýsa The International, stærsta mót
ársins í tölvuleiknum DOTA, sem á
að fara fram í Stokkhólmi í ágúst.
Valve, framleiðandi leiksins, til-
kynnti í vikunni að fyrirtækið væri
farið að skoða aðra staðsetningu í
Evrópu eftir að viðræður við sænsk
stjórnvöld sigldu í strand. Svíar
hafa til þessa neitað að viðurkenna
mótið sem afreksíþróttaviðburð og
er fyrir vikið óvíst hvort leikmenn-
irnir fái vegabréfsáritun.
„Þetta er ekki enn komið á form-
legt viðræðustig en þetta er eitt-
hvað sem vakti strax áhuga okkar
þegar þessi yfirlýsing kom út. Síð-
ustu daga höfum við, í samstarfi
við Íslandsstofu, undirbúið efni og
reynt að koma því á framfæri, um
að við séum áhugasöm um að hýsa
mótið,“ segir Ólafur Steinarsson,
formaður RÍSÍ.
Fyrr á þessu ári fór Mid Sea-
son Invitational fram, eitt stærsta
tölvuleikjamót ársins í League of
Legends, í Laugardalshöll. Samhliða
því hélt Riot Games fyrsta mótið í
Valorant í Laugardalshöll.
„Upplifun mín eftir Mid Season
Invitational, er að við séum nú sýni-
legri í þessum heimi. Forráðamenn
Riot Games höfðu orð á því að þeir
væru himinlifandi með mótið hér á
landi og eiga allir sem komu að því
verkefni risahrós skilið. Um leið var
hægt að fjárfesta í búnaði til að hýsa
f leiri mót í framtíðinni.“
Þetta verður í tíunda sinn sem
mótið fer fram og er verðlaunaféð,
sem er fjármagnað af leikmönnum
á heimsvísu, komið yfir fjörutíu
milljónir dala.
Íslandsstofa vinnur að skýrslu
um fjárhagsleg áhrif Mid-Seaso-
nal Invitational. Samkvæmt fyrstu
tölum voru bókaðar 1.100 gistinæt-
ur og var áætlað að hundrað milljón
manns hefðu horft á mótið. n
Vilja hýsa annað risamót í tölvuleikjum hér á landi
Tölvuleikjamót verða sífellt stærri
og vinsælli. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
kristinnhaukur@frettabladid.is
SAMFÉLAG Tónlistarmaðurinn
Damon Albarn hefur tilkynnt um
nýja sólóplötu sem koma mun út
þann 12. nóvember. Ber hún titilinn
The Nearer the Fountain, More Pure
the Stream Flows.
Þetta er fyrsta platan sem Albarn
gefur út eftir að hann fékk íslenskan
ríkisborgararétt í janúar. Albarn
gerði garðinn frægan með hljóm-
sveitunum Blur og The Gorillaz á
tíunda áratug síðustu aldar og þeim
fyrsta á þessari. Platan í nóvember
verður hans önnur sólóplata, en sú
fyrsta, Everyday Robots, kom út árið
2014.
Samkvæmt fréttasíðunni RTE
mun platan innihalda 11 lög sem
voru innblásin af íslenskri náttúru.
Upphaflega átti tónlistin að vera
leikin af sinfóníuhljómsveit, en í far-
aldrinum þróaðist hún í aðra átt. „Ég
hef verið á myrku ferðalagi við gerð
þessarar plötu og ég er farinn að trúa
að hrein uppspretta sé enn þá til,“
sagði Albarn við tilkynninguna. n
Fyrsta platan sem
íslenskur borgari
Damon er kominn með sítt að aftan.
kristinnhaukur@frettabladid.is
GARÐABÆR Sjómannadagsráð hefur
sagt upp samningi við Garðabæ um
rekstur hjúkrunarheimilisins Ísa-
foldar. Tekur uppsögnin gildi um
áramót. Bæjarstjórn Garðabæjar
hefur farið fram á viðræður við ríkið
um yfirtöku á Ísafold.
Garðabær fetar í fótspor Akureyr-
ar, Vestmannaeyja, Fjarðarbyggðar
og Hornafjarðar, sem öll hafa skilað,
eða lýst því yfir að þau hyggist skila,
rekstri hjúkrunarheimila. Segja þau
ekki nægt fjármagn fylgja rekstrin-
um. Eftir að ríkið samdi við Heilsu-
vernd hjúkrunarheimili um að
taka við Hlíð á Akureyri, var tugum
starfsfólks sagt upp.
Fjármál Ísafoldar hafa áður kom-
ist í deiglu fjölmiðlanna. Garðabær
krafði ríkið um hundruð milljóna
króna vegna rekstrartaps árin 2013
til 2017 fyrir dómi. Hæstiréttur
dæmdi ríkinu hins vegar í vil.
Sjómannadagsráð hefur rekið Ísa-
fold síðan árið 2017 en reksturinn
verið erfiður. Í september var bókað
í bæjarstjórn að rekstrinum yrði
skilað ef ekki kæmi til viðbótarfjár-
magn frá ríkinu. Garðabær ákvað að
leggja til viðbótarfjármagn í október
til að halda rekstrinum gangandi en
nú er komið að lokum hans. n
Bæjarstjórn Garðabæjar hyggst skila
hjúkrunarheimilinu Ísafold til ríkisins
Árið 2017 tapaði Garðabær máli
gegn ríkinu vegna reksturs Ísafoldar.
6 Fréttir 24. júní 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ