Fréttablaðið - 24.06.2021, Síða 8
50/100
Við höldum ótrauð áfram að rampa upp Reykjavík. Fulltrúi Sjálfs-
bjargar vígir ramp nr. 50 af 100 í miðborginni, við verslunina
Yeoman, Laugavegi 7. Ósk Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri
Sjálfsbjargar, flytur ávarp. Tónlist, töfrabrögð og sirkúskúnstir.
Ókeypis andlitsmálning, blöðrur og djús fyrir börnin.
Fjölmennum, fögnum sumri og frábærum árangri við að bæta
aðgengi í miðborginni.
rampur.is
GLEÐIHÁTÍÐ
Í GÖNGUFÆRI
Við Yeoman,
Laugavegi 7
Fimmtudag,
kl. 14:00–16:30
DJ Dóra Júlía
Sirkus Íslands
Bjarni töframaður
Apple Daily neyðist til að
hætta starfsemi. BÍ og IFJ for
dæma aðgerðir stjórnvalda
gegn fjölmiðlafrelsi.
urduryrr@gmail.com
HONG KONG Apple Daily prentaði
seinasta eintak blaðsins í gær. Það
neyðist til að hætta starfsemi eftir
áhlaup lögreglu á ritstjórnarskrif
stofu þess, handtökur stjórnar
manna og blaðamanna og frystingu
eigna.
Blaðið hefur verið starfandi í 26
ár og þykir vera táknmynd lýð
ræðishreyfingarinnar í Hong Kong.
Blaðið og stofnandi þess, Jimmy Lai,
hafa gjarnan staðið uppi í hárinu á
ríkisstjórn og lögreglu landsins.
Í seinustu viku gerði öryggislög
regla áhlaup á ritstjórnarskrifstofu
blaðsins. Yfir fimm hundruð lög
reglu menn tóku þátt í á hlaupinu
og hand tóku fimm stjórn endur,
þar á meðal fram kvæmda stjórann,
Cheung Kimhung, og aðal rit
stjórann, Ryan Law.
Tölvur og harðir diskar voru
gerðir upptækir í á hlaupinu og 2,3
milljónir dala af fjár munum blaðs
ins frystar.
Stjórnendum blaðsins er gert að
hafa brotið öryggislög um sam
ráð við erlendar þjóðir, eða öf l
gegn þjóðaröryggi. Því er haldið
fram að blaðið hafi birt 30 greinar
sem hvöttu erlend ríki til að beita
höftum gegn ríkisstjórnum Kína og
Hong Kong.
Lögin sem um ræðir tóku gildi
í júní 2020, en greinarnar birtust
á tímabili sem nær til ársins 2019.
Carrie Lam, leiðtogi heimastjórnar
Hong Kong, sagði við mannrétt
inda ráð Sameinuðu Þjóðanna að
lögin yrðu ekki afturvirk, en það
virðist þó ekki hafa gengið eftir.
Frá því lögin tóku gildi hafa þau
verið nýtt til að handtaka rúmlega
hundrað lýðræðissinna, samkvæmt
tölum Alþjóðablaðamannasamtak
anna (IFJ).
Stofnandi blaðsins, Jimmy Lai,
var handtekinn í ágúst í fyrra vegna
meintra brota á þessum lögum með
því að taka þátt í mótmælum til
stuðnings lýðræði árið 2019. Í apríl
á þessu ári var hann dæmdur í fjór
tán mánaða fangelsi.
Helsti leiðarahöfundur blaðsins,
sem skrifar undir nafninu Li Ping,
var einnig handtekinn í gærmorgun
á staðartíma fyrir meint samráð
við erlend öfl. Brotin voru rekin til
greinaskrifa hans, en þrátt fyrir að
ekki komi fram hvaða greinar um
ræðir kemur fram að einhverjar
þeirra hafi verið birtar árið 2019.
Eftir handtöku Li Ping var ákveð
ið að flýta lokun blaðsins en stefnt
var að því að hætta starfsemi um
helgina.
Blaðamannafélag Íslands (BÍ)
fordæmir aðgerðir stjórnvalda í
Hong Kong. „Þetta er fjölmiðill
sem hefur haldið uppi hvað gagn
rýnustu umræðunni um stjórnvöld
og er núna þvingaður til að loka og
búið að handataka stjórnendur,“
segir Sigríður Dögg Auðunsdóttir
formaður BÍ.
„Blaðamannafélag Íslands mun
að sjálfsögðu gera allt í valdi félags
ins til að vekja athygli á því sem er
í gangi þarna og í f leiri löndum þar
sem svona vinnubrögð og viðhorf
ríkja og frelsi fjölmiðla er skert eða
ekkert,“ segir Sigríður.
Guðlaugur Þór Þórðarson, utan
ríkisráðherra, segir íslensk stjórn
völd fylgjast grannt með þeim
atburðum sem átt hafa sér stað í
Hong Kong undanfarna mánuði.
„Þessar nýjustu fréttir valda áhyggj
um og eru merki um að enn sé verið
að þrengja að frelsi íbúanna,“ segir
hann. Hefur Ísland ítrekað lýst
áhyggjunum á alþjóðavettvangi og í
tvíhliða samskiptum við Kína. Einn
ig tekið undir yfirlýsingar á vegum
ESB og í mannréttindaráði SÞ. ■
Vegið að gagnrýnni blaðamennsku
Apple Daily hættir starfsemi eftir 26 ár og prentar sitt seinasta blað í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir,
formaður Blaða-
mannafélags
Íslands.
arnartomas@frettabladid.is
JAPAN Hæstiréttur í Japan úrskurð
aði í gær að lagaákvæði sem neyða
hjón til að bera sama ættarnafn séu
í samræmi við stjórnarskrána þar
í landi. Dómur sama efnis féll árið
2015.
Í úrskurðinum segir að hæsti
réttur hafi „ekki fundið nein atriði
sem ætti að breyta frá ákvörðuninni
frá 2015, jafnvel þó að hún taki mið
af breytingum í samfélaginu og vit
undarvakningu“, svo sem fjölgun
kvenna á atvinnumarkaðinum og
auknum fjölda fólks sem hlynnt er
að leyfa ólík ættarnöfn.
Japan er eina landið í heiminum
sem vitað er til að hafi lög sem
neyða hjón til að bera sama ættar
nafn. Nefnd Sameinuðu þjóðanna
um afnám mismununar gegn
konum hefur mælst til þess Japan
breyti reglunum. ■
Japanir neita
hjónum um ólík
ættarnöfn
Í flestum tilfellum taka japanskar
konur upp ættarnafn eiginmannsins.
arnartomas@frettabladid.is
MALTA Möltu og Rúmeníu verður
bætt við gráan lista FATF, alþjóð
legs starfshóps um aðgerðir gegn
peningaþvætti og f jármögnun
hryðjuverka. Þetta er haft eftir
maltneskum fjölmiðlum.
Á gráa listanum eru í dag 19 ríki
sem þykja ekki hafa gripið til full
nægjandi aðgerða gegn peninga
þvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Ísland var sett á listann í október
árið 2019 en tekið af honum nokkr
um mánuðum síðar. Rannsóknir
benda til þess að ef lönd endi á
gráa listanum geti það haft víðtæk
áhrif á efnahag þeirra og alþjóða
viðskipti. ■
Tvö Evrópulönd
á gráa listann
arnartomas@frettabladid.is
SVÍÞJÓÐ Líkurnar á að Stefan Löfven,
forsætisráðherra Svíþjóðar, muni
halda embætti sínu hafa aukist eftir
að meðlimir Miðflokksins lýstu yfir
að þeir myndu falla frá tillögu um
umbætur á húsaleigu. Annie Loof,
leiðtogi Miðflokksins, lýsti því yfir
að flokkurinn væri opinn fyrir því
að setjast aftur við samningaborðið
með Löfven.
„Miðf lokkurinn vill sjá nýjan
janúarsamning sem mun gilda út
tímabilið og færa Svíþjóð ríkis
stjórn á ný,“ sagði Loof í yfirlýsingu,
en janúarsamningurinn vísar til
stjórnarmyndunarsamnings sænsku
ríkisstjórnarinnar sem gerður var
árið 2019. Í janúarsamningnum var
meðal annars kveðið á um þak á
húsaleigu og leiddi það til ástands
ins á sænska þinginu í dag. Skoðana
kannanir sýna að fylgi stjórnmála
Miðflokkurinn veitir Löfven von
Annie Loof, for-
maður sænska
Miðflokksins.
fylkinga í Svíþjóð sé jafnt, svo að
neyðarkosningar gætu skilað litlu.
Eins og Fréttablaðið greindi frá féll
ríkisstjórn Löfvens á mánudaginn,
eftir að meirihluti sænska þingsins
samþykkti tillögu um vantraust gegn
forsætisráðherranum. Löfven hafði í
kjölfarið rúma viku til að segja af sér,
mynda nýja ríkisstjórn eða boða til
kosninga. Vantrauststillagan kom í
kjölfar mikilla deilna um afléttingu
á þaki á húsaleigu. ■
arnartomas@frettabladid.is
BANDARÍKIN Ríkisstjórn Joes Biden
Bandaríkjaforseta greiddi í gær
atkvæði gegn árlegri ályktun Alls
herjarþings Sameinuðu þjóðanna,
um afnám á viðskiptabanni Banda
ríkjanna á Kúbu.
Viðskiptabannið hefur nú staðið
yfir í meira en hálfa öld. Af 189
atkvæðum sem bárust í gær kusu
aðeins tvö lönd gegn ályktuninni,
Bandaríkin og Ísrael. Aðeins banda
ríska þingið hefur þó umboð til að
aflétta banninu.
Þetta er í 29. skipti sem ályktunin
er borin upp á Allsherjarþinginu
og hafa Bandaríkin venjulega alltaf
kosið gegn henni, nema þegar þau
sátu hjá árið 2016 í valdatíð Baracks
Obama.
Þrátt fyrir að Biden hafi talað um
endurbætur í samskiptum land
anna tveggja í kosningaherferð
sinni hefur ríkisstjórn hans sagt að
stefnubreyting gagnvart Kúbu séu
ekki í forgangi.
Bandarískur erindreki sagði fyrir
atkvæðagreiðsluna í gær að Banda
ríkin myndu kjósa gegn ályktuninni
þar sem viðskiptabannið væri leið til
að stuðla að mannréttinda og lýð
ræðislegum umbótum á Kúbu. ■
Ríkisstjórn Bidens boðar ekki breytta
afstöðu Bandaríkjanna gegn Kúbu
Joe Biden Bandaríkjaforseti sagðist í
kosningaherferð sinni ætla að bæta
samskipti ríkjanna tveggja.
8 Fréttir 24. júní 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ