Fréttablaðið - 24.06.2021, Page 10
Ég ætla ekki að neita
því að ég hefði búist
við ögn málefnalegri
nálgun af ASÍ.
Birgir Jónsson, forstjóri Play.
Viðmælandi hjá sjóða-
stýringarfélagi sagði að
tilboð þess hefði verið
skert niður í 15 pró-
sent.”
Tveir sjóðir í rekstri Íslands-
sjóða, dótturfélags Íslands-
banka, eru einu íslensku verð-
bréfasjóðirnir í hópi tuttugu
stærstu hluthafa bankans.
Keppinautar í sjóðastýringu
segja óeðlilegt að félag tengt
bankanum hafi sætt minni
skerðingum en aðrir.
thorsteinn@frettabladid.is
Innlendir verðbréfasjóðir furða sig
á því hversu mikið Íslandssjóðir,
dótturfélag Íslandsbanka, fengu
úthlutað í hlutafjárútboði bankans.
Viðmælendur Fréttablaðsins sem
starfa við sjóðastýringu segja óeðli-
legt að gera upp á milli verðbréfa-
sjóða með því að skerða suma sjóði
minna en aðra.
Íslandsbanki birti í gær lista yfir
tuttugu stærstu hluthafa bankans.
Tveir sjóðir í rekstri Íslandssjóða; IS
EQUUS Hlutabréf og IS Hlutabréfa-
sjóðurinn, voru í þrettánda og fjór-
tánda sæti listans með 0,4 prósenta
hlut hvor. Enginn annar íslenskur
verðbréfasjóður var í hópi tuttugu
stærstu hluthafanna.
Samanlagður eignarhlutur upp
á 0,8 prósent þýðir að sjóðirnir
tveir fengu úthlutun upp á tæplega
1.300 milljónir króna. Það er mun
meiri úthlutun en til helstu keppi-
nauta Íslandssjóða í sjóðastýringu.
Athugun Fréttablaðsins leiddi í ljós
að önnur stór, innlend sjóðastýring-
arfélög fengu hver úthlutun á bilinu
250 til 500 milljónir.
Viðmælendur Fréttablaðsins leiða
líkur að því að tilboð sjóða á vegum
Íslandssjóða hafi verið skert mun
minna en tilboð annarra sjóða.
Einn viðmælandi sagði að tilboð
sjóðastýringarfélagsins sem hann
starfaði hjá hefði verið skert niður í
15 prósent.
Ef 15 prósenta skerðing er heim-
færð yfir á eignarhlut sjóða Íslands-
sjóða hefðu sjóðirnir tveir þurft að
leggja fram tilboð upp á samtals 8,7
milljarða króna til þess að fá 1.300
milljóna króna úthlutun. Saman-
lögð stærð sjóðanna tveggja er um
15 milljarðar króna.
Fréttablaðið hefur fengið stað-
fest að sjóðir á vegum Íslandssjóða
hafi ekki lagt fram tilboð af þeirri
stærðargráðu enda brýtur það í
bága við lög sem kveða á um að stök
verðbréfaeign megi ekki nema meira
en 35 prósentum af eignasafni verð-
bréfasjóðs. Tilboðin virðast því hafa
verið skert mun minna en tilboð
annarra sjóðastýringarfélaga.
„Þetta lítur óeðlilega út, sama
hvernig maður snýr þessu,“ sagði
einn af viðmælendum Fréttablaðs-
ins en þeir voru á einu máli. Óeðli-
legt væri að gera upp á milli verð-
bréfasjóða, sérstaklega þegar um
tengda aðila væri að ræða og sölu á
ríkiseign.
„Það er augljóslega verið að hygla
ákveðnum sjóðum. Við uppfylltum
öll skilyrðin: komum snemma inn
og sýndum áhuga, en fengum samt
bara litla úthlutun,“ sagði annar.
„Það er ekki falleg áferð á þessu.“
Fréttablaðið bar málið undir
Bankasýslu ríkisins, sem vísaði til
útboðslýsingarinnar fyrir útboð
Íslandsbanka. Þar kemur meðal
annars fram að úthlutuninni sé
háttað með kerfisbundnum hætti
en seljandinn áskilji sér þó fullan
rétt til að haga úthlutuninni að vild.
Af 20 stærstu hluthöfum Íslands-
banka voru níu erlend félög, en fyrir
lá að Capital World og RWC Asset
Management yrðu meðal svokall-
aðra hornsteinsfjárfesta bankans.
Capital World heldur á 3,8 prósenta
hlut og RWC 1,5 prósentum. Þriðji
stærsti erlendi sjóðurinn er Main-
first affiliated fund managers með
0,8 prósent, svo Silverpoint og Eaton
Vance með 0,6 prósent hvor.
Aðrir erlendir sjóðir meðal
stærstu hluthafa eru Frankling
Templeton Investment Manage-
ment, Premier Fund Managers, Fiera
Management og Schroder Invest-
ment Management.
Lífeyrissjóðirnir Gildi og Live
höfðu samþykkt að vera horn-
steinsfjárfestar í útboðinu og eru
því stærstir meðal íslenskra lífeyr-
issjóða með 2,3 prósenta hlut hvor.
Almenni lífeyrissjóðurinn (0,8 pró-
sent), Brú (0,5 prósent) og Stapi (0,4
prósent) fylgja þar á eftir meðal
íslenskra lífeyrissjóða.
Ríkissjóður er eftir útboðið enn
þá stærsti hluthafi bankans með
65 prósenta hlut. Frá því að bréf
bankans voru tekin til viðskipta í
fyrradag hefur gengi þeirra hækkað
um 25 prósent frá útboðsgenginu, úr
79 krónum í 99 krónur fyrir hlutinn.
Á fyrsta degi viðskipta nam velta
með bréf bankans meira en 5 millj-
örðum króna og í gær nam hún 1,7
milljörðum.
Í hlutafjárútboði Íslandsbanka
var níföld umframeftirspurn eftir
bréfum bankans og því ljóst að
skerða þurfti tilboð fjárfesta tölu-
vert. Tilboð undir einni milljón
króna voru hins vegar ekki skert.
Öll eignarhaldsfélög og fjársterkir
einstaklingar, sem skráðu sig fyrir
meira en 75 milljónum króna í
hlutafjárútboði Íslandsbanka, fengu
einungis úthlutun upp á eina millj-
ón króna.
Heildareftirspurn í hlutafjárút-
boði Íslandsbanka var samtals 486
milljarðar króna en að því gefnu að
valréttir til að mæta umframeftir-
spurn verði nýttir að fullu mun ríkið
fá 55,3 milljarða króna í sinn hlut
fyrir 35 prósenta hlut í bankanum. n
Vegleg úthlutun til Íslandssjóða sætir furðu
Í útboðinu var níföld umframeftirspurn og því ljóst að skerða þurfti tilboð fjárfesta töluvert. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
hordur@frettabladid.is
„Ósanngjörn“ gagnrýni Alþýðusam-
bands Íslands á launakjör flugverja
hjá Play gæti haft neikvæð áhrif á
þátttöku lífeyrissjóða í hlutafjárút-
boði flugfélagsins. Þetta sagði Birgir
Jónsson, forstjóri Play, í viðtals- og
fréttaþætti Markaðarins, sem var
sýndur á Hringbraut í gærkvöldi.
ASÍ sakaði Play opinberlega um að
undirbjóða laun starfsfólks til þess
að halda fargjöldum í lágmarki og
hvatti almenning til að sniðganga
flugfélagið.
„Ég ætla ekki að neita því að þetta
setur neikvæðan blæ á þetta útboð
og í rauninni rekstur félagsins, sem
mér finnst mjög ósanngjarnt. Það er
verið að búa til fleiri hundruð störf
í íslensku atvinnulífi, sem ekki er
vanþörf á,“ sagði Birgir og bætti við
að hann teldi ólíklegt að gagnrýnin
hefði á endanum skaðleg áhrif á
miðasölu félagsins eða útboðið sjálft.
„En þetta gæti vel orðið til þess að
einhverjir lífeyrissjóðir ákveði að
taka ekki þátt. Það er sorglegt vegna
þess að umræðan hefur leitt það í ljós
að þessi gagnrýni er ósanngjörn.“
Play stefnir á að selja 32 prósenta
hlut í félaginu og afla 33-36 milljóna
Bandaríkjadala, jafnvirði 4 til 4,4
milljarða króna, dagana 24. og 25.
júní, í aðdraganda skráningar á First
North-markað Kauphallarinnar.
Birgir benti á að í fyrsta sinn væru
kjör flugverja opinber eins og kjör
annarra stétta. „Núna er hægt að
leggja þessar tölur fram, eins og við
höfum gert, og þá sér hver maður
sem vill setja sig inn í þessi mál að
launin eru ekki undir neinum lág-
markslaunum eða út úr korti við
íslenskan veruleika.“
Þá sagði hann ljóst að ASÍ væri í
hagsmunagæslu fyrir aðildarfélag
sitt, Flugfreyjufélag Íslands. „Ég ber
virðingu fyrir því. Það er verið að
verja aðra samninga og önnur kjör
sem eru byggð á öðrum forsendum.
En ég ætla ekki að neita því að ég
hefði búist við ögn málefnalegri
nálgun af ASÍ. Þau hefðu kannski átt
að óska eftir fundum með Play eða
stéttarfélagi starfsmanna okkar,
áður en kallað var eftir sniðgöngu á
félaginu af hálfu fjárfesta og almenn-
ings.“ n
Gagnrýni ASÍ gæti fælt lífeyrissjóði frá útboði Play
Birgir Jónsson varð forstjóri Play í apríl. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
10 Fréttir 24. júní 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 24. júní 2021 FIMMTUDAGUR