Fréttablaðið - 24.06.2021, Síða 17
Það er ekkert náttúru-
lögmál að ríkisvæðing
takist svo illa.
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
Snemma á ferli þessarar ríkis
stjórnar var þáverandi dómsmála
ráðherra knúinn til að segja af sér
vegna stjórnarathafna sinna.
Að því tilviki frátöldu virðist
enginn ráðherranna hafa lent á
pólitískum hrakhólum með jafn
mörg verkefni eins og heilbrigðis
ráðherra.
Eigi að síður eru stjórnarflokk
arnir þrír sammála um að óska
nú eftir því við kjósendur að fá
umboð til að framlengja setu heil
brigðisráðherra. Það er traust, sem
ráðherra má vel við una.
Stóru fyrirheitin
Þegar ráðherrar taka við er eðlilegt
að þeir sýni þjóðinni að þeir vilji
„vanda sig frá upphafi í því, sem er
innanhandar að standa sig í.“
Án þess að í þessu ljósi sé lítið
gert úr öðrum ráðherrum ríkis
stjórnarinnar, setti enginn þeirra
sjálfan sig á hærri stall í byrjun en
heilbrigðisráðherra. Á þann mæli
kvarða er fall heilbrigðisráðherra
mest.
Lýsingar ráðherra fyrir síðustu
kosningar á vandamálum heil
brigðiskerfisins voru ófagrar.
Mörgum hefur því ugglaust létt
þegar ráðherrann steig fyrst fram
til að sannfæra þjóðina um að
enginn forveranna hefði haft jafn
mikinn metnað, jafn mikið þrek og
jafn mikinn kjark til þess að takast
á við vandamálin.
Ráðherrann sagði tæpitungu
laust að verkefnið væri að bjarga
heilbrigðiskerfinu frá langvinnri
vanrækslu og ásælni peningaafl
anna. Þannig byrjaði kjörtíma
bilið.
Einkavæðing
Þegar kom að síðastu stóru stjórn
arathöfn kjörtímabilsins, ákvað
heilbrigðisráðherra að einkavæða
hjúkrunarþjónustu fyrir aldraða á
Akureyri.
Það þarf ekki að vera óeðlilegt
þótt ráðherra hafi áður litið á það
sem erfðasynd. Spurningin snýst
fyrst og fremst um þær kröfur sem
gerðar eru til þjónustunnar og það
fjármagn sem fylgir til að uppfylla
þær.
Fremur langsótt er að ætla að
með þessu hafi ráðherra ætlað að
gulltryggja áframhaldandi sam
starf við Sjálfstæðisflokkinn.
Önnur skýring er nærtækari.
Metnaður, þrek og kjarkur ráð
herra hefur einfaldlega farið í
annað en að finna lausn á þeim
vanda hjúkrunarheimilanna sem
við blasti áður en ríkisstjórnin
tók við. Á síðustu stundu voru
kostirnir því bara tveir.
Annars vegar gat ráðherra
tekið verkefnið yfir til ríkisins frá
bænum og axlað beina ábyrgð á
uppsögnum og niðurskurði. Hins
vegar mátti bjóða þjónustuskerð
inguna út og kaupa þannig þrek og
kjark einkaaðila í það verk.
Einkaaðilinn ber þó ekki póli
tíska ábyrgð á niðurskurðinum.
Á hrakhólum
Það gerir heilbrigðisráðherra, sem
nú lýkur kjörtímabilinu á hrak
hólum með málið.
Ríkisvæðing
Biðlistarnir hafa lengst á kjörtíma
bilinu og vandinn á Landspítal
anum er svipaður og áður.
Metnaður, kjarkur og þor heil
brigðisráðherra hefur farið í að
ríkisvæða framkvæmd á skimun
fyrir krabbameinum. Krabba
meinsfélagið hafði það verkefni
með höndum í áratugi og lagði því
til nokkra tugi milljóna króna á
hverju ári.
Í sjálfu sér er ekkert óeðlilegt við
að ríkisvæða slíkt verkefni, þó að
brýn þörf til þess hafi ekki bein
línis blasað við.
Gallinn er bara sá að áður en
ákvörðun var tekin var ekkert
mat lagt á starfsemina eins og
hún var, engin ný markmið sett,
engin athugun gerð á því hvernig
verkefninu yrði best fyrir komið
eða hvar og enginn tími ætlaður
til að framkvæma svo viðkvæma
breytingu.
Árangurinn blasir við. Ekkert
opinbert verkefni hefur lent á
slíkum hrakhólum svo lengi sem
elstu menn muna.
Tugir þúsunda kvenna kalla
eftir endurnýjuðu trausti til þessa
mikilvægasta forvarnaverkefnis
íslenskrar heilbrigðisþjónustu.
Bergmál þagnarinnar
Það er ekkert náttúrulögmál að
ríkisvæðing takist svo illa.
Kannski sá ráðherrann bara
vannýttan starfskraft á Land
spítala og í heilsugæslu, sem aðrir
sáu ekki. Þar er sannarlega líka
hæft fólk. En hvers vegna öll þessi
ósköp, ef góðan vilja skorti ekki?
Líklegasta skýringin er sú að póli
tískar kreddur og valdhroki hafi ýtt
almennri skynsemi til hliðar bæði
við undirbúning ákvarðana og
framkvæmd þeirra. Hvort tveggja
veldur oft vandræðum.
Athyglisvert er að þessi tvö
dæmi sýna að heilbrigðisráðherra
hefur lent á jafn miklum hrak
hólum með ríkisvæðingu verkefna
og yfirfærslu þeirra til einkaaðila.
Heilbrigðisráðherra neitar nú
fjölmiðlum um viðtöl um hrak
hólamál sín. Bergmál þeirrar
þagnar virðist þó berast jafn langt
og ómur stóru orðanna í byrjun. n
Heilbrigðisráðherra
neitar nú fjölmiðlum
um viðtöl um hrak-
hólamál sín. Bergmál
þeirrar þagnar virðist
þó berast jafn langt og
ómur stóru orðanna í
byrjun.
Vörn sem virkar
Vertu í fríi
frá mýi
Mygga er áhrifarík mýflugnafæla sem veitir
allt að 9 klukkustunda vörn gegn flugnabiti.
Fæst á völdum
sölustöðum um land allt.
mygga.is
9,5% DEET sprey
2 ára & eldri
20% DEET roll-on
12 ára & eldri
50% DEET sprey
18 ára & eldri
After bite
Skoðun 17FIMMTUDAGUR 24. júní 2021