Fréttablaðið - 24.06.2021, Side 18
Hinsegin réttindi hafa aukist jafnt
og þétt víða um heim á síðustu
áratugum. Þótt við höfum til-
hneigingu til þess að hugsa um
réttindabaráttu hinsegin fólks
sem röð sístækkandi sigra, þá er
mikilvægt að við horfumst í augu
við að mannréttindabarátta er ekki
línulegt ferli. Reyndar hafa hættu-
merkin hrannast upp allt í kringum
okkur á síðustu árum, hættumerki
sem benda til bakslags í hinsegin
málefnum eftir tímabil framþró-
unar. Nýjasta dæmið kemur frá
Ungverjalandi.
Á dögunum voru sett lög í Ung-
verjalandi sem banna efni sem
sýnir hinsegin fólk í jákvæðu ljósi
og sem gæti mögulega komið fyrir
sjónir barna, allt frá fræðsluefni til
fjölmiðlaumfjöllunar. Lögin eru
reiðarslag fyrir hinsegin réttinda-
baráttu í landinu, þótt þau komi
engum sem fylgst hefur með þróun
mála á óvart. Ríkisstjórn Viktors
Orbán hefur nefnilega á undan-
förnum árum bundið í stjórnar-
sk rá bann v ið hjónaböndum
samkynja para og ættleiðingum,
afneitað tilvist transfólks með því
að banna breytingar á lagalegri
kynskráningu, og úthýst kynja-
fræði úr ungverskum háskólum.
Nú á svo að útrýma sýnileikanum,
sterkasta vopninu í baráttunni
gegn fordómum, með fyrirsjáan-
legum afleiðingum fyrir hinsegin
fólk í landinu.
Þróunin í Ungverjalandi er hluti
stærri bylgju. Mörg muna ef laust
eftir því þegar pólsk sveitarfélög
kepptust um að lýsa því yfir að þau
væru hinseginlaus svæði. Stjórnar-
f lokkur landsins rak á síðasta ári
grófa kosningabaráttu sem snerist
um að mála hinsegin fólk upp sem
ógn. Í þeirri herferð var pólskt
hinsegin fólk smættað niður í hug-
myndafræði sem þyrfti að úthýsa,
ekki ósvipað og ungversk stjórn-
völd gera nú tilraun til. Væntanlega
horfa andstæðingar hinsegin fólks
í báðum þessum löndum til Rúss-
lands sem fyrirmyndar, en þar voru
sett lög um bann við hinum svo-
kallaða hinsegin áróðri árið 2013.
Utan Evrópusambandsins, í Bret-
landi, hefur haturssamtökum tek-
ist að grafa undan trans réttindum
í landinu með heiftúðugri orðræðu
og málflutningi sem einkennist af
lygum. Þannig hafa þau náð að gera
andstöðu við réttindi transfólks
að viðtekinni skoðun meðal fjölda
fólks, með tilheyrandi fjölgun hat-
ursglæpa. Í nokkrum ríkja Banda-
ríkjanna hefur þessi samhæfða
árás á trans réttindi meðal annars
skilað sér í lögum sem banna trans-
stelpum að keppa í íþróttum með
öðrum stelpum, en eini tilgangur
slíkra laga virðist vera að valda hin-
segin börnum skaða.
Fólkið sem stendur að baki öllum
þessum atlögum að tilverurétti
hinsegin fólks, á það sammerkt að
gera það í nafni barnaverndar og
jafnvel kvenréttinda. Þau nýta sér
í öllum tilvikum ótta fólks við það
sem er öðruvísi til þess að troða
eigin afturhaldssemi upp á sam-
félögin sem þau stjórna, eða hafa
vettvang til að hafa áhrif á.
Breytingar í átt að afturhaldi
gerast ekki af sjálfu sér, heldur
er einbeittur ásetningur að baki.
Mannfjandsamlegum skoðunum
sem voru eitt sinn á jaðrinum er
skapað rými og verða viðurkennd-
ari í hvert sinn sem þær heyrast.
Þorri almennings missir hægt
en örugglega næmnina fyrir því
hvers konar málf lutning er í lagi
að viðhafa um fólk sem tilheyrir
tilteknum hópum. Þannig virkar
hatursáróður og þess vegna virkar
hann. Hópar hinsegin fólks eru
hægt og rólega afmennskaðir,
fólk er smættað niður í einhverja
óhlutstæða hugmyndafræði, ógn
við samfélagið. Manneskjurnar
sjálfar, samkenndin, frelsið og ástin
gleymast.
Til Íslands
Það er óumflýjanlegt að hatursfull
orðræða og hugmyndir f læði á milli
landa í sítengdum heimi nútímans.
Það er ekki síst í því samhengi sem
hinsegin fólk og raunar allt frjáls-
lynt fólk á Íslandi þarf að gæta þess
að sofna ekki á verðinum í hinsegin
málefnum. Í ljósi þróunarinnar í
kringum okkur er mikilvægt að
við séum meðvituð um að hinsegin
réttindi eru brothætt og þurfa öfl-
uga málsvara í öllum lögum sam-
félagsins. Það er nefnilega bakslag
í gangi, líka hér.
Í hvert sinn sem hinsegin fólk,
þá sérstaklega transfólk, er nefnt
í opinberri umræðu hér á Íslandi,
gleymir ákveðinn hópur sam-
kenndinni og mennskunni og rís
upp á afturfótunum. Hluti almenn-
ings gerir þannig rætið grín á sam-
félagsmiðlum og viðhefur jafn-
vel það sem f lokkast getur undir
hatursorðræðu, að því er virðist
algjörlega óháð því hvert eigin-
legt umræðuefni fréttanna er. Því
miður einskorðast þetta samfélags-
mein ekki við internetið, ákveðnar
útvarpsstöðvar eða einstaka kaffi-
stofur. Í fyrsta sinn í aldarfjórðung
er sumt stjórnmálafólk á Íslandi
farið að tala opinberlega gegn hin-
segin réttindum.
Ég ætla að vera algjörlega skýr:
Þetta er ekki eðlilegt ástand. Þetta
er ekki ásættanlegt ástand. Við
þurfum öll að hafna þessum mál-
flutningi af festu, spyrna við fótum
og minna fólkið í kringum okkur á
hvað er í lagi að segja um annað
fólk og hvað ekki. Það er nefnilega
alltaf einhver að hlusta og meðtaka,
sama hversu heimskuleg rökin
kunna að koma okkur fyrir sjónir.
Við skulum ekki leyfa andstöðu við
hinsegin réttindi að venjuvæðast á
okkar vakt. Reynsla annarra þjóða
sýnir okkur að það er ekki hægt
að þegja svona málf lutning í hel.
Jaðarskoðanir geta orðið að meiri-
hlutaáliti á ógnarhraða. Hinsegin
samstaða skiptir einnig gífurlegu
máli í þessu samhengi, því ef við
þegjum þegar einn hópur er tekinn
sérstaklega fyrir, er stutt í að næsti
hópur fái sömu meðferð. Bakslagið
er nefnilega lúmskt.
Við í Samtökunum ’78 munum
halda áfram að tala fyrir ást, frelsi
og opnu samfélagi. Við munum
halda áfram að fræða fólk um fjöl-
breytileika mannlífsins, svo óttinn
verði ekki skynseminni yfirsterk-
ari. Við munum halda áfram að
hvetja fólk til þess að leggja okkur
lið í baráttunni fyrir heimi þar sem
öll fá að njóta sín á eigin forsend-
um, hvort sem það er í Ungverja-
landi eða á Íslandi. Látum hættu-
merkin verða okkur hvatning til
þess að gera enn betur. n
Hættumerki
Þorbjörg
Þorvaldsdóttir
formaður
Samtakanna ’78.
Albert Einstein, sennilega mesti
hugsuður og snillingur seinni tíma,
sagði eitt sinn þetta: „Insanity is
doing the same thing over and over
and expecting different results.“
Þetta má lauslega leggja út á
þennan hátt: Sá, sem endurtekur
eða gerir það sama aftur og aftur
og reiknar með annarri eða breyti-
legri niðurstöðu, er klikkaður eða
brjálaður.
Þetta dettur mér í hug nú, þegar
ég heyri Katrínu Jakobsdóttur og
aðra Vinstri græna tala fjálglega
um það að fara aftur í sömu ríkis-
stjórn, sama ríkisstjórnarsamstarf-
ið, eftir kosningar, ef úrslit leyfa.
Hefur Katrín blessuð og þetta,
annars á ýmsan hátt ágæta fólk,
virkilega ekkert skilið og ekkert
lært síðustu 4 árin?
Gerir það sér enga grein fyrir því,
hvílík hörmungarganga þetta ríkis-
stjórnarsamstarf hefur verið fyrir
Vinstri græna og hvílík sneypuför
þetta í raun er?
Eða, heldur það kannske, að það
geti bara klórað yfir stórfellt árang-
Eru forustumenn Vinstri grænna klikkaðir eða brjálaðir?
Ole Anton
Bieltvedt
formaður
Jarðarvina.
Betri svefn með Lín Design
Betri svefn með Lín Design
Betri svefn
með Lín Design
www.lindesign.is
ursleysið, hvað varðar stefnu- og
baráttumál Vinstri grænna, og látið
eins og uppgjöf og ósigur, nánast
yfir alla málefnalínuna, sé í raun
sigurganga og f lottur árangur?
Hvalveiðar
„Landsfundur Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs, haldinn
á Selfossi 23.-25. október 2015,
leggst eindregið gegn hvalveiðum
við Íslandsstrendur. Við veiðarnar
er beitt ómannúðlegum veiðiað-
ferðum til að viðhalda áhugamáli
örfárra útgerðarmanna. Háum
upphæðum af opinberu fé hefur
verið kastað á glæ til að styrkja
þessa áhugamenn um hvalveiðar.
Nú er mál að linni.“
Meðal annars út á þetta stefnu-
og meint baráttumál Vinstr i
grænna studdu náttúru- og dýra-
verndunarsinnar f lokkinn í kosn-
ingunum 2017.
En, ef að líkum lætur, voru
Vinstri grænir reknir öfugir til baka
með þetta baráttumál sitt í samn-
ingunum um stjórnarsamstarfið.
Sjálfstæðismenn og Framsókn
hafa verið heldur lítið fyrir dýra- og
náttúruvernd; láta ekki einhverja
sósíalista eða komma vaða uppi
með slík mál, hvað sem stjórnar-
sáttmálum viðvíkur.
Vinstri græn létu væntanlega
þessi svik við sjálf sig góð heita,
gegn loforði D og B um framgang
annarra mála, svo sem þjóðgarðs,
aukinnar verndar villtra dýra og
fugla, svo að ekki sé talað um nýju
stjórnarskrána og loftslagsvernd.
Við verðum að vera tilbúin í
málamiðlun til að komast í stólana,
hefur Katrín væntanlega hugsað og
sagt. Aðrir kalla slíkt hrossakaup.
Þjóðgarður
Í stjórnarsáttmála stendur meðal
annars: „Stofnaður verði þjóðgarður
á miðhálendinu“. Þetta hefðu Vinstri
grænir kannske átt að fá fyrir að gefa
eftir hvalafriðun. En fengu þau það?
NEI. Hér virðast D og B hafa hlaupist
undan merkjum, beitt undanbrögð-
um, þegar á reyndi.
Annað mál er það, að í f lestum
löndum – alla vega þar sem nokkur
menning ríkir og menn eru með
alvöru ráðstafanir – er þjóðgarður
friðað svæði fyrir öll dýr sem þar
búa, og allt lífríki svæðisins. En, hér
átti bara að friða „urð og grjót“; öll
dýrin voru ekki með.
Dýravernd
„Endurskoða þar f löggjöf um
vernd, friðun og veiðar á villtum
fuglum og spendýrum,“ segir í
stjórnarsáttmála.
Kannske var þetta líka hluti af
hrossakaupum. En stóðst þetta
atriði þá? NEI, aldeilis ekki. Komst
aldrei úr nefnd.
Stjórnarskráin
„Ríkisstjórnin vill halda áfram
heildarendurskoðun stjórnar-
skrárinnar...“ segir líka í stjórnar-
sáttmála. Náðist þetta miklivæga
atriði í stjórnarsáttmála þá fram?
NEI. Sama saga.
Hér fóru D og B undan í f læmingi,
og sat formaður Vinstri grænna/
forsætisráðherra, uppi með frum-
varp, sem „samherjar“ vildu ekki
sjá eða heyra og varð að engu. Hví-
lík sneypa.
Loftslagsvernd
Vinstri grænir hafa talað mikið
um sinn frábæra árangur í þessari
ríkisstjórn í loftslagsvernd. Í huga
undirritaðs orkar það ekki tvímæl-
is, að hér vildu Vinstri grænir gera
vel, en því miður verður ekki undir
það tekið, að svo hafi raunin orðið.
10. september 2018 boðaði ríkis-
stjórnin til blaðamannafundar,
þar sem ekki mættu færri en 7 ráð-
herrar, og þóttust nú bæði D og B
allt í einu vera orðnir grænir. Víst
kunna þeir að hafa verið orðnir
það, en í annarri merkingu orðsins.
6.8 milljarða skyldi setja í aðgerðir
í loftslagsmálum, næstu fimm árin.
1,3 milljarða á ári. Auðvitað var þetta
gott mál, allt er betra en ekkert, en
það vildi svo til, að sömu daga og rík-
isstjórnin blés í sína lúðra með þetta
mál, voru fréttir í gangi með það, að
setja ætti 120 milljarða í flugstöð í
Keflavík á næstu árum.
Auðvitað var það þetta fínt átak
með f lugstöðina, gott innlegg í
ferðaþjónustuna, en lítið varð úr
„stórfelldu átaki“ ríkisstjórnar í
loftslagsmálum, þegar þessi átök
og fjárfestingar eru borin saman.
18-falt meira skyldi fara í f lug-
stöð, en í að tryggja landsmönnum
minni mengun, hreinna loft og
betri lífsskilyrði.
Í raun og veru var og er það með
algjörum ólíkindum, að Katrín Jak-
obsdóttir skyldi láta sér detta í hug
að hún fengi einhverjum stefnu-
málum Vinstri grænna framgengt
í samstarfi við Bjarna Benedikts-
son og Sigurð Inga, eins og ofan-
nefnd dæmi sýna, og það, að hún
sé nú tilbúin til að endurtaka þetta
samstarf, með væntingar um betri
árangur, er, samkvæmt Einstein,
hrein klikkun eða brjálæði.n
Við í Samtökunum ’78
munum halda áfram
að tala fyrir ást, frelsi
og opnu samfélagi.
Við munum halda
áfram að fræða fólk um
fjölbreytileika mann-
lífsins, svo óttinn verði
ekki skynseminni yfir-
sterkari.
Hefur Katrín blessuð
og þetta, annars á
ýmsan hátt ágæta fólk,
virkilega ekkert skilið
og ekkert lært síðustu
4 árin?
18 Skoðun 24. júní 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ