Fréttablaðið - 24.06.2021, Side 20
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Auður Marín lauk fyrsta árinu sínu
í Háskólanum í Reykjavík í vor en
hún leggur stund á nám í hagfræði
og stjórnun. En í framtíðinni sér
hún fyrir sér einhvers konar starf
með fólki.
„Ég hef alltaf haft áhuga á við
skiptum og ég er frekar mannauðs
megin í minni viðskiptahugsun. Ég
var á viðskiptabraut í framhalds
skóla. Það var alltaf stefnan að læra
viðskiptafræði en svo færðist ég í
átt að hagfræðinni og mannauðs
málum.“
Tengt áhuganum á mannauðs
málum og að vinna með fólki,
kemur áhuginn á viðburða
stjórnun, sem Auður Marín
fær útrás fyrir í starfi sínu fyrir
heimildamyndahátíðina IceDocs á
Akranesi.
„Ég er umsjónarmaður gesta. Ég
sé um flugferðir þeirra sem koma
að utan og sé um gistingu. Ég er
líka með allar upplýsingar um
Akranes og hátíðina sjálfa fyrir
gestina. Ég sé um að gestunum
líði eins og þeir séu velkomnir og
það sé tekið vel á móti þeim,“ segir
Auður Marín.
„Mér finnst mjög gaman að
vinna við þetta. Það gefur mér
góða reynslu. Mér finnst gaman að
vinna með fólki og redda hlutum.
Að hafa umsjón með einhverju,
vera til staðar fyrir fólk og vera
kunnuglegt andlit fyrir gestina.“
Lærði dans hjá pabba sínum
Auður Marín er að hluta alin upp
á Akranesi og móðurfjölskyldan
hennar er þaðan, svo hún er ekki
ókunnug staðnum.
„Ég bjó á Akranesi í 10 ár þegar
ég var í grunnskóla og Ingibjörg
Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri
IceDocs, er frænka mín. Ég hafði
rætt við hana um áhuga minn á
viðburðastjórnun, svo þess vegna
hafði hún mig í huga í sambandi
við hátíðina og gaf mér tækifæri til
að finna smjörþefinn af starfinu.
Hún hefur líka hjálpað mér að
komast inn í viðburði í dansheim
inum,“ segir Auður, sem hefur
dansað frá unga aldri.
„Pabbi minn var danskennari
og hann kenndi mér grunninn í
samkvæmisdönsum, en ég æfði þá
aldrei. Ég fór svo út í street jazz og
var mikið í því sem krakki. Ég fór
svo að kenna í Dansstúdíói á Akra
nesi á meðan ég bjó þar. Ég hélt svo
áfram að æfa svipaðan dans þegar
ég varð eldri og flutti í bæinn,“
segir hún.
Auður tók sér svo smá hlé frá
dansæfingum en byrjaði aftur í
haust.
„Þá fór ég meira út í svona stelpu
dans, eða kvendans. Ég dansa á
Auður á marga
kjóla og á
sumrin notar
hún hvert tæki-
færi sem gefst
til að klæðast
þeim. MYND/
AÐSEND
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun
@frettabladid.is
hælum. Ég er svolítið að læra inn á
líkamann og að tjá mig með hreyf
ingu og verða örugg í líkamanum,“
útskýrir hún.
Fylgir ekki bylgjum
Auður Marín segist pæla mikið í
tísku en í streetdansinum klæðist
hún bara þeim fötum sem hún
getur hreyft sig í og finnst þægileg.
„Það eru aðallega íþróttaföt og
eitthvað vítt. Þegar við sýnum þá
höfum við fengið boli til að vera í.
Það eru ekki svona strangar reglur
um klæðaburð í streetdansi eins
og í samkvæmisdansi,“ segir Auður
Marín.
„En þegar ég pæli í fötum þá er
ég ekki mikið að fylgja bylgjum.
Ég verð auðvitað fyrir áhrifum frá
öðrum og fylgist aðeins með, en
ég klæði mig samt bara í það sem
mér finnst flott. Ég klæðist því sem
gleður mig og því sem mér líður vel
í. Mér er sama hvað öðrum finnst,
ef mér líður vel og finnst ég vera
flott, þá fylgi ég því.“
Auður segir að gallabuxur séu
alltaf í uppáhaldi hjá henni en
henni finnst gott að eiga gallabux
ur í nokkrum litum, helst bláar eða
svartar og svo nokkra mismunandi
boli til að klæðast við þær.
„En ég er líka mikil stelpu
stelpa, þannig að ég er mjög hrifin
af kjólum. Á sumrin reyni ég að
vera eins mikið í kjólum og ég
get. Uppáhaldsflíkin mín er kjóll
frá Tommy Hilfiger, hann knúsar
svolítið líkamann,“ segir Auður og
bætir við að þessa dagana versli
hún mest hér heima á Íslandi, en
henni finnist samt mjög gaman að
fara í verslunarferðir til útlanda.
„Þá leita ég oft að flík jafnvel í
einhverjum merkjum. Mér finnst
gaman að eiga eina og eina mjög
góða flík sem passar við margt
og maður getur átt lengi. Ég er þá
aðallega að hugsa um gæðin. En
annars versla ég eiginlega bara í
hvaða búð sem er, ef ég finn eitt
hvað sem mér finnst flott. Ég held
ég hafi klárlega verslað í f lestum
helstu fataverslunum hérlendis.“ ■
2 kynningarblað A L LT 24. júní 2021 FIMMTUDAGUR