Fréttablaðið - 24.06.2021, Page 22
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria
@frettabladid.is
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
Fylgið okkur á FB
TILBOÐSDAGAR
AF VÖLDUM VÖRUM
20%
afsláttur
SKOÐIÐ LAXDAL .IS
Undanfarin ár virðist stór-
leikkonan Diane Keaton
hafa tekið sérstöku ást-
fóstri við ákveðið, klassískt
mynstur sem hefur birst æ
meira í fatnaði hennar.
Diane Keaton er ein af allra ást-
sælustu leikkonum hvíta tjaldsins
og hefur komið fram í stór-
myndum eins og Guðföðurnum,
Reds, Somethings’s Gotta Give og
Marvin‘s Room.
Kvikmyndaleikstjórinn Woody
Allen hefur nefnt Keaton sem eina
af sínum mikilvægustu skáldgyðj-
um á fyrri hluta ferils síns. Þá lék
hún fjölda hlutverka í kvikmynd-
um Allens eins og Annie Hall,
Sleeper, Love and Death, Interiors,
Manhattan, Manhattan Murder
Mystery og Play it Again, Sam.
Þessi hæfileikaríka leikkona hefur
unnið Óskarsverðlaun, BAFTA, tvo
gullna hnetti (e. Golden Globe) og
AFI Life Achievement Award.
Einstakur fatastíll
Þessi 75 ára hæfileikakona er ekki
bara flink leikkona heldur getur
hún víst líka sungið og er frábær
ljósmyndari. Diane Keaton vekur
einnig athygli hvert sem hún fer
fyrir sinn einstaka fatastíl, sem
einkennist af höttum, rúllukraga-
peysum, hlutlausri litapallettu og
hinu óviðjafnanlega, glaðlega brosi
sem hún virðist alltaf setja upp í
upphafi hvers dags.
Þá hefur hún sjálf sagt að hún
nýti sér ekki stílista eins og flestar
Köflótta skáldgyðjan
Keaton er hér stödd á frumsýningu Poms á Regal LA Live í Los Angeles í maí 2019. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Diane Keaton
heimsótti spjall
þáttastjórn
andann Jimmy
Fallon sem
stýrir þáttunum
The Tonight
Show Starring
Jimmy Fallon, í
apríl 2014.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Keaton gengur hér rauða dregilinn
á 62. David Di Donatello verðlauna
athöfninni í mars 2018 í Róm.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Diane Keaton mætti á frumsýningu
Green Eggs and Ham á vegum Net
flixsamsteypunnar, sem haldin
var í Hollywood American Legion í
nóvember 2019.
Keaton situr hér fyrir baksviðs á söngleiknum Dear Evan Hansen með
leikaranum Roman Banks, sem lék titilhlutverkið í The Music Box Theatre á
Broadway í september 2019. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Hollywoodstjörnur. Hún hefur
þróað með sér algerlega tímalaus-
an stíl sem er fullkomlega einstak-
ur fyrir hana eina. Þrátt fyrir að
hún vinni mest með hlutlausa liti
eins og svartan, hvítan og drapp-
aðan eru formin og mynstrin langt
frá því að vera hlutlaus. Stór belti,
áberandi mynstur, stór og mikil
pils er eitthvað sem oft má sjá í
fatastíl Keaton.
Upp á síðkastið hefur svo sífellt
borið meira á köflóttu mynstri hjá
gyðjunni. Hvort sem um er að ræða
heilu dragtirnar, jakka, pils, buxur
eða eina litla andlitsgrímu, þá má
yfirleitt spotta eitthvað í hennar
fari sem er köflótt, og þá oftast
með svarthvítum köflum. ■
4 kynningarblað A L LT 24. júní 2021 FIMMTUDAGUR