Fréttablaðið - 24.06.2021, Page 34
Fallegt hár var aðalsmerki
frú Sveinbjargar Steinþórs
dóttur í Hveragerði, en
húðsjúkdómurinn psoriasis í
hársverði varð til þess að hár
hennar lét mikið á sjá. Í dag
hefur hún endurheimt fallegt
hár sitt með Nourkrin, bæti
efninu sem eykur hárvöxt og
stöðvar hárlos.
„Hárið var mín aðalprýði á árum
áður og þá er sérstaklega sárt þegar
maður fer að missa hárið. Ég var
alltaf með þykkt, gott og sjálfliðað
hár og var iðulega talað um hversu
gott væri að eiga við hár mitt á hár-
greiðslustofum,“ segir frú Svein-
björg Steinþórsdóttir í Hveragerði.
Sveinbjörg greindist með húð-
sjúkdóminn psoriasis fyrir sextán
árum.
„Það kom niður á hársverðinum
og hafði frekar sorglegar afleiðingar
því ég missti mikið af hárinu. Það
endurtók sig nokkrum sinnum og
ekki bætti úr skák þegar ég var sett
á líftæknilyf við psoriasis, því auka-
verkun lyfsins var mikið hárlos. Ég
hef síðan reynt að fá mig góða, en
það var ekki fyrr en með Nourkrin-
bætiefninu sem hárið tók við sér,“
greinir Sveinbjörg frá.
Hún hefur nú tekið inn Nourkrin
í rúmt ár.
„Ég komst á snoðir um Nour krin
þegar ég sá vöruna í apóteki og
hafði þá lesið umfjöllun um góðan
árangur þess hjá konu sem hafði
glímt við mikið hárlos og hár-
missi. Þegar ég sá að Ísam auglýsti
eftir þátttakendum í prófanir á
Nourkrin ákvað ég að stökkva til
og sækja um. Prófanirnar stóðu yfir
í eitt ár og teknar voru myndir af
okkur í upphafi og svo eftir nokkra
mánuði,“ upplýsir Sveinbjörg.
Mælir heils hugar með Nourkin
Eftir rúmlega eins árs inntöku á
Nourkrin-bætiefninu, hefur Svein-
björg endurheimt ræktarlegt og
fallegt hár sitt.
„Ég er virkilega ánægð með
árangurinn og tek mínar tvær
töflur af Nourkrin hvern einasta
dag. Nourkrin-sjampó og -hár-
næring eru líka mjög góð og ég er
sannfærð um að það tvennt hjálpar
líka til. Ég hef fengið mikinn bata og
breytingin er mikil: Hárið er orðið
miklu bragglegra, hárlosið mun
minna og hárvöxturinn meiri, eins
og hárgreiðslukonan mín hefur líka
séð og hvatt mig til að halda áfram
að taka inn Nourkrin, sem ég mun
svo sannarlega gera,“ segir Svein-
björg kát.
Hún mælir með Nourkrin af
heilum hug.
„Margir hafa á orði við mig hvað
hárið hafi tekið miklum breyt-
ingum. Ég er jú orðin 76 ára og hárið
getur þynnst með árunum, en ég
get ekki skrifað hárlosið á aldurinn.
Það er svo langt síðan það byrjaði
og ég gat fljótt sett samansemmerki
á exemið í hársverðinum, því þegar
ég reyndi að ná því í burtu þá vildi
hárið fara með.“
Fann ástina á rúntinum
Sveinbjörg er fædd og uppalin í
Reykjavík en hefur lengst af búið í
Hveragerði.
„Ég var sumarbústaðarkrakki í
Hveragerði þar sem foreldrar mínir
áttu bústað. Mamma átti rætur
að rekja hingað austur, amma
mín var landnemi í Hveragerði og
systkini mömmu ílengdust öll hér
og unnu í garðyrkjunni. Á árunum í
Versló fékk ég mér svo sumarvinnu
á heilsuhælinu og kynntist þá
mannsefninu, Frank Michelsen, á
sólbjörtu sumarkvöldi á rúntinum,
giftist hingað og bjó í Hveragerði frá
1965 til 1981. Þá fluttum við hjónin
til Reykjavíkur, en þegar maðurinn
minn dó 1998 hafði ég tekið
ákvörðun um að flytja aftur austur
í rólegheitin,“ segir Sveinbjörg, sem
hafði þá lært til sjúkraliða og vann
bæði á heilsuhælinu og elliheimil-
inu, en þrír synir þeirra Franks og
fjölskyldur búa öll í Reykjavík.
„Frank var elsti sonur Pauls
Michelsen garðyrkjumanns. Hann
lærði sjálfur garðyrkju í Reykjaskóla
og Danmörku og rak blómaskálann
með pabba sínum, en margir komu
þangað til að sjá apana og fagurt
blómaskrúð. Hér á ég stóran frænd-
garð og vinahóp síðan í gamla daga
og uni hag mínum vel. Það er yndis-
legt að vera hérna.“ ■
Góð tilfinning að fá heilbrigt hár með Nourkrin
Sveinbjörg hefur endurheimt hár sitt með hjálp Nourkrin. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIRSveinbjörg, 2. desember 2020.
Sveinbjörg í upphafi prófanna.
Hárið eftir tvo mánuði af Nourkrin.
Rannsóknir sýna að Nour
krin bætiefnið vinnur gegn
hárlosi og stuðlar að eðlileg
um hárvaxtarhring. Hárlos
getur haft ýmsar orsakir en
Nourkrin nærir hársekkina
svo þeir geti viðhaldið eðli
legum hárvaxtarhring.
Hár er mikilvægur partur af útliti
okkar og sjálfstrausti. Þetta kemur
enn frekar fram þegar upp koma
hárvandamál eða hármissir og
þá gera sérstaklega konur sér enn
frekar grein fyrir mikilvægi hársins.
Hárvandamál eru algeng en talað
er um að allt að 60 prósent kvenna
upplifi óeðlilega mikið hárlos
einhvern tíma á lífsleiðinni. Oft er
þetta mikið feimnismál og því lítið
rætt og reynt að láta sem minnst á
því bera. Það er því gaman að geta
sagt frá Nourkrin hárbætiefninu,
sem hægt er að sýna með klínískum
rannsóknum að virki.
Byltingarkennt bætiefni
Eðlileg hringrás hárvaxtar
líkamans kallast hárvaxtarhringur.
Í eðlilegum hárvaxtarhring eru
85-90% háranna á vaxtarstigi á
meðan 10-15% þeirra eru á hvíldar-
stigi eftir að hafa náð fullum vexti.
Þegar hárlos á sér stað brenglast
hinn hefðbundni hárvaxtarhringur
vegna þess að hársekkirnir fá
ekki réttu næringarefnin. Helstu
ástæður hárloss eru meðal annars
stress, veikindi, sykursýki, lyf,
reykingar, meðganga, fæðing, hár-
meðhöndlun og fleira.
Nourkrin hárbætiefni fyrir
konur og karlmenn hefur verið selt
á Íslandi síðan 2018, en verið til á
heimsvísu síðan 1986 og er marg-
verðlaunað hárbætiefni, það vin-
sælasta í Bretlandi. Nourkrin hár-
bætiefnið er 100% lyfjalaust og eina
hárbætiefnið sem byggir á fjölda
klínískra rannsókna sem birtar
hafa verið í ritrýndum vísindatíma-
ritum. Nourkrin inniheldur hið
byltingarkennda Marilex bæti-
efni sem er einkaleyfisvarið efni,
unnið úr þykkni úr fiskbeinum og
inniheldur rétt hlutfall af svoköll-
uðum próteóglýk önum, sem næra
hársekkina svo þeir geti viðhaldið
eðlilegum hárvaxtarhring.
Nourkrin er algjörlega öruggt
og allir mega nota það, nema
þeir sem hafa ofnæmi fyrir fiski
og skelfiski, þar á meðal ófrískar
konur og konur með barn á brjósti.
Hefðbundin meðferð er tvær töflur
daglega í sex mánuði. Ástæðan
fyrir lengd meðferðarinnar er sú að
það tekur hárvaxtarhringinn sex
mánuði að ná jafnvægi. Hársekk-
irnir geta verið á misjöfnum stað í
sínum hring þegar meðferð hefst og
því tekur þetta þennan tíma.
Góður árangur í prófun
Í júní 2020 var farið af stað með
prófanir á Nourkrin á Íslandi.
Sextán einstaklingar á aldrinum
26-75 ára, fimmtán konur og einn
karlmaður, voru valin til að prófa
vöruna í sex mánuði. Meðalaldur
þátttakenda var 50 ár. Ástæður
hárloss hjá þátttakendum voru
misjafnar en flest höfðu glímt við
hárlos í töluverðan tíma og prófað
margt til að minnka það. Niður-
stöður rannsóknarinnar voru mjög
ánægjulegar og sýndu að allir þátt-
takendur fundu mun á hárinu eftir
að hafa tekið inn Nourkrin.
Helstu ástæður hárloss þátt-
takenda í rannsókninni voru:
■ Vanvirkur skjaldkirtill
■ Sjálfsofnæmi (Alopecia)
■ Legslímuflakk
■ Sykursýki 2
■ Skortur á B12
■ Psoriasis, psoriasis gigt
■ Lyf
■ Álag, stress í kjölfar veikinda,
dauðsfalla eða annarra persónu-
legra ástæðna
Nourkrin fæst í öllum helstu apó-
tekum. ■
Nánari upplýsingar á isam.is/
nourkrin
Nourkrin virkar vel gegn hárlosi
Nourkrin-bætiefnið hentar öllum kynjum. MYND/AÐSEND
12 kynningarblað 24. júní 2021 FIMMTUDAGURHÚÐ OG HÁR