Fréttablaðið - 24.06.2021, Page 40
20 Íþróttir 24. júní 2021 FIMMTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 24. júní 2021 FIMMTUDAGUR
Það fjölgaði í hópi þeirra
íslensku fótboltaþjálfara
sem munu starfa erlendis,
þegar Freyr Alexandersson
var ráðinn þjálfari Lyngby á
dögunum. Freyr er spenntur
fyrir komandi áskorunum hjá
þessu rótgróna félagi.
hjorvaro@frettabladid.is
FÓTBOLTI Freyr Alexandersson var
fyrr í vikunni ráðinn þjálfari danska
B-deildarliðsins Lyngby, en liðið féll
úr efstu deild á síðasta keppnistíma-
bili.
Freyr sem hætti störfum sem
aðstoðarmaður Heimis Hallgríms-
sonar hjá Al Arabi í Katar í vor, segir
rúma viku vera síðan viðræður fóru
af stað við forráðamenn danska
félagsins.
„Þeir höfðu fyrst samband við
mig fyrir rúmri viku og ég fékk strax
góða tilfinningu fyrir þessu. Eftir
að hafa hitt stjórnina, yfirmann
knattspynumála og annað starfs-
fólk í félaginu, var ég mjög fljótlega
viss um að ég vildi taka þetta starf
að mér.
Það sem heillaði mig mest er hvað
þeir höfðu ekki síður mikinn áhuga
á að kynnast mér sem manneskju og
þeirri hugmyndafræði sem ég hafði
til brunns að bera hvað þjálfun og
stjórnun almennt varðar,“ segir
Freyr um ráðningarferlið.
„Þetta er rótgróið félag í bæ í
útjaðri Kaupmannahafnar og það
er mikil nostalgía sem fylgir því að
labba um félagshúsið, æfingasvæðið
og leikvanginn, sem tekur um það
bil 10.000 manns í sæti.
Aðstæður eru til fyrirmyndar
hérna og það er til að mynda nýtt
undirlag á vellinum, þó svo að stúk-
an við völlinn sé komin til ára sinna.
Það er á teikniborðinu að byggja
nýjan völl og spennandi tímar fram
undan hjá félaginu,“ segir hann.
„Það má kannski segja að þetta
sé að mörgu leyti eins og Leiknir,
bara af allt annarri stærðargráðu
hvað umgjörð varðar. Þetta er félag
sem vill vera á meðal 16 bestu félaga
Danmerkur, er með gott unglinga-
starf sem hefur skilað af sér frábær-
um leikmönnum í gegnum tíðina og
er með skýra framtíðarsýn.
Þetta er félag sem er með lítið
fjármagn miðað við félögin í efstu
deildinni, er með f járhagslega
umgjörð á pari við fimm stærstu
félögin í B-deildinni. Félagið er því
ekkert hrætt við að gefa það út að
stefnan er að fara upp á næsta tíma-
bili, en himinn og jörð munu ekki
farast ef það tekst ekki.
Það er að segja, metnaðurinn
er að sjálfsögðu til þess að komast
strax aftur upp í efstu deild, en
félagið er hins vegar með langtíma-
markmið og mun ekki spenna bog-
ann í hæstu hæðir til þess að fara
upp í fyrstu atrennu hjá mér,“ segir
Freyr um starfsumhverfið.
Vilja spila ákveðinn leikstíl
„Ég er að ganga inn í það þjálfara-
og starfsteymi sem var til staðar í
kringum liðið, sem er bara hið besta
mál. Ég viðurkenni það alveg að ég
var með í huga að fá mér íslenska
þjálfara í verkefnið, en eftir að hafa
hitt teymið hérna líst mér mjög vel
á samstarfið við það.
Teymið í kringum mig saman-
stendur af einstaklingum á mínum
aldri, það er frá þrítugu og upp í
tæplega fertugt, sem eru mjög vilj-
ugir að sanna sig, eru metnaðar-
fullir og þekkja gildi félagsins vel.
Ég er því mjög spenntur fyrir því að
vinna með þeim.
Leikmannahópurinn er alfarið
danskur auk íslenska Danans, Fred-
eriks Schram, og þetta eru ungir og
metnaðarfullir leikmenn sem vilja
ná lengra en að spila i dönsku B-
deildinni.
Þetta er félag sem vill spila
skemmtilegan sóknarfótbolta á háu
orkustigi og það passar vel við mína
hugmyndafræði, þar sem ég legg
auðvitað einnig upp með skipulagi
og aga í varnarvinnu.
Planið er að víkka sjóndeildar-
hringinn hvað það varðar að ná í
leikmenn á næstu árum og mér líst
bara vel á það. Þetta er hins vegar
félag sem leggur upp með að gefa
þeim leikmönnum sem alast upp hjá
akademíunni traust og við munum
ekki hverfa frá þeirri stefnu.
Nú er bara að rifja upp mennta-
skóladönskuna og þá dönsku sem
ég lærði þegar ég bjó í Kaupmanna-
höfn fyrir um það til 20 árum síðan
og hefja vinnuna,“ segir þjálfarinn
um framhaldið. ■
Félag með skýra stefnu til framtíðar
Freyr segist sjá líkindi með Lyngby og uppeldisfélagi sínu, Leikni, sem hann stýrði um tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/AÐSEND
Félagið er því ekkert
hrætt við að gefa það
út að stefnan er að fara
upp á næsta tímabili
en himinn og jörð
munu ekki farast ef
það tekst ekki.
Freyr
Alexandersson.
hjorvaro@frettabladid.is
SKÁK Jóhanna Björg Jóhanns-
dóttir og Lenka Ptácníková munu
í dag tefla um Íslandsmeistaratitil
kvenna í skák, en þær voru jafnar
þegar keppt var á Íslandsmótinu um
miðjan mánuð. Jóhanna og Lenka
voru í sérflokki á meðal keppenda
á Íslandsmótinu en þegar þær mætt-
ust í lokaumferðinni höfðu þær
unnið allar sínar skákir á mótinu.
Í lokaumferðinni skildu þær svo
jafnar og þar af leiðandi þarf bráða-
bana til þess að knýja fram úrslit. Í
byrjun júní varð Jóhanna Íslands-
meistari kvenna í hraðskák, en þar
hafði hún betur gegn Guðlaugu Þor-
steinsdóttur í úrslitum. Hún getur
með sigri í dag orðið Íslandsmeistari
í klassískri skák í fyrsta sinn.
Jóhanna Björg segir ákveðinn
vendipunkt hafa orðið á skákferl-
inum árið 2019. Þá hafi hún tekið
ákvörðun um að leggja frekari rækt
við taf lmennskuna og sett stefn-
una á að komast í landsliðið fyrir
Ólympíumótið sem fram átti að fara
í Rússlandi á síðasta ári.
„Ég ákvað að setja undir mig
hausinn, tefla meira og markmiðið
var að komast í landsliðið sem átti
að fara til Rússlands í fyrra. Til þess
nýtti ég mér töluvert hluti úr námi
mínu í sálfræði. Það er að segja að
hætta að finna ávallt afsakanir fyrir
töpum á skákborðinu, læra frekar af
töpunum og sjá hvað ég get bætt.
Ég tef ldi umtalsvert meira árið
2019 en ég hafði gert árin á undan
og 2020 átti að vera árið þar sem
ég myndi uppskera laun erfiðisins.
Það fór eins og það fór út af kóróna-
veiru faraldrinum, en ég frestaði bara
þeim markmiðum sem ég hafði sett
mér og nú stefni ég að því að komast
í landsliðið fyrir EM landsliða síðar á
þessu ári,“ segir Jóhanna.
„Andstæðingur minn í úrslit-
unum í hraðskákinni, Guðlaug, var
fyrirmynd mín á sínum tíma og
Lenka er stórmeistari kvenna sem
ég hef litið upp til síðan hún skaust
fram á sjónarsviðið.
Ég var nokkuð frá því að ná að
leggja þær að velli hér áður og því
er það töluverður áfangi fyrir mig
að vera komin á sama stall og þær,“
segir þessi öfluga skákkona.
„Ég kann betur við hraðskákina og
því hentar það mér ágætlega að í ein-
víginu við Lenku verða tefldar skákir
með styttri tímamörkum. Undir-
búningurinn fer jöfnum höndum í
það að stúdera skákstíl Lenku, þær
byrjanir sem hún gæti bryddað upp
á og finna veikleika hjá henni.
Lenka hefur haldið Íslandsmeist-
aratitlinum samfellt síðan 2012 en
ég verð að gæta þess að bera ekki of
mikla virðingu fyrir henni og freista
þess að ná frumkvæði í skákunum.
Það er sæti í landsliðinu í húfi í
þessari skák og það væri gríðarlegur
heiður fyrir mig og stór áfangi ef ég
næði að slá tvær flugur í einu höggi
með því að verða Íslandsmeistari og
tryggja mér sæti í landsliðinu.“ ■
Freistar þess að velta ríkjandi meistara úr sessi í dag
Frá viðureign
Jóhönnu Bjargar
og hinnar
sigursælu Lenku
fyrr í þessum
mánuði. MYND/
AÐSEND
Salah fær ekki að fara á ÓL.
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Forráðamenn Liverpool
munu ekki leyfa Mohamed Salah að
leika með Egyptalandi á Ólympíu-
leikunum. Þetta kom fram í viðtali
við forseta egypska knattspyrnu-
sambandsins í gær, sem segir að
Salah sé ekki sammála ákvörðun-
inni og eigi eftir að berjast fyrir því
að leika fyrir hönd Egyptalands.
Keppni í knattspyrnu á ÓL lýkur
viku áður en enska úrvalsdeildin
hefst í ágúst. Liðin eru skipuð leik-
mönnum undir 23 ára aldri, en
heimilt er að skrá þrjá eldri leik-
menn og vildu Egyptar hafa Salah
innanborðs í Japan. Samkvæmt
reglum FIFA er félögum hins vegar
heimilt að koma í veg fyrir að leik-
menn fari á Ólympíuleikana.
Salah verður fjarverandi í tæpan
mánuð í janúar þegar Egyptar
keppa í Afríkukeppninni og voru
forráðamenn Liverpool ekki til-
búnir að hleypa honum í bæði verk-
efnin. ■
Banna Salah að
keppa í Tókýó
kristinnpall@frettabladid.is
HANDBOLTI Rut Jónsdóttir sem fór
fyrir Íslandsmeistaraliði KA/Þórs
og Árni Bragi Eyjólfsson, marka-
kóngur Olís-deildar karla, voru
valin bestu leikmenn nýafstaðins
tímabils á Íslandsmótinu í hand-
bolta. Valið var kunngert á lokahófi
HSÍ í gær.
Rut og Árni Bragi voru valin bestu
sóknarmenn efstu deildar og hlutu
Sigríðar- og Valdimarsbikarinn fyrir
þá leikmenn sem þóttu mikilvægust
í efstu deildum karla og kvenna. Þá
fékk Árni Bragi Háttvísiverðlaun
HDSÍ. ■
Rut og Árni Bragi
valin best af HSÍ