Fréttablaðið - 24.06.2021, Síða 42
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýju vegna andláts og
útfarar elsku móður okkar, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
Huldu Jónsdóttur
Gullsmára 9, Kópavogi.
Kristjana Markúsdóttir Jón Albert Sighvatsson
Ingibjörg E. Markúsdóttir Helgi Kristjánsson
Elín Erna Markúsdóttir Páll Gíslason
Auður Ásdís Markúsdóttir Viðar Einarsson
Stefán Markússon
ömmu, langömmu- og langalangömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Höskuldur Erlendsson
andaðist 17. júní á
Landspítalanum við Hringbraut.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju,
föstudaginn 2. júlí kl. 11.
Ásta Kröyer
Hilmar Höskuldsson Ástrós Guðlaugsdóttir
Erlendur Höskuldsson Sunneva Svavarsdóttir
Ásta Rún
Jón Ingi
Svavar
Hrafnhildur Fjóla
Við þökkum auðsýnda samúð vegna
andláts okkar ástkæru
Regínu Hönnu Gísladóttur
Sléttuvegi 27,
Reykjavík.
Þórður Haukur Jónsson
Jón Rafnar Þórðarson Valgerður Ásgeirsdóttir
Björgvin Þórðarson Þórhildur Garðarsdóttir
Unnur Th. Söreide Torleif Söreide
Marta Þórðardóttir Egill Þorsteins
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Rannveig G. Kristjánsdóttir
frá Bolungarvík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir,
fimmtudaginn 17. júní. Útför fer fram frá
Laugarneskirkju, mánudaginn 5. júlí kl. 11.
Rannveig Stefánsdóttir Ögmundur Gunnarsson
Tryggvi Stefánsson
Sigríður H. Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Bjarni Valgeir Bjarnason
Háaleitisbraut 39,
lést í faðmi fjölskyldunnar á
hjúkrunarheimilinu Eir, mánudaginn
14. júní. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn
28. júní kl. 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir,
en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög.
Svava Randí Antonsdóttir
Guðmundur Bjarnason Ásta Jóhanna Einarsdóttir
Brynja Bjarnadóttir Steindór Rafn Theódórsson
Linda Einars Bjarnadóttir
Sunna Bjarnadóttir
og fjölskyldur.
Okkar elsku, besti Soffi,
Kristinn Soffanías
Rúnarsson
lést á heimili sínu þann 6. júní.
Útför fer fram frá Grundarfjarðarkirkju
laugardaginn 26. júní kl. 15.00.
Streymt verður frá athöfninni á hlekknum
https://youtu.be/RfO9N4mBys8
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Pieta samtökin eða
önnur mannúðarsamtök.
Kristín Soffaníasdóttir Rúnar Sigtryggur Magnússon
Rut Rúnarsdóttir Hafsteinn Mar Sigurbjörnsson
Leon Logi Hafsteinsson
Hulda Vilmundardóttir
Aimée Zeinab Diallo
Elsku, hjartans eiginmaður minn og
besti vinur, faðir okkar, tengdafaðir,
afi, bróðir og mágur,
Kjartan Ólafur Nielsen
lést fimmtudaginn 17. júní á líknardeild
LSH í Kópavogi. Jarðarförin fer fram frá
Bústaðakirkju, þriðjudaginn 29. júní kl. 13.
Anna Harðardóttir
Elsa Nielsen Páll Ásgeir Guðmundsson
Tryggvi Nielsen Tove Nielsen
Ágústa Nielsen
og barnabörn
Erla Nielsen Ingvar Kristjánsson
Niels Christian Nielsen Erna Hlöðversdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Steinunn Helgadóttir
Þverási 20, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans, þann
18. júní síðastliðinn. Útförin fer fram
frá Dómkirkjunni 1. júlí kl. 13.
Anna Ingvarsdóttir Arnór Stefánsson
Gunnbjörn Þór Ingvarsson
Steinunn Arnórsdóttir Hjörtur Logi Dungal
Pétur Arnórsson Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir
Ingi Steinn Arnórsson Sólveig Sigurðardóttir
og barnabarnabörn.
Fræðaþulurinn Guðni Ágústsson,
fyrrverandi ráðherra, bregður upp
mynd af Jónasi frá Hriflu, einum
umdeildasta stjórnmálamanni
Íslandssögunnar, í fræðslugöngu
þjóðgarðsins á Þingvöllum í kvöld.
gun@frettabladid.is
„Þetta verður örugglega þjóðhátíð, því
við ætlum að fjalla um svo merkilegan
mann, Jónas Jónsson frá Hriflu. Hann
var bæði dáður og hataður af þjóðinni,“
segir Framsóknarmaðurinn Guðni
Ágústsson um fyrstu fræðslugöngu
þjóðgarðsins á Þingvöllum í sumar, sem
fram fer í kvöld. Þessi „við“ eru, auk hans,
þau Óttar Guðmundsson geðlæknir og
Guðrún Eggertsdóttir, yngsta barnabarn
Jónasar.
Óspar á stór orð
Gangan hefst á Hakinu við upplýsinga-
miðstöðina á vesturbrún Almannagjár
klukkan 20, að sögn Guðna. Þar ætlar
hann að lýsa þeim stórbrotna per-
sónuleika sem til umfjöllunar er. „Svo
munum við ganga á Lögberg og þar
mun Óttar Guðmundsson geðlæknir
segja frá Jónasi, Stóru bombu, geð-
veikinni og læknadeilunni, því enginn
lenti í jafnmiklum átökum við lækna
og Jónas. Hann var óspar á stór orð og
því var hann kallaður geðveikur. Þessu
mun Óttar lýsa og síðan verður haldið
að Þingvallakirkju, þar sem Guðrún Egg-
ertsdóttir mun segja frá góðum minn-
ingabrotum um hinn góða afa sinn. Það
sem meira er, Karlakór Kjalarness ætlar
að syngja Kaldalónslögin, því Sigvaldi
Kaldalóns var læknirinn sem Jónas
skipaði í Kef lavíkurumdæmi þegar
læknarnir urðu vitlausir.“
Það urðu mikil átök
Guðni er fullur áhuga á umræðuefni
kvöldsins. „Jónas var gríðarlega sterkur
stjórnmálamaður í áratugi og byltingar-
maður, en á endanum felldur sem for-
maður Framsóknarflokksins. Það urðu
mikil átök. En hann var maður sem
lét verkin tala og barðist fyrir alþýðu-
menntun á Íslandi. Héraðsskólarnir
voru bylting. Við eigum honum margt
að þakka, þar á meðal Þjóðleikhúsið og
fleira sem lýtur að menningunni. Hann
bæði ataðist í listamönnum og dáði þá.
Guðjón Friðriksson segir vel frá þessu
öllu í bókunum þremur um Jónas, Mað-
urinn með sverðið og plóginn, Ráðherr-
ann og Ljónið öskrar. Stóra bomban er
einhver frægasta blaðagrein sem skrifuð
hefur verið á Íslandi, hún var eftir Jónas
sjálfan og birtist í Tímanum. Þetta voru
ljót átök. Ég hefði ekki viljað lifa svona
pólitík og kynntist ég þó ýmsu.“
Þá er komið að góðum lokaorðum
í þessu spjalli og ekki klikkar Guðni:
„Þetta er Jónsmessan, ég held að sum-
arið sé að koma akkúrat í dag. Það er
mjög trúlegt að tíðarfarið breytist þegar
Jónasar frá Hriflu er minnst og ég skora á
fólk að baða sig í dögginni í nótt.“ n
Ekki viljað lifa svona pólitík
Guðni hlakkar til Þingvallafarar í kvöld og fræðslugöngunnar sem hefst við Hakið klukkan 20. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Hann var maður sem lét
verkin tala og barðist fyrir
alþýðumenntun á Íslandi.
Héraðsskólarnir voru
bylting.
1865 Fyrsti keisaraskurðurinn er framkvæmdur á Íslandi.
Móðirin deyr en barnið lifir. Fyrsta svæfing á Íslandi
er einnig framkvæmd við þessa fæðingu.
1875 W. L. Watts, enskur vísindamaður, fer ásamt fjórum
Íslendingum úr Fljótshverfi í Vestur-Skaftafellssýslu
norður yfir Vatnajökul. Þeir koma til byggða á Hóls-
fjöllum eftir mikla hrakninga í rúman hálfan mánuð.
1900 900 ára afmælis kristnitökunnar á Íslandi er minnst
við messur í landinu.
1923 Listasafn Einars
Jónssonar er opnað
á Skólavörðuholti í
Reykjavík við hátíðlega
athöfn.
1961 Sigurhæðir á
Akureyri, hús Matthí-
asar Jochumssonar,
eru opnaðar sem safn í
minningu skáldsins.
Merkisatburðir
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 24. júní 2021 FIMMTUDAGUR