Fréttablaðið - 19.06.2021, Blaðsíða 8
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
Það eru
tímamót í
þínu hverfi
Við opnum sýningu á tillögum að
nýju hverfisskipulagi Breiðholts
19. júní nk. klukkan 14.
Hverfisskipulag byggir á víðtæku samráði, óskum íbúa
og vistvænum áherslum í þróun hverfisins. Kynntu þér
nýju tillögurnar á hverfisskipulag.is.
Dagskrá
Ávarp – Alexandra Briem, forseti borgarstjórnar
Kynning á tillögum
Umræður
Kvenréttindadagurinn er í
dag, 19. júní, og af því tilefni
segir Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra mikilvægt
að taka markmiðum kvenna-
baráttu ekki sem gefnum
hlut. Hún segir faraldurinn
hafa sýnt fram á mikilvægi
kvennastétta og er stolt af því
sem áunnist hefur í jafnréttis-
málum á kjörtímabilinu.
birnadrofn@frettabladid.is
JAFNRÉTTISMÁL „Það er mikilvægt
að velta fyrir okkur merkingu þess-
ara tímamóta því þó að okkur finnist
oft sem markmiðum kvennabaráttu
sé náð, þá skiptir það nefnilega máli
að taka þeim ekki sem gefnum
hlut,“ segir Katrín Jakobsdóttir for-
sætisráðherra í grein sem birtist á vef
Fréttablaðsins, frettabladid.is, í dag í
tilefni kvenréttindadagsins 19. júní.
Á þessum degi árið 1915 fengu konur
40 ára og eldri kosningarétt á Íslandi
og fimm árum síðar allar konur.
Í samtali við Fréttablaðið segist
Katrín leggja sig fram um að ræða
jafnréttismál sem víðast. „Það er
bara svo of boðslega mikilvægt að
ræða þessi mál og líka þar sem fólk
er ekki vant að ræða þau, til dæmis
eins og á NATO-fundi,“ segir Katrín.
Hún segist stolt af því sem áunn-
ist hefur í jafnréttismálum á kjör-
tímabilinu og nefnir þar sérstaklega
lengingu fæðingarorlofs og aukinn
rétt kvenna til þungunarrofs.
,,Lög um þungunarrof höfðu verið
óbreytt frá því á áttunda áratugnum
og breytingarnar eru stórt skref í því
að byggja á sjálfsákvörðunarrétt
kvenna, þetta er grundvallarmál,“
segir Katrín.
Þá segist Katrín einnig stolt af
áætlun um forvarnir gegn kyn-
ferðislegu og kynbundnu ofbeldi og
áreitni, sem samþykkt hefur verið
á Alþingi. Um er að ræða áætlun
sem felur í sér að komið verði á
skipulögðum forvörnum gegn kyn-
ferðislegu og kynbundnu ofbeldi og
áreitni.
Forvarnirnar verða samþættar
kennslu og skólastarfi á öllum skóla-
stigum og munu einnig eiga sér stað
á frístundaheimilum og félagsmið-
stöðvum og í tómstundastarfi.
Katrín segir forvarnir mikilvægan
þátt í því að uppræta ofbeldi. „Við
erum búin að vera að gera réttarbæt-
ur hinum megin til þess að bregðast
við því þegar brotið er á fólki, stóra
verkefnið núna finnst mér vera það
hvernig við getum komið í veg fyrir
að það sé brotið á fólki,“ segir hún.
Katrín segir nauðsynlegt að ræða
of beldi frá öllum sjónarhornum,
líka frá sjónarhorni gerandans. „Og
taka þessa umræðu upp á yfirborð-
ið, hvað það er sem veldur þessu og
af hverju þetta er bara talið eðlilegt.“
Víða um heim hefur hallað á rétt-
indi kvenna í kórónuveirufaraldr-
inum og aðspurð segir Katrín helstu
birtingarmynd þess hér á landi vera
aukið heimilisof beldi, en tilkynn-
ingum vegna heimilisofbeldis hér-
lendis fjölgaði mikið eftir að farald-
urinn skall á. Þá hefur bæði konum
sem leitað hafa í Kvennaathvarfið
og Bjarkarhlíð fjölgað.
„Þetta virðist vera alþjóðleg til-
hneiging í faraldrinum,“ segir Katrín.
„Við fórum í það að styðja sérstak-
lega við Kvennaathvarfið og réðumst
í ákveðna vitundarvakningu um
heimilisofbeldi,“ bætir hún við.
Spurð að því hvort konur hér-
lendis líkt og erlendis hafi dottið út
af atvinnumarkaði frekar en karlar
í faraldrinum, segir Katrín svo ekki
vera. Hlutföll þeirra sem misstu
vinnuna hafi verið tiltölulega jöfn.
„Við héldum einnig skólunum að
mestu opnum, en við höfum séð
það gerast annars staðar að konur
fari frekar heim að sinna börnunum
þegar þeim er lokað,“ segir Katrín.
Þá segir Katrín faraldurinn hafa
verið áminningu um mikilvægi
stórra kvennastétta á Íslandi, til að
mynda stéttir kennara og heilbrigð-
isstarfsfólks. „Við eigum mikil verð-
mæti í þessu kerfi okkar og þessum
konum.“
Katrín segir nauðsynlegt að
minna sjálfan sig á að jafnrétti sé
ekki enn náð og að mikilvægt sé að
fylgja eftir þeim verkefnum sem lagt
hafi verið af stað með á kjörtímabil-
inu. Næsta stóra verkefni segir hún
launamun kynjanna, vel hafi tekist
til með jafnlauanavottun „en það
sem þarf að taka til skoðunar næst
er munurinn á stéttum þar sem við
erum með stórar kvennastéttir ann-
ars vegar og stórar karlastéttir hins
vegar.“ ■
Stolt af því sem áunnist hefur í jafnréttismálum
Katrín Jakobs-
dóttir forsætis-
ráðherra reynir
að ræða jafn-
réttismál á sem
fjölbreyttustum
vettvangi og
við sem flesta,
svo mikilvægt
þykir henni mál-
efnið.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Stóra verkefnið núna
finnst mér vera það
hvernig við getum
komið í veg fyrir að
það sé brotið á fólki.
Katrín Jakobsdóttir.
8 Fréttir 19. júní 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ