Fréttablaðið - 19.06.2021, Blaðsíða 69
Ástkær móðir
mín, amma og
langamma,
Erla
Hjartardóttir
lést á Landspítalanum í
Fossvogi mánudaginn 14. júní.
Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn
23. júní klukkan 11.00.
Á sama tíma verður minningarathöfn um son hennar,
Haraldur Kristjánsson,
lést 12. janúar í Los Angeles, Bandaríkjunum.
Kristján Ragnar Kristjánsson
Krista Takefusa Kristjánsdóttir
Ragnar Orri Benediktsson
Erla Heiðrún Benediktsdóttir
Kristján Haraldsson
Davíð Örn Kristínarson
Guðný Ósk Árdal Sveinbjörnsdóttir
Guðrún Helga Sveinbjörnsdóttir
Dagur Steinn Sveinbjörnsson
fjölskyldur og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar,
Bragi Níelsson
læknir,
lést á Dvalarheimilinu Höfða á
Akranesi sunnudaginn 13. júní 2021.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju,
25. júní kl. 13 og athöfninni verður
streymt frá vef Akraneskirkju.
Árni Bragason
Röðull Bragason
Baldur Bragason
Margrét Bragadóttir
og fjölskyldur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Axel Axelsson
málarameistari,
Dalbraut 18, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli
síðastliðinn sunnudag. Útförin fer fram frá
Hallgrímskirkju fimmtudaginn 24. júní kl. 13.
Dagbjört Guðmundsdóttir
Brynhildur Axelsdóttir Einar Ingvar Guðmundsson
Júlíus Viðar Axelsson Margrét Sif Hafsteinsdóttir
Sólrún Axelsdóttir Árni Örn Bergsveinsson
Ívar Örn Axelsson Anna Sigríður Sveinbjörnsdóttir
og barnabörn.
Elskulegur faðir minn,
tengdafaðir og afi,
Sveinn Bergmann
Steingrímsson
Kaplaskjólsvegi 63,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu Laugarási, miðvikudaginn 16. júní.
Útförin auglýst síðar.
Halldóra Sigríður Sveinsdóttir
Stefán Ívar Ívarsson
Halldór Ívar Stefánsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Sigurlaug Ásgerður
Sveinsdóttir
verður jarðsungin frá Dalvíkurkirkju
miðvikudaginn 23. júní kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Dvalarheimili aldraðra Dalbæ, Dalvík.
Guðbjörg Antonsdóttir
Elín Sigrún Antonsdóttir
Anna Dóra Antonsdóttir Sveinn Sveinsson
Arna Auður Antonsdóttir
Þórólfur Már Antonsson Hrönn Vilhelmsdóttir
Árdís Freyja Antonsdóttir
barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
Okkar ástkæri
Stefán Alexandersson
frá Ólafsvík,
lést í faðmi fjölskyldunnar á
Landspítalanum þann 14. júní. Útför
hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju,
fimmtudaginn 24. júní kl. 13.
Laila Michaelsdóttir
Valborg Stefánsdóttir Gnúpur Halldórsson
Íris Stefánsdóttir Þóroddur Bjarnason
Tinna Stefánsdóttir
Alexander Stefánsson Ólína Elísabet Rögnudóttir
og barnabörnin þrettán.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð,
stuðning og hlýju vegna andláts
og útfarar
Kristins Herbergs
Kristjánssonar
Fálkahöfða 8, Mosfellsbæ.
Esther Bergþóra Gunnarsdóttir
Una Hrönn Kristinsdóttir
Herdís Kristinsdóttir Gunnar Þór Ármannsson
Sigrún Herbergsdóttir Hólmar Örn Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar ástkærs sonar okkar,
bróður, mágs og frænda,
Páls Jónssonar
Tröllagili 14,
Akureyri.
Þökkum öllum þeim sem önnuðust hann í veikindum
hans. Sérstakar þakkir fá Kristnesspítali og Heimahjúkrun
á Akureyri.
Jón Pálsson Björk Axelsdóttir
Rannveig Jónsdóttir
Þorlákur Axel Jónsson Gunnhildur H. Gunnlaugsdóttir
Sigurður Pétur Jónsson Inga S. Guðbjartsdóttir
Þorsteinn Styrmir Jónsson
systkinabörn og fjölskyldur
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Sveinn Fjeldsted
öryggisstjóri,
Lundi 21, Kópavogi,
lést á LSH 3. júní sl. Útförin fer fram frá
Bústaðakirkju 22. júní nk. klukkan 11.00.
Jarðarförin er opin að 300 manns. Streymt verður frá
athöfninni: https://hljodx.is/index.php/streymi
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug til okkar.
Ingibjörg Kristjánsdóttir
Ásta Björk Sveinsdóttir Jón Júlíus Elíasson
Kristján Þór Sveinsson Hulda I. Magnúsdóttir
Guðmundur Sveinsson Hulda Sævarsdóttir
afa og langafabörn.
Keltneskt útialtari, gert af íslensku
handverksfólki, verður vígt á
morgun að Esjubergi á Kjalarnesi.
Sögufélagið Steini stendur þar á
bak við. Formaður er Hrefna Sig-
ríður Bjartmarsdóttir.
gun@frettabladid.is
„Þetta altari er gert til að minnast elstu
kirkju á Íslandi sem nefnd er í rituðum
heimildum, Landnámu og Kjalnesinga-
sögu. Þar segir: Kirkja Örlygs er hér
komin um árið 900 – og er þar átt við
Örlyg Hrappsson sem kom frá Suður-
eyjum Skotlands. Hann helgaði kirkjuna
írska dýrlingnum Kólumkilla. Þannig
að þetta er tenging okkar við keltneska
menningu,“ segir Hrefna Sigríður Bjart-
marsdóttir, formaður Sögufélagsins
Steina, sem hefur haft umsjón með
framkvæmd altaris að Esjubergi.
Frú Agnes Sigurðardóttir, biskup
Íslands, mun vígja altarið á morgun,
sunnudag, klukkan 14. Í lögun er það
eins og keltneskur sólkross og í miðju
þess er altarissteinn úr landi Esjubergs.
Hrefna segir sr. Gunnþór Ingason hafa
átt hugmyndina að sólkrossinum og
aðra í stjórn Steina eiga sameiginlegan
þátt í útlitinu. Einnig notið aðstoðar
Sigurborgar Óskar Haraldsdóttur lands-
lagsarkitekts.
Hrefna rekur hugmyndina að altarinu
til héraðsfundar Kjalarnessprófasts-
dæmis árið 1983. „Þegar Sögufélagið
Steini var stofnað fyrir ellefu árum var
ákveðið að ráðast í framkvæmdina, því
hugmyndinni hafði verið haldið vak-
andi. Vorið 2016 tók svo biskup Íslands
fyrstu skóf lustungu, ásamt f leirum,
og við höfum verið að vinna við þetta
í fimm ár. Eiginlega var verkið klárað
fyrir jól, svo höfum við verið að snurfusa
í vor en eigum eftir að gera fræðsluskilti,
erum að vinna í þeim,“ lýsir Hrefna.
Hún getur þess að við bygginguna hafi
áhersla verið lögð á að efni og vinnu-
kraftur kæmu sem mest af Kjalarnesi
og meðal annars hafi börn úr skólunum
safnað fjörusteinum sem prýði krossinn.
„Við í stjórn Steina höfum unnið mikla
sjálfboðavinnu, ásamt fleira fólki innan
og utan Kjalarness. Við fengum tvo
hleðslumeistara, þau Ara Jóhannesson
og Kristínu Auði Keldal, og Guðni Ársæll
Indriðason, sem er fæddur og uppalinn
Kjalnesingur, smíðaði mót krossins og
steypti hann.“
Messað hefur verið á þessum stað
árlega síðan 2010, að sögn Hrefnu. Einn-
ig haldið þar upp á bæði mannréttinda-
dag- og barnamenningarhátíð. „Hingað
eru allir velkomnir,“ segir hún. „Hér er
góður áningarstaður fyrir göngufólk,
óháð trúarskoðun.“ ■
Minnisvarði um kirkjustað
Hrefna Sigríður við útialtarið að Esjubergi sem vígt verður á morgun klukkan 14. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Við í stjórn Steina höfum
unnið mikla sjálfboða-
vinnu, ásamt fleira fólki
innan og utan Kjalarness.
FRÉTTABLAÐIÐ Tímamót 29LAUGARDAGUR 19. júní 2021