Fréttablaðið - 19.06.2021, Blaðsíða 37
hagvangur.is
Reginn leitar að öflugum leiðtoga í starf framkvæmdastjóra fjármála.
Starfið er krefjandi stjórnunarstarf en hlutverk framkvæmdastjóra fjármála
er meðal annars að styðja við áframhaldandi mótun og vöxt félagsins þ.m.t.
taka þátt í stefnumótun og innleiðingu. Starfið heyrir beint undir forstjóra
og er hluti af framkvæmdastjórn Regins.
Meðal verkefna
• Ábyrgð á daglegri fjármálastjórn samstæðu Regins og dótturfélaga
þ.m.t. fjárreiðum félagsins, uppgjörum, greiningum, virðismötum, líkana-
og áætlanagerð og sjóðastýringu
• Leiða fjármögnun og endurfjármögnun og annast samskipti við
fjármálastofnanir
• Leiða og bera ábyrgð á samskiptum við endurskoðendur félagsins,
endurskoðunarnefnd og viðeigandi opinbera aðila
• Stýra og móta vinnslu og framsetningu stjórnendaupplýsinga til
framkvæmdastjórnar og stjórnar félagsins
• Leiða og móta fjárfestatengsl félagsins þ.m.t. samtal og samskipti við
fjárfesta, fjármálastofnanir og greiningaraðila
Hæfniskröfur
• Reynsla úr fjármálaumhverfi ásamt framúrskarandi þekkingu á sviði
efnahags og fjármála
• Víðtæk þekking á fjármálum, fjárreiðum og uppgjörum fyrirtækja
• Þekking af umhverfi skráðra félaga er kostur
• Háskólamenntun á sviði viðskipta- og hagfræði eða sambærileg
menntun, framhaldsmenntun æskileg
• Góð þekking á fjármálahugbúnaði og framúrskarandi tölvukunnátta
• Almenn reynsla af stjórnun og stjórnunarstörfum
• Framúrskarandi samskiptafærni og þjónustulund ásamt góðu valdi á
íslensku og ensku í ræðu og riti
Umsóknarfrestur er til og með 7. júlí nk.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem,
sverrir@hagvangur.is
Sótt er um starfið á hagvangur.is.
Reginn hf. er íslenskt fasteignafélag
sem fjárfestir í, leigir út og annast rekstur
á atvinnuhúsnæði. Fasteignasafn Regins
telur 116 fasteignir og er heildarstærð
safnsins um 385 þúsund fermetrar. Félagið
er hlutafélag í dreifðu eignarhaldi og skráð
í Kauphöll Íslands.
Reginn hefur í gildi jafnlauna- og
jafnréttisstefnur ásamt jafnlaunakerfi sem
fyrirbyggir beina og óbeina mismunun vegna
kyns. Við ráðningar er leitast við að jafna
hlutföll kynjanna að uppfylltum hæfniskröfum.
Framkvæmdastjóri fjármála