Fréttablaðið - 19.06.2021, Blaðsíða 62
Svæðið hefur upp
á svo ótrúlega
margt að bjóða og við
sjáum ótal tækifæri í
hótelrekstrinum. Það
eru fá hótel og veitinga-
staðir í heiminum sem
geta státað sig af því að
vera með eldgos í bak-
garðinum.
Herborg Svana
Herborg Svana Hjelm fram-
kvæmdastjóri og Birgir Rafn
Reynisson matreiðslumeist-
ari, tóku nýlega við rekstri
hótelsins, sem áður hét Geo
Hótel og hefur fengið nýtt
nafn, Hotel Volcano.
sjofn@frettabladid.is
Herborg Svana og Birgir eru með
töluverða reynslu í veitingarekstri
og staðirnir þeirra hafa slegið í
gegn, hver með sína sérstöðu. „Við
höfum starfað saman í nokkur ár
og höfum brallað helling saman,“
segir hún, en þau hjónin reka einn-
ig Fjárhúsið á Granda Mathöll og
Hlemmi Mathöll, Trúnó á Hlemmi
Mathöll, en nýjasta verkefnið er
Hótel Volcano og Fest bistro & bar.“
Herborg segir að þau séu mjög
spennt yfir þessu nýja verkefni
og það fari vel af stað. „Svæðið
hefur upp á svo ótrúlega margt að
bjóða og við sjáum ótal tækifæri í
hótelrekstrinum. Það eru fá hótel
og veitingastaðir í heiminum
sem geta státað sig af því að vera
með eldgos í bakgarðinum,“ segir
Herborg Svana. Bókanir hafa farið
vel af stað og vinsældir hótelsins
strax byrjaðar að gera vart við sig.
„Við tókum við rekstrinum um
miðjan maí og bókanir hafa farið
mjög vel af stað. Bókanir í júní eru
satt að segja lygilegar. Við erum
mjög bjartsýn á framhaldið miðað
við stöðuna í dag,“ segir Herborg
Svana.
Gosið hafði áhrif á
lokaákvörðunina
Segið aðeins frá tilurðinni, söguna
á bak við að þið ákváðuð að taka
við rekstri hótelsins og opna Festi
bistro & bar.
„Við vorum búin að hugsa þetta
síðan í desember, okkur hefur
lengi langað að fara út í hótel-
rekstur. Þetta er mjög spennandi
atvinnugrein og mörg tækifæri
fram undan eftir Covid. Svo þegar
gosið kom, þá var ekkert annað en
að skipta um nafn á hótelinu sem
áður hét Geo Hótel,“ segir hún.
Staðsetningin heillaði þau og
sóknarfærin blöstu við. „Húsið er
nýtt og falleg hönnun á því. Það
er stutt fyrir ferðamenn að koma
til okkar en það eru um það bil 20
mínútur frá flugvellinum til okkar,
um 7 mínútur í Bláa lónið og á
gosstöðvarnar, svo stutt er í alla
þjónustu. Við erum ótrúlega vel
staðsett. Svo má ekki gleyma hvað
náttúran í kringum Grindavík
er einstök og þess vegna margt í
boði fyrir ferðamenn, bæði inn-
lenda sem erlenda að skoða. Svo er
auðvelt að fara í góðar hjólaferðir
á Reykjanesinu og stutt á golfvöll-
inn.“
Ekta bistro matargerð með
áherslu á gæði
Þar sem að við höfum mikla reynslu
af veitingarekstri þá var það alveg
borðleggjandi að opna veitingastað.
Það var ekki erfitt að velja nafn á
staðinn, en húsið var samkomu-
húsið Festi áður en því var breytt í
hótel og Birgir vann í Festi áður en
því var lokað.“
Festi var upphaflega opnað 4.
júní árið 1972 og á því langa og
skemmtilega sögu. Herborg og
Birgir opnuðu svo Festi bistro &
bar 4. júní 2021, við mikinn fögnuð
heimamanna. Þeim fannst ekki
flókið að finna taktinn í matargerð-
inni og töfruðu fram flottan bistro
matseðil. „Við erum með ekta bistro
matargerð og leggjum áherslu á ein-
Íslensk náttúra og sælkerakræsingar
Birgir og Herborg reka hótelið Volcano en þar er einnig veitingahúsið Festi bistro & bar í Grindavík. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Íslenska lambið og meðlæti er að sjálfsögðu á matseðlinum og er aðals-
merki kokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
falda og minni rétti. Okkar reynsla
er sú að matarskammtar eru að
minnka og viðskiptavinir spái
almennt í matarsóun.“
Tónleikar og viðburðir
verða fastir liðir
Mikið líf hefur þegar skapast
kringum Festi bistro & bar og hafa
þau Herborg og Birgir tekið upp
gamla siði staðarins Festi, og verið
með tónleikahald fyrir matargesti
sína. Fyrstu tónleikarnir voru
haldnir sjómannadagshelgina en
þá spiluðu Jógvan og Vignir Snær
og vöktu mikla lukku.
Nú hafið þið verið með viðburði
á hótelinu og boðið upp á tónleika,
munu verða fastir liðir í fram-
tíðinni?
„Já, við munum gera það. Við
viljum halda í þann anda sem var
hérna áður fyrr.“ n
LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Flott sumarföt
fyrir flottar konur
YEST/YESTA
röndótt skyrta
Stærðir 36-56
Verð kr.10.9810
IVY BEAU
sumarkjóll
Stærðir 38-48
Verð kr.8.980
YESTA
pífukjóll
Stærðir 44-56
Verð kr. 10.980
YESTA
Sumarkjóll
Stærðir 44-56
Verð kr.12.980
6 kynningarblað A L LT 19. júní 2021 LAUGARDAGUR