Fréttablaðið - 19.06.2021, Blaðsíða 82

Fréttablaðið - 19.06.2021, Blaðsíða 82
Myndir mega vera óþægilegar, hræðilegar og jafnvel ömurlegar. Svo lengi sem þær eru ekki leiðinlegar. stod2.is Hlaðvarpinu Vídjó er stjórnað af þeim Söndru og Hugleiki. Í því taka þau fyrir kvikmyndir og finna líka skemmtilegar íslenskar þýðingar á heitum erlendra mynda. Þau Sanda Barilli og Hugleikur Dagsson halda úti hlaðvarpinu Vídjó, þar sem þau ræða saman kvikmyndir, en áður voru þau með hlaðvarp þar sem þau ræddu sjón- varpsþættina Buffy. Þau hittust fyrst á Seyðisfirði en kynntust svo betur þegar þau dvöldu í Galtarvita. „Þar sem er ekkert símasamband, það er frábær leið til að kynnast fólki,“ segir Sandra. „Svo tveimur vikum síðar vorum við að rappa saman á sviði og svo allt í einu að hljóðrita samtöl um vampírur í kjallaranum mínum. Skil ekkert hvernig þetta gerðist,“ bætir Hugleikur við. „Hulli er skemmtilegur maður sem hefur atvinnu af því. Hann hefur verið nörd síðan Nexus var á Hverfisgötunni og hefur þess vegna gríðarlega þekkingu á pop-kúltúr, og svo er hann líka listaskólageng- inn,“ segir Sandra þegar hún er beðin um að lýsa Hugleiki. „Sandra er aldrei að þykjast. Ég held að hún kunni það ekki. Sem er sérstakt því hún er leikmenntuð. Ég veit um enga sem getur fangað athygli eins og hún. En samt er hún algerlega óathyglissjúk. Hún er með ofnæmi fyrir kjaftæði,“ segir Hug- leikur um Söndru. Hlaðvarpsformið heillar Hvenær uppgötvuðuð þið þennan sameiginlega áhuga ykkar á kvik- myndum og þáttum? „Ég veit ekki, er það ekki bara af því þú ert alltaf að láta mig horfa á eitthvert dót meira en annað fólk?“ spyr Sandra. „Það er bara svo gaman að horfa á vídjó með þér. Þú finnur ekki þörf- ina að leiðrétta myndina stanslaust upphátt með augljósri kaldhæðni eins og svo margir. Þú finnur mann- lega tengingu í öllu, hvort sem það er Thor þrjú eða Scarface. Þú ert líka „woke“ án þess að vera predikandi,“ svarar Hugleikur. Hvað er það sem heillar við hlað- varpsformið? „Ef við vær um á einhverri útvarpsstöð væri ábyggilega alltaf verið að hringja inn og kvarta, ég Úr vampírum í Vídjó Áður stjórnuðu þau saman hlaðvarpsþáttunum Slaygðu. Hugleikur og Sandra kynntust fyrst almennilega í Galtarvita á Vestfjörðum. MYND/AÐSEND Þýðing á titli kvikmyndarinnar Jaws. Steingerður Sonja Þórisdóttir steingerdur @frettabladid.is myndi ekki „meika“ það. Hlaðvörp eru geggjuð, ég elska að hlusta á góð hlaðvörp,“ svarar Sandra. „Hlaðvörp eru svo einföld og frjáls. Það eina sem þarf er míkró- fónn og eitthvað að segja. Ég er ekki hrifinn af vel gerðum „pod- cöstum“ með þenkjandi pistlum og fræðandi upplýsingum,“ bætir Hugleikur við. Hlaðvarpstenging þeirra á rætur sínar að rekja til þess að Sandra var gestur í hlaðvörpum Hugleiks. „Já, eftir að hún hafði verið gestur í hinum podköstunum mínum, Hefnendurnir og Icetralia, þá varð það nokkuð ljóst fyrir mér að það þyrfti að heyrast meira í þessari stúlku. Síðar heyrði ég hlaðvarpið Gilmore Guys, þar sem einn Gil- more Girls-sérfræðingur og einn nýgræðingur ræða saman um Gilmore Girls. Ég ákvað að stela þeirri hugmynd og yfirfæra hana á Buffy The Vampire Slayer og þá var Sandra efst á listanum mínum sem meðstjórnandi. Ein á listanum mínum reyndar,“ segir Hugleikur. Langaði að halda áfram Eftir að hafa horft á alla þættina fundu þau að þau langaði að halda áfram. „ A f þv í ok k u r f innst svo skemmtilegt að tala saman, og ótrúlegt nokk þá er fullt af fólki sem finnst gaman að hlusta á okkur og var leitt yfir að við værum að hætta eftir 256 þætti af Sla- ygðu. Við vildum líka vera aðeins aðgengilegri fyrir annað fólk, 90’s vampíru B-mynda költ dót er smá sérhæft fyrir almennan hlustanda,“ útskýrir Sandra. „Viðbrögðin við Slaygðu voru svo góð að við bara urðum að athuga hvað gerðist þegar við tölum um eitthvað sem f lestir kannast við. Eins og Star Wars eða Pretty Woman,“ segir Hugleikur. Þau segjast oftast nær vera sam- mála gæði myndanna sem þau taka fyrir. „Ég man eiginlega ekki eftir einhverju, nema mér fannst Jaws hræðilega óþægileg mynd en það er bara einhver djúphræðsla úr æsku. Mér fannst taugatrekkjandi að horfa á hana en lét mig hafa það,“ segir Sandra. „Hingað til er helsti munurinn á okkur að ég elska hákarla og hún kúgast við tilhugsunina um þá. En ef þér fannst Jaws erfið, hvað gerist þegar við horfum á Shining eða Requiem for a Dream? Ég hlakka pínu til. Ég held að við séum sam- mála um að það er í rauninni bara eitt sem getur skemmt mynd og það er að hún sé leiðinleg. Hingað til í Vídjó-glápinu hefur okkur ekki leiðst. Myndir mega vera óþægi- legar, hræðilegar og jafnvel ömur- legar. Svo lengi sem þær eru ekki leiðinlegar,“ bætir Hugleikur við. Margar góðar tillögur Sandra er búsett í Reykjavík en Hugleikur í Berlín þannig að það er ekki úr vegi að spyrja þau hvernig það gangi að stjórna saman hlað- varpi hvort í sínu landinu. „Við reynum að safna þáttum áður en Hulli fer út, en annars erum við bara hvort með sitt stúdíóið í Vesturbænum og Berlín,“ útskýrir Sandra. Nú haf ið þið ver ið að gera íslenskar þýðingar á kvikmyndum, hvernig kom sú hugmynd til? „Hulli á allan heiður af því,“ svarar Sandra. „Réttara sagt eiga fylgjendur okkar þann heiður. Í hverri viku á Facebook bið ég fólk um að koma með góða „RÚV-lega“ titlaþýðingu á næstu kvikmynd. Tillögurnar eru svo margar og góðar að við eigum í fullu fangi með þær.“ Hverjar eru ykkar uppáhalds- þýðingar frá fylgjendum ykkar? „Vá, það er rosalega erfitt að velja þetta. Mér fannst Skolti lætur til skarar skríða alveg geggjað nafn á Jaws. Svo Lömbin stúmm og líka Morð og meme á Silence of the Lambs. Ég gæti talið upp enda- laust, það er svo skemmtilegt að renna yfir þetta, ég hlæ alltaf mjög mikið,“ segir Sandra. „Grindavík fannst mér mjög góð þýðing á Fargo. En við slepptum að nota það því við vildum ekki missa hlustendur á Grindavík,“ bætir Hugleikur við. Hægt er að nálgast þættina Vídjó á öllum helstu streymisveitum. Skemmtilegar þýðingar á kvik- myndum má finna á Facebook-síðu þáttanna.n 42 Lífið 19. júní 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 19. júní 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.