Fréttablaðið - 19.06.2021, Blaðsíða 39
Starfsmaður í viðhaldsdeild
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Vinsamlegast látið
ferilskrá og kynningarbréf fylgja umsókninni.
Umsóknir skulu berast eigi síðar en 24. júní á netfangið einar@skylagoon.is
Starfssvið nær meðal annars yfir:
• Daglegan rekstur á kerfum svo sem lóns- og dælukerfi,
aðgangs- og skápakerfi, eftirlits- og hússtjórnarkerfi
• Tilfallandi viðhaldsverkefni
• Umhirðu og viðhald á útisvæðum
Mikill metnaður hefur verið lagður í að skapa einstakt
upplifunarsvæði fyrir gesti og spilar viðkomandi því
lykilhlutverk í að sjá til þess að upplifun gesta verði með
allra besta móti.
Hæfniskröfur eru eftirfarandi:
• Vélstjóramenntun eða sambærileg iðnmenntun
• Góð enskukunnátta
• Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og ábyrgð
• Þjónustulund og snyrtimennska
• Ástríða fyrir störfum sínum
• Hafi næmt auga fyrir útlitslegum smáatriðum
Sky Lagoon óskar eftir ábyrgðafullum einstaklingi til að sinna viðhaldi á fasteign, útisvæði og kerfum.
Um er að ræða mjög fjölbreytt starf og er æskilegt að viðkomandi hafi áhuga og getu til að ganga í öll tilfallandi
verkefni ásamt því að vera sveigjanlegur varðandi vinnutíma í þeim tilfellum sem viðhaldsverkefni falla utan hefð-
bundins opnunartíma.
Fyrirtæki
ársins 2021
hagvangur.is
Við óskum eftir að ráða rafvirkja í öflugt teymi starfsfólks á Sogssvæði
við Írafoss, Ljósafoss og Steingrímsstöð. Í starfinu felst viðhald, eftirlit
og rekstur aflstöðva og veitumannvirkja. Fjölbreytt og krefjandi starf við
ástandsmælingar og greiningar á rafbúnaði.
Hæfniskröfur
– Sveinspróf í rafvirkjun
– Þekking á viðhaldi búnaðar; loft-, kæli-, vökva- og rafkerfa
– Þekking á teikniforritum, iðntölvum og stjórnkerfum er kostur
– Reynsla af störfum tengdum raforkuvirkjum eða iðnaði er æskileg
– Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna með öðrum
– Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfni til að tileinka sér nýjungar
– Geta til að kynna starf sitt og starfsvettvang fyrir hópum og einstaklingum
Umsóknarfrestur er til og með 29. júní
Sótt er um starfið á vef Landsvirkjunar
Landsvirkjun.is
Fyrirspurnir má senda á
starf@landsvirkjun.is
Ertu rétti rafvirkinn
í stuðið í Soginu?
Starf