Fréttablaðið - 19.06.2021, Blaðsíða 12
Sá sigur veitti okkur
sjálfstraust og við
höfum ekki litið til
baka síðan þá og það
var aldrei spurning í
bikarúrslitaleiknum
hvorum megin sigur-
inn myndi enda.
Bjarki Már Elísson.
12 Íþróttir 19. júní 2021 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 19. júní 2021 LAUGARDAGUR
Lemgo mun leika í Evrópu-
keppni í handbolta karla á
næstu leiktíð eftir um það
bil áratuga fjarveru en Bjarki
Már Elísson er einn af lykil-
leikmönnum liðsins. Þegar
þrjár umferðir eru eftir af
þýsku efstu deildinni er Bjarki
Már þriðji markahæsti leik-
maður deildarinnar.
hjorvaro@frettabladid.is
HANDBOLTI Bjarki Már Elísson,
landsliðsmaður í handbolta, er
sáttur við afraksturinn á keppnis-
tímabilinu sem senn fer að ljúka.
Lið hans, Lemgo, situr í sjöunda
sæti þýsku efstu deildarinnar þegar
þremur umferðum er ólokið en liðið
hefur nú haft betur í sex síðustu
leikjum sínum í deild og bikar.
Lemgo varð bikarmeistari í upp-
hafi júnímánaðar eftir sigur gegn
Melsungen, sem leikur undir stjórn
Guðmundar Þórðar Guðmunds-
sonar landsliðsþjálfara og er með
landsliðslínumanninn Arnar Frey
Arnarsson innanborðs. Bjarki Már
segir að það hafi verið ákveðinn
vendipunktur í hálfleik í leik liðsins
gegn Kiel í undanúrslitum bikar-
keppninnar.
„Við vorum sjö mörkum undir í
hálf leik á móti Kiel í undanúrslita-
leiknum. Þá tókum við þá ákvörð-
un að njóta þess að spila í bikarúr-
slitahelginni í Hamborg, sem er
ávallt mikil upplifun að taka þátt
í. Þar náðum við að fækka þeim
mistökum sem við vorum að gera,
slaka á og í kjölfarið gekk bara allt
upp.
Sá sigur veitti okkur mikið sjálfs-
traust og við höfum ekki litið til
baka síðan þá og það var aldrei
spurning í bikarúrslitaleiknum
hvorum megin sigurinn myndi
enda. Svo höfum við unnið fjóra
deildarleiki eftir bikarúrslitahelg-
ina og erum í fínni stöðu í deildinni.
Árangurinn í deild og bikar er í
raun framar þeim væntingum sem
við höfðum fyrir tímabilið,“ segir
Bjarki Már um tímabilið, en hann
skoraði níu mörk þegar Lemgo lagði
Erlangen að velli á þjóðhátíðardegi
Íslendinga.
Vantar breidd til að ná lengra
Bjarki Már er þriðji markahæsti leik-
maður deildarinnar með 221 mark
í 35 leikjum en Ómar Ingi Magnús-
son, sem leikur með Magdeburg, er
markahæstur með 247 mörk.
„Við erum með sterkt byrjunarlið
og höfum spilað hörkuleiki við topp-
liðin í vetur. Leikmannahópurinn er
hins vegar ekki nógu breiður til þess
að gera sig meira gildandi í topp-
baráttunni en við höfum gert á leik-
tíðinni.
Þar af leiðandi erum við sáttir við
árangurinn og það er frábært að
hafa tryggt sér sæti í Evrópukeppni á
næstu leiktíð. Lemgo er gamalt stór-
veldi sem lenti í fjárhagsvandræðum
um 2010 og hefur síðan þá verið að
byggja upp sterkan grunn á nýjan
leik,“ segir hornamaðurinn knái.
Gamalt stórveldi að vakna
Lemgo hefur tvisvar sinnum orðið
þýskur meistari, 1997 og 2003, varð
Tímabilið fór á flug í hálfleik í Hamborg
Bjarki Már
Elísson, lands-
liðsmaður í
handbolta, varð
bikarmeistari
með Lemgo
í byrjun júní
en hann segir
árangur liðsins
á leiktíðinni
sem er að ljúka
framar vonum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
bikarmeistari í fjórða skipti í júní-
byrjun og unnið Evrópukeppni bik-
arhafa einu sinni og EHF-keppnina
tvisvar sinnum, 2006 og 2010.
„Það verður gaman að fara í Evr-
ópukeppni með liðinu en stuðn-
ingsmenn liðsins muna vel eftir því
þegar liðinu gekk vel á þeim vett-
vangi frá um það bil 1990 til 2010.
Það er geggjað að finna fyrir því
að stuðningsmennirnir séu farnir
að mæta aftur eftir fjarveru vegna
kórónaveirufaraldursins og það
var til að mynda frábær tilfinning
að fagna bikarmeistaratitlinum
með okkar hörðustu stuðnings-
mönnum.
Við leikmenn fundum það sterkt
að stuðningsmenn voru búnir að
bíða lengi eftir titli eftir þurrkatíð
hvað bikarsöfnun varðar. Nú eru
spennandi tímar fram undan hjá
félaginu og ég er ánægður með að
hafa framlengt samning minn við
félagið fyrr á þessu ári. Ég verð hjá
Lemgo allavega eitt tímabil í viðbót
og er spenntur fyrir næsta vetri,“
segir hann.
Mun deila viskunni í Árbænum
Bjarki Már ætlar svo að gefa af sér til
uppeldisfélagsins, Fylkis, í sumarfríi
sínu en hann mun stýra handbolta-
skóla hjá félaginu sem verður hald-
inn 5.-9. júlí næstkomandi.
„Góður vinur minn kom með
þessa hugmynd og ég var bara
meira en til í þetta. Ég er grjótharður
Fylkismaður og þarna ólst ég upp.
Það er mér því bæði ljúft og skylt að
aðstoða við þjálfun þar. Skráning
gengur vel en það eru enn nokkur
pláss laus,“ segir Bjarki Már.
Landsliðsfólkið Björgvin Páll
Gústavsson og Thea Imani Sturlu-
dóttir munu mæta í heimsókn í
handboltaskólann. Heppnir ein-
staklingar í handboltaskólanum geta
einnig unnið treyju frá Aroni Pálm-
arssyni og Janusi Daða Smárasyni. n
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti þann 15. júní
2021 að auglýsa tillögu að Aðalskipulagi Reykjavíkur
til ársins 2040. Aðalskipulagstillagan er uppfærð og
endurbætt útgáfa þess aðalskipulags (AR2030) sem
staðfest var fyrir rúmum sjö árum. Tillagan byggir á
sýn og stefnumörkun AR2030, sem samþykkt var í
febrúar árið 2014 að undangengnu löngu og ítarlegu
samráðs- og kynningarferli.
Breytingartillögur miða allar að því að tryggja betur
framfylgd núgildandi meginmarkmiða aðalskipulags-
ins um sjálfbæra borgarþróun. Breytingarnar snúa
einkum að stefnu um íbúðarbyggð innan þéttbýlis
borgarinnar. Auk þess eru boðaðar stöku breytingar
á völdum atvinnusvæðum og samgönguinnviðum.
Tillögurnar gera einnig ráð fyrir því að tímabil
aðalskipulagsins verði framlengt til ársins 2040
og því eru sett fram ný meginmarkmið í völdum
málaflokkum.
Aðalskipulagstillagan, greinargerð ásamt skipu-
lagsuppdráttum, er auglýst samkvæmt 1. mgr.
36. gr, sbr. 31. gr. laga nr. 123/2010. Tillögunni
fylgir umhverfisskýrsla, sbr. lög nr. 105/2006 um
Sjálfbær, lífvænleg og kolefnishlutlaus borg.
Aðalskipulagstillaga í auglýsingu.
umhverfismat áætlana og önnur fylgiskjöl.
Tillagan er einnig auglýst með athugasemdum
Skipulagsstofnunar, dagsettar 20. maí 2021.
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkur-
borgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga
kl. 8.30–16, frá 21. júní 2021 til og með 23. ágúst
2021. Tillagan er einnig til sýnis á Skipulagsstofnun,
Borgartúni 7b.
Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött
til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athuga-
semdum skal skila skriflega til Umhverfis- og
skipulagssviðs, Borgartúni 12–14 eða á netfangið
skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 23. ágúst 2021.
Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir
innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Nálgast má öll skipulagsgögn á adalskipulag.is
og reykjavik.is