Fréttablaðið - 19.06.2021, Síða 22

Fréttablaðið - 19.06.2021, Síða 22
Breski hermaðurinn Eric Gray skrifaði bréf til fjöl­ skyldu sinnar árið 1941 skömmu eftir að hafa verið fluttur til Íslands eftir her­ námið. Bréfið varpar áhuga­ verðu ljósi á Ísland fyrri tíma. Bréf sem breski hermað­urinn Eric Gray sendi fjölskyldu sinni skömmu eftir komu hans hingað til lands síðla vetrar 1941, varpar skemmtilegu ljósi á Ísland og Íslendinga í augum breskra her­ manna á hernámsárunum. Sonur Erics, Jeffrey, setti sig í sam­ band við Fréttablaðið á dögunum eftir að hafa fundið bréf föður síns í gömlum hirslum. Eric, sem var fæddur í ágúst árið 1914, sigldi til Íslands í mars 1941, eða tíu mánuð­ um eftir að Bretar hernámu Ísland eftir að seinni heimsstyrjöldin braust út. Færður óvænt til Íslands Í samtali við Fréttablaðið segir Jeffr­ ey að faðir hans, þá 26 ára gamall, hafi aldrei ferðast utan Bretlands­ eyja þegar að Íslandsferðinni kom. „Það lengsta sem hann hafði farið var til Blackpool á vesturströnd­ inni,“ segir Jeffrey, en faðir hans ólst upp í þorpinu Standish, skammt frá Wigan í Lancashire­sýslu, þar sem hann hlaut hefðbundna grunn­ menntun til 15 ára aldurs. Að skólagöngu lokinni vann hann ýmis verslunarstörf en árið 1940 var hann fyrst kallaður í her­ inn. Fyrstu mánuðina þjónaði hann Konunglega breska f lughernum þar sem hann hlaut meðal ann­ ars þjálfun sem slökkviliðsmaður. „Hann gerði fastlega ráð fyrir því að vera á Bretlandseyjum til stríðs­ loka og það kom honum verulega á óvart þegar honum var tilkynnt að hann þyrfti að gegna herþjónustu erlendis. Hann var svo enn meira undrandi þegar hann komst að því að um Ísland væri að ræða.“ Vissu lítið um Ísland Jeffrey segir að nánustu aðstand­ endur Erics, einkum móðir hans, hafi verið mjög forvitin um hagi þessara sk r ý tnu ey jarskeg gja norður af Bretlandseyjum sem þau vissu lítið sem ekkert um. „Hann lofaði að skrifa þeim og lýsa landi og þjóð og segja frá því sem fyrir augu bar: landslagi, veðri, efnahags­ ástandi og fólkinu almennt,“ segir hann. Athygli vekur að Eric mátti ekki nefna hvar hann nákvæmlega var staddur. Í bréfinu er talað um „helsta bæinn“ á Íslandi, höfuð­ staðinn Reykjavík. Þá mátti hann ekki heldur nefna nafnið á skipinu sem flutti hermennina til landsins. Eiginkona Erics og móðir Jeffreys starfaði á þessum árum sem sauma­ kona og því er að finna í bréfinu nokkuð ítarlegar lýsingar á klæða­ burði Íslendinga. „Hann vissi að hún hefði gaman af því að fræðast meira um klæðnaðinn og það er áhugavert að lesa þessar lýsingar hans.“ Í bréfinu talar Eric sérstaklega um að kveikt hafi verið á ljósa­ staurum Reykjavíkur þegar kvölda tók. Hann átti því ekki að venjast frá Englandi því eftir að stríðið braust út var slökkt á ljósastaurum í borgum og bæjum til að verjast mögulegum loftárásum. Ísland stórfurðulegur staður í augum tuttugu og sex ára bresks hermanns Eric sést hér með kollegum sínum í breska hernum áður en hann hélt til Íslands. Hann dvaldi hér á landi í samtals fjórtán mánuði. Eric er í aftari röð, fyrsti frá vinstri. MYND/ÚR EINKASAFNI Ísland hefur vafalítið verið nokkuð framandi staður í augum hermanna sem komu hingað til lands. Eric virðist þó hafa verið nokkuð hrifinn af landi og þjóð. MYND/ÚR EINKASAFNI Bréfið sem Eric skrifaði til fjölskyldu sinnar var alls 11 blaðsíður og þar lýsti hann Íslandi og Íslendingum á ítarlegan hátt. 28. mars 1941 „Elskuleg eiginkona mín, Ég er kominn til Íslands heilu og höldnu og veit ekki alveg hvað bíður mín hér. Um það leyti sem við vöknuðum á [ritskoðað] vorum við farnir að sjá til lands og lögðumst við að bryggju í hádeginu. Ég má ekki segja ná- kvæmlega hvar ég er eða nafnið á skipinu sem ég er á. Það var fallegt um að litast þegar við sigldum til hafnar. Fjöll, þakin snjó, voru allt í kringum okkur en á jörðu niðri var enginn snjór. Veðrið hér er svipað veðrinu heima og enn sem komið er höfum við ekki þurft að klæðast aukafötum. Morguninn eftir að við komum var kalt og það var frost. Við þurfum að ganga dágóðan spöl til að komast í mat.“ Reykjavík „Staðurinn sem ég er á er nokkuð sérstakur. Húsin hér eru flest byggð úr múrsteinum og bárujárni, sum eru skringileg í laginu og staðsett á einkennilegum stöðum. Þetta er í raun eins og bær þar sem einhvers konar gullæði hefur ríkt og við sjáum stundum á myndum. Hér eru engir alvöru vegir – það eru vissulega vegir en þeir eru allir holóttir og forugir. Sumir staðir hér í bæ eru nútíma- legir en aðrir virðast mjög gamlir. Samt eru oft flottir bílar fyrir utan þessi hús, sem leggja uppi á gangstéttum, ef gangstéttar skyldi kalla. Bílar sem koma af hliðargötum njóta forgangs og þeim er ekið býsna hratt. Í mínum augum er þetta mjög furðulegur staður, öðruvísi þó á kvöldin vegna ljósanna. Hér eru ljósin ekki slökkt.“ Fólkið „Við blöndum ekki geði við heimamenn heldur sinnum okkar verkefnum. Það sama á við um Íslendinga. Það er dálítið fyndið að heyra þá tala og við tölum stundum við krakkana. Konurnar hér eru heilt yfir glæsi- legar en það skiptir engu máli fyrir mig, elskan. Þær klæðast stundum þjóðbúningum og nær pilsið, sem er yfirleitt svart eða dökkt, niður að ökklum. Konurnar eru oft með hárið í fléttu og stundum með einhvers konar hatt á höfði. Í augum okkar eru þær dálítið gamal- dags en samt nokkuð flottar. Þær blanda mjög sjaldan geði við hermenn úti á götu. Það er amerískur bragur yfir klæðaburði karlanna og er hann nokkuð frábrugðinn þeim enska. Hér virðast karlarnir njóta forgangs. Kvöld eitt fyrir skemmstu var haldinn dansleikur hér í bæ sem ég fór að vísu ekki á. Þar brutust út slagsmál milli heimamanna og komu lögreglumenn og handtóku þá. Hermennirnir sem hér eru segja að þetta sé nokkuð algengt. Hér eru nokkrir herlög- reglumenn sem geta brugðist við ef til átaka kemur milli hermanna og heimamanna. Ég veit ekki hvernig hermennirnir bera sig að við kvenmenn á böllunum því konurnar hér blanda ekki geði við okkur úti á götu. Mig grunar samt að fólkið hér sé vinalegra en það var áður og mjög margir geta talað ensku.“ Efnahagur „Það er mjög dýrt hérna en við erum með okkar eigin verslun þar sem við getum keypt helstu nauðsynjar. Það er öruggara að gera það þannig. Það hefur komið fyrir að við höfum þurft að skipta peningunum okkar í íslenska peninga. Íslenska myntkerfið er dálítið flókið og það borgar sig að vera fljótur að læra inn á það. Margar verslanir hér bjóða upp á amerískar vörur og sumar bjóða upp á vörur frá Englandi. Aðalatvinnuvegurinn hér er sjávarútvegur og það sést um leið og maður kemur að höfn- inni. Hér eru einn eða tveir staðir sem selja fisk og franskar og það getur vel verið að ég prófi þá fljótlega. Þetta er svona það helsta sem ég hef að segja að sinni. Þinn, Eric Gray“ Sjóveikir um borð Eric sigldi til Íslands ásamt nokkur hundruð hermönnum í seinni hluta marsmánaðar 1941. Segir Jeffrey að tveir tundurspillar hafi fylgt skipinu til Íslands. „Ferðin gekk vel og skipið komst til Íslands nokkuð örugglega. Sem betur fer var veður ágætt og faðir minn fann ekki fyrir sjóveiki, ólíkt öðrum hermönnum um borð,“ segir hann. Á meðan á dvöl Erics stóð á Íslandi vann hann einkum í fjar­ skiptastöðvum breska hersins hér á landi, en eins og kunnugt er tóku Bandaríkjamenn við hervörslu hér á landi síðla árs 1941. Hér að neðan má lesa útdrætti úr bréfinu þar sem Eric talar meðal annars um nátt­ úruna, höfuðstaðinn Reykjavík og Íslendinga almennt. n Bretar hernámu Ísland skömmu eftir að seinni heimsstyrjöldin braust út. Talið er að þessi mynd hafi verið tekin á fyrsta degi hernámsins. MYND/ÓLAFUR MAGNÚSSON Einar Þór Sigurðsson einarthor @frettabladid.is Þetta er í raun eins og bær þar sem einhvers konar gullæði hefur ríkt og við sjáum stundum á myndum. 22 Helgin 19. júní 2021 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.