Fréttablaðið - 19.06.2021, Síða 28
Arctic Star sæbjúgna-
hylkin innihalda ríflega 50
tegundir næringarefna sem
hafa ýmis heilsueflandi
áhrif, eins og að draga úr
stirðleika og liðverkjum,
auka blóðflæði og styrkja
ónæmiskerfið.
Sandra Yunhong She, fram-
kvæmdastjóri hjá Arctic Star, segir
sæbjúgu hafa verið notuð í Asíu
um langt skeið við margs konar
kvillum. „Í Kína eru þau stundum
kölluð „ginseng hafsins“ en Kín-
verjar eru stærstu neytendur
sæbjúgna í heiminum. Þau eru
notuð þar til að meðhöndla háan
blóðþrýsting, draga úr liðverkjum
og auka kynorku og eru einnig
vinsæl í Indónesíu þar sem þau
eru talin búa yfir lækningamætti
vegna græðandi eiginleika og eru
meðal annars notuð á magasár.“
Kollagen og vítamín
Arctic Star hefur verið með
sæbjúgu á markaðinum í um
fimm ár og hafa vörurnar frá þeim
hlotið góðar undirtektir. Nú hefur
Arctic Star bætt við úrvalið með
sérstakri blöndu af sæbjúgum, D-
vítamíni og kollageni. Sæbjúgun
(Cucumaria Frondosa) sem Arctic
Star notar eru veidd í Norður-Atl-
antshafi við strendur Íslands og
innihalda mikið magn kollagens.
Þau eru veidd úr sjónum en að
sögn Söndru eru villt sæbjúgu með
umtalsvert meiri virkni en eldis-
ræktuð sæbjúgu.
Kröftug og breiðvirk blanda
Sandra Yunhong She segir sæbjúgu mikið notuð víða í Asíu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Sæbjúgun sem við notum eru
ekki eldisafurð. Þetta er lindýr
sem vex á botni sjávar og þessi
ákveðna tegund inniheldur mjög
hátt hlutfall prótíns eða um 70%
og einungis 2% fitu. Blandan inni-
heldur að auki fiskiprótín sem
unnið er úr þorskroði ásamt stein-
efnum og vítamínum.“ Ávinningur
af neyslu kollagens er talinn marg-
þættur. „Blandan hefur sérstak-
lega góð og styrkjandi áhrif á liði,
húð, neglur og hár. Við bættum
svo við C-vítamíni en það eykur
virkni kollagensins og styrkir
brjósk, bein og húðina, ásamt því
að efla starfsemi taugakerfisins og
ónæmiskerfisins. Þá er C-vítamín
talið verja frumur líkamans gegn
oxunarálagi og draga úr þreytu og
sleni,“ útskýrir Sandra.
„Við höfum einnig bætt við
D-vítamíni en það styrkir líka
ónæmiskerfið, stuðlar að eðlilegri
upptöku líkamans á kalsíum og
fosfóri ásamt því að styrkja bein,
tennur og vöðva.“
Ríkulegt magn amínósýra
Sæbjúgu innihalda einnig mikinn
fjölda amínósýra en þær eru und-
irstaða og byggingarefni prótína.
„Meðal amínósýra sem er að finna
í sæbjúgum má nefna metíónin
sem er blóðaukandi, eykur orku
líkamans ásamt því að stuðla að
myndun húðpróteins og insúlíns.
Þá er einnig að finna amínósýruna
lýsin sem talin er efla þroska
heilans, stýra heilakönglinum,
mjólkurkirtlum, eggjastokkum
og vernda frumur líkamans gegn
hrörnun. Lýsin er líka mikil-
vægur þáttur í starfsemi lifrar og
gallblöðru og tryptófan er talið
aðstoða við myndun magasafa og
insúlíns. Amínósýran valín er líka
í sæbjúgum, en hún er sögð stuðla
að eðlilegri virkni í taugakerfi og
hefur góð áhrif á gulbú, brjóst og
eggjastokka,“ segir Sandra.
„Aðrar amínósýrur sem er
að finna í sæbjúgum eru meðal
annars treónín sem stuðlar að
jafnvægi amínósýra, leucine sem
getur lækkað blóðsykur í blóðinu
og styrkt húðina auk þess sem
sár og bein gróa betur. Einnig má
nefna isoleucine sem hefur jákvæð
áhrif á kirtlastarfsemi líkamans,
milta, heila og efnaskipti og fenýl-
alanín sem styrkir nýrun og þvag-
blöðruna ásamt því að auka virkni
ónæmisfruma líkamans og þannig
stuðla að myndun mótefna.“
Sandra byrjaði að taka inn
sæbjúgnahylki upp úr þrítugu
og segist raunar ekki hafa veikst
síðan hún hóf reglulega inntöku á
þeim. „Ég var alltaf með flensu á
hverju ári en það hefur ekki gerst
núna í langan tíma eða frá því að
ég byrjaði að taka þetta daglega.
Húðin á mér varð mun betri og hár
og neglur urðu sterkari. Þetta er
gríðarlega öflug blanda.“
Framleiðandi sæbjúgna er Arctic
Star ehf. Allar nánari upplýs-
ingar fást á arcticstar.is. Arctic Star
sæbjúgnahylki+D3 fást í f lestum
apótekum og heilsubúðum ásamt
Hagkaupum og Fjarðarkaupum.nÞað nýjasta frá Arctic Star eru sæbjúgnahylki sem eru D3-vítamínbætt.
Íslensk
framleiðsla
Mikil spenna ríkir í Þor-
lákshöfn í dag en í kvöld
er fyrsti heimaleikur Þórs
Þorlákshafnar í úrslitaein-
víginu um Íslandsmeistara-
titilinn í körfubolta.
Það er stór dagur í dag fyrir
íbúa Þorlákshafnar, en þá taka
heimamenn í liði Þórs á móti liði
Keflvíkinga í úrslitum Dom-
ino´s- deildar karla í körfubolta.
Leikurinn í dag er fyrsti heima-
leikur Þórs í úrslitunum en óhætt
er að segja að liðið hafi komið
f lestum körfuboltaspekingum á
óvart þegar það vann Keflvíkinga
í fyrsta leik á nokkuð sannfærandi
hátt.
Einn þeirra sem bíður spenntur
eftir leiknum í kvöld er Grétar Ingi
Erlendsson sem lék með liðinu á
árum áður. „Eftir að ferlinum lauk
þá færði ég mig upp í stúkuna í
klappliðið enda unun að horfa á
fyrrum liðsfélaga ásamt rísandi
ungstirnum taka við keflinu og
byggja ofan á þann mikla árangur
sem náðst hefur í körfuboltanum
hér í Þorlákshöfn. Það getur þó
stundum verið erfitt að vera ein-
ungis áhorfandi enda lifir maður
sig af öllum krafti inn í leikinn.“
Þetta er í annað skipti sem lið
Þórs Þorlákshafnar kemst í lokaúr-
slit en liðið komst síðast í úrslit á
sínu fyrsta ári í efstu deild, árið
2012. „Þá vann Grindavík okkar
lið 3-1. Sú úrslitakeppni reyndist
vera mikil og dýrmæt reynsla fyrir
okkur sem leikmenn og auðvitað
klúbbinn enda markaði þessi
sería upphaf stöðugleika áranna í
úrvalsdeild.“
Stemning og kraftur
í samfélaginu
Hann segir Þorlákshöfn vera
mikið körfuboltasamfélag og að
bæjarbúar séu ótrúlega stoltir af
leikmönnum sínum í bæði karla-
og kvennaflokki. „Hér hefur verið
haldið vel á spöðunum í gegnum
tíðina sem hefur orðið til þess að
við höfum alið af okkur keppnis-
fólk í hæsta gæðaflokki. Það
er ekki sjálfgefið að svona lítið
samfélag eigi lið í efstu deild og
því síður að kjölfestuleikmenn
liðsins séu uppaldir heimamenn.
Bæjarbúar hafa líka verið tilbúnir
til að leggja á sig mikla og óeigin-
gjarna vinnu til að dæmið gangi
upp. Þetta fólk á allt mikið hrós
skilið en það verður þó að taka
Jóhönnu Hjartardóttur aðeins út
fyrir mengið og hrósa henni sér-
staklega, enda er hún móðir körfu-
boltans hér í bæ.“
Grétar segir það vera ómetan-
legt fyrir þetta litla bæjarfélag,
sem telur tæplega 2.300 íbúa, að
eiga öflugan fulltrúa í svo vinsælli
íþrótt. „Það verður bara svo mikil
stemning og kraftur í samfélaginu
þegar vel gengur og jafnvel ótrú-
legasta fólk fer að stoppa mann
á förnum vegi til að ræða körfu-
bolta.“
Löng bið eftir leiknum
Biðin eftir leiknum í kvöld verður
án efa löng fyrir marga stuðnings-
menn liðsins en leikurinn hefst
kl. 20.15. „Ég geri ráð fyrir því að
stemningin verði rosaleg í bænum
í dag. Strákarnir tróðu sokk upp í
ansi marga með stórsigri í fyrsta
leik. Ég er fullviss um að þeir vilji
fylgja þeim sigri eftir með geggj-
uðum leik í dag og færa okkur þar
með skrefinu nær því að landa
fyrsta Íslandsmeistaratitli félags-
ins.“
Hann segir daginn í dag vera
frekar hefðbundinn en hann
muni að sjálfsögðu senda góða
strauma til félaga sinna enda fátt
annað sem hann geti í raun gert.
„Svo reyni ég auðvitað að leggja
mitt af mörkum til að hvetja þá
áfram. Ég treysti þó mun meira
á Græna drekann í þeim efnum
enda er þar að finna fólk með
sérfræðiþekkingu í að keyra upp
stemningu. Ég fullyrði að það er
ekki til betri stuðningsmanna-
sveit á landinu.“
En hvað ætlar Grétar Ingi að
gera ef Þór Þorlákshöfn vinnur
Íslandsmeistaratitilinn? „Við
skulum orða það þannig að það
verður fagnaður par excellance!“n
Oft erfitt að vera áhorfandi í stúkunni
Grétar Ingi
Erlendsson lék
áður með Þór
Þorlákshöfn en
er núna kominn
upp í stúku
að hvetja sína
menn. MYND/AÐ-
SEND
Liðsmenn Þórs Þorlákshafnar reyna að næla í fyrsta Íslandsmeistaratitil sinn í körfubolta.
Eftir að ferlinum
lauk færði ég mig
upp í stúkuna í klapp-
liðið enda unun að
horfa á fyrrum liðs-
félaga ásamt rísandi
ungstirnum taka við
keflinu og byggja ofan á
þann mikla árangur
sem náðst hefur í
körfuboltanum hér.
4 kynningarblað A L LT 19. júní 2021 LAUGARDAGUR