Fréttablaðið - 19.06.2021, Síða 79
+ + + = 19.990 kr.
A L LT ÓTA K M A R K A Ð
Svo prófaði
ég hana á
krökk-
unum
mínum og
sagði að
þetta væri
bók sem ég
væri að
þýða.
Mömmustrákur, barnabók
Guðna Kolbeinssonar, hefur
verið endurútgefin. Nú kemur
hún út með myndum eftir
Kristínu Bertu Guðnadóttur,
dóttur höfundar.
Mömmustrákur kom út árið 1982,
var endurprentuð nokkrum sinnum
og hefur lengi verið ófáanleg.
Mömmustrákur fjallar um Helga,
sem býr með einstæðri móður sinni
og þráir að hitta föður sinn. Sagan
segir frá ýmsum ævintýrum hans.
Hvað kom til að Guðni ákvað að
skrifa bókina? „Ég var byrjaður að
þýða barnabækur og mér datt í hug
hvort ég gæti ekki skrifað eina slíka
og gerði það. Ég samdi hana með
upplestur í útvarp í huga og þess
vegna voru allir kaflarnir jafnlangir.
Svo prófaði ég hana á krökkunum
mínum og sagði að þetta væri bók
sem ég væri að þýða. Þeim leist mjög
vel á, en þegar ég upplýsti þau um
sannleikann undir lokin neituðu
þau að trúa mér.“
En af hverju valdi hann þetta
söguefni? „Ég hygg að það sé skárra
að höfundur þekki sem best þær
aðstæður sem hann setur sögu
persónur sínar í. Ég var afrakstur
sambands sem síðan leystist upp
og fylgdi einstæðri móður minni
í vistum hennar allvíða um land
fyrstu fimm ár ævinnar eða rúm
lega það. Þetta var vitaskuld fyrir
daga helgarpabba og þess háttar,
þannig að ég hitti föður minn ekki
oft á bernskuárunum. Aðstæður
mínar voru því um margt líkar
og hjá Helga litla í sögunni. Stöku
atburði sæki ég í eigin reynslu
en geri þá reyndar oftast talsvert
sögulegri en þeir voru í raun, aðra í
reynslu annarra barna, til dæmis úr
ætt konu minnar, og sumir atburðir
eru að öllu leyti uppdiktaðir."
Þessi frumraun Guðna hlaut
Barnabókaverðlaun Fræðsluráðs
Reykjavíkur. „Svo skrifaði ég aðra
bók um köttinn Kela og fékk engin
verðlaun og þá hætti ég þessu,“ segir
Guðni og hlær.
Fallegur prentgripur
Ragnar Lár myndskreytti Mömmu
strák á sínum tíma en nýja útgáfan
er með myndum eftir dóttur Guðna,
Kristínu Bertu. „Bókin seldist upp
og alltof mörg barnabörn mín áttu
hana ekki. Ég ætlaði að gefa hana út
sjálfur og spurði Jónas Sigurgeirsson
hjá Bókafélaginu ráða og honum
fannst einfaldast að gefa hana út
fyrir mig. Mér finnst gaman að fá
hana gefna út aftur. Hún er fallegur
prentgripur. Björn H. Jónsson, sem
braut hana um og hannaði kápu og
útlit, er snillingur,“ segir Guðni.
Sögur um pabba
Kristín Berta segist muna vel eftir
því þegar faðir hennar las söguna
fyrir þau systkinin á sínum tíma.
Mömmustrákur að nýju
Bók Guðna Kolbeinssonar, Mömmustrákur, hefur verið endurútgefin. Kristín Berta, dóttir hans, gerði myndirnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
„Ég hef lesið hana margoft síðan.
Þegar ég var unglingur áttaði ég
mig á því að þarna voru alls konar
sögur um pabba. Hann hafði sagt
okkur frá æsku sinni og ýmislegt
sem gerist þarna er hans saga í bland
við skáldskapinn. Þessi bók hefur
alltaf átt sinn stað í hjörtum okkar
systkinanna.“
Hún segir að það hafi verið
skemmtilegt verk að gera mynd
irnar í bókina. „Pabbi sagði mér að
hann hefði í hyggju að gefa hana
út þegar hann yrði 75 ára. Ég mála
en er ekki mikill teiknari og sagði
honum að ég kynni ekki að teikna
fólk. Hann sagði að ég skyldi bara
teikna það sem ég vildi. Fyrsta
myndin sem ég gerði var af silungi
og hann sagði: Hann er svolítið eins
og lax. Þá leiðrétti ég það bara strax
fyrir veiðimanninn. Svo kom þetta
allt saman og gekk vel.“
Gamall glæpur
Nú er þessi vinsæla en lengi ófáan
lega bók komin út að nýju. Guðni
ljóstrar um leið upp um gamlan
glæp: „Eiginmaður Kristínar Bertu,
tengdasonur minn, viðurkenndi
þegar ég hafði þekkt hann um hríð,
að hann hefði á sínum yngri árum
„stolið“ Mömmustrák af Amtsbóka
safninu á Akureyri þar sem hann
hafði gleymt að skila bókinni. Hann
reyndi síðan að fela glæpinn með
því að klippa bókasafnsmerkið af
kápunni. Þetta hefur vakið nokkra
kátínu í fjölskyldunni.“ n
Kolbrún Bergþórsdóttir
Sumartónleikar Hallgrímskirkju í
Saurbæ, Hvalfirði, hefjast á sunnu
daginn 20. júní. Alls verða níu tón
leikar í sumar hvern sunnudag kl. 16
frá 20. júní til 15. ágúst. Allur ágóði
rennur til styrktar staðnum.
Tónleikaröðin hefst sunnudaginn
20. júní kl. 16.00 þegar Diddú og
drengirnir, ásamt kór Saurbæjar
prestakalls, flytja sönglög úr ýmsum
áttum. Drengirnir eru Sigurður Ingvi
Snorrason og Kjartan Óskarsson á
klarínettur, Frank Hammarin og Þor
kell Jóelsson á horn og Brjánn Inga
son og Snorri Heimisson á fagott. n
Diddú í Saurbæ
Diddú syngur á sunnudag.
Kolbrún Bergþórsdóttir
Farin verður sumarsólstöðuganga í
Viðey mánudagskvöldið 21. júní en
á sólstöðum er sólargangur lengstur
hér á norðurhveli jarðar og hádegis
sólin hættir að hækka dag frá degi.
Gestur göngunnar verður Hafdís
Hrönn Hafsteinsdóttir, lögfræð
ingur og stjórnarformaður Félags
Sameinuðu Þjóðanna á Íslandi, sem
flytur þátttakendum ávarp.
Farin verður gönguleið um vest
urhluta Viðeyjar en á leiðinni mun
sérfræðingur frá Listasafni Reykja
víkur segja gestum frá verkinu
Áföngum eftir bandaríska lista
manninn Richard Serra, sem er á
þessum hluta eyjarinnar.
Sumarsólstöðugangan hefur nú
verið stunduð árlega síðan 1985.
Siglt verður frá Skarfabakka kl. 20
og til baka ekki seinna en kl. 23. n
Sumarsólstöður
verða í Viðey
Gengið verður um Viðey á mánudag.
Menning 39LAUGARDAGUR 19. júní 2021