Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.06.2021, Qupperneq 84

Fréttablaðið - 19.06.2021, Qupperneq 84
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is n Lífið í vikunni 13.06.21 19.06.21 Daft Punk á orgel Organistinn Kristján Hrannar Pálsson útsetti plötuna Discovery eftir Daft Punk og spilaði á tón- leikum í Laugarneskirkju á mið- vikudaginn. Hann segir franskt rafpopp og orgeltónlist eiga fleira sameiginlegt en marga grunar. Dulúðin heillar Félagarnir í The After Hour fluttu lög hljóm sveitarinnar Velvet Underground síðastliðinn mið- vikudag á KEX. Þeir sökktu sér í allar upptökur sem þeir hafa komist yfir til að stúdera taktana fyrir tónleikana. Lærdómsríkt ferli Þættirnir Katla voru frumsýndir á Netflix 17. júní. Það er stórskota- lið sem stendur að baki myndinni, sem er leikstýrt af Baltasar Kor- máki. Söngkonan Guðrún Ýr, einn- ig þekkt sem GDRN, fer með eitt af aðalhlutverkunum. Snýr aftur á tískusíðuna Vilhjálmur Bjarnason var óvæntur gestur á tískusíðu Fréttablaðsins í síðustu viku vegna skemmtilega staðsettrar auglýsingar. Því þótti kjörið að fá Vilhjálm til að snúa aftur á síðuna, í þetta sinn til að sýna safn sitt af ermahnöppum. Jönu Maren og Davíð Örn langaði að glæða hverfið sitt meira lífi og stofnuðu loppu- búðina Hringekjuna. Þau fá til sín landsþekkta plötusnúða til að skemmta gestum og halda reglulega listsýningar, en í dag spilar DJ Yamaho í Hringekjunni. steingerdur@frettabladid.is Jönu Maren Óskarsdóttur og Davíð Örn Jóhannsson langaði að leggja sitt af mörkum í baráttu við text- ílsóun og bjóða upp á skemmtilegt umhverfi til þess að versla og selja notaðan fatnað á umhverfisvænan máta. Þau hafa lagt upp úr því að fá tónlistarfólk til að spila tónlist á tyllidögum og um helgar en í dag spilar Dj Yamaho fyrir gesti. „En við kjósum að kalla okkur Hringrásarverslun þar sem við leggjum áherslu á fatnað og fylgi- hluti fyrir fullorðna,“ segir Davíð. Hann segir viðtökurnar hafa verið langt fram úr væntingum. „Til að mynda má nefna að fyrstu fimmtán dagana í maí endurseldum við 1.013 vörur en fyrstu fimmtán dagana í júní höfðum við endurselt 1.464 vörur, sem er um 45 prósent aukning milli mánaða, og eru það vörur sem ekki þurfti að framleiða með tilheyrandi álagi á vistkerfið.“ Þurfum ekki alltaf nýtt Komu viðbrögðin ykkur á óvart? „Já, þau hafa svo sannarlega komið okkur á óvart og eru ævintýri líkust þar sem verið hefur stöðugur vöxtur frá upphafi, og það sem er það skemmtilega við þetta er að það græða allir á þessum viðskiptum.“ Finnst ykkur viðbrögðin sýna auk- inn áhuga Íslendinga á að endur- nýta? „Við erum afskaplega ánægð með að það er komin af stað alvöru vitundarvakning í garð endur- nýtingar á fatnaði á Íslandi og við erum að hverfa frá þeirri skammar- stefnu sem hefur verið haldið á lofti varðandi að ganga í notuðum fatnaði. Hingað kemur fólk af öllum kynjum, á öllum aldursbilum og úr f lestum þjóðfélagshópum og gleður það okkur mjög að sjá hversu útbreidd þessi hugsun er að verða í þjóðfélaginu.“ Davíð og Jana eru búsett nálægt versluninni og langaði að leggja sitt af mörkum til að glæða svæðið í kringum Túnin meira lífi. „Það hefur verið stefnan hjá okkur frá upphafi að gera það sem í okkar valdi stendur til að glæða hverfið okkar meira lífi, því við búum einnig í hverfinu sjálf.“ Reglulegir viðburðir Hvað kemur til að þið eruð svona dugleg að standa fyrir viðburðum og tónlistaratriðum í búðinni? „Við fengum til liðs við okkur Kristófer Elfar Sighvatsson, einnig þekktur sem KES, til að spila opnun- arhelgina okkar og tókst það svo vel að við ákváðum að halda því áfram. Flestir listamenn höfðu ekki spilað opinberlega sökum samkomutak- markana mánuðum saman og voru himinlifandi yfir því að fá tækifæri til að láta í sér heyra,“ segir Davíð, en þau Jana halda reglulega list- sýningar í versluninni. Eru f leiri viðburðir á döfinni hjá ykkur? „Við stefnum að því að vera með viðburði hálfsmánaðarlega út sum- arið en við fögnum einmitt sex mánaða afmæli fyrstu helgina í júlí og höfum fengið til liðs við okkur engan annan en KGB til þess að matreiða tóna ofan í gesti Hring- ekjunnar.“ n Vildu glæða hverfið lífi Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Sumar útsalan í fjórum verslunum | Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði | HEILSUDÝNUR OG –RÚM | MJÚK- OG DÚNVÖRUR | SVEFNSÓFAR | SMÁVÖRUR | STÓLAR | SÓFAR | BORÐ SMÁRATORGI OPIN Á SUNNUD. KL. 13–17 ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR www.dorma.is V E F V E R S LU N ALLTAF OPIN LICATA u-sófi Licata u-sófi í Kentucky koníak áklæði. Hægri eða vinstri tunga. Svartir nettir járnfætur. Stærð: 366 x 226 x 82 cm Dormaverð: 369.990 kr. Aðeins 221.940 kr. 40% AFSLÁTTUR SUMAR ÚTSALA Jönu og Davíð þótti upplagt að halda reglulega viðburði og fá til sín tónlistarfólk til að spila. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Dj Yamaho er með vinsælli plötusnúðum landsins. Hún spilar í Hringekj- unni frá klukkan 15.00. MYND/CASPER MAARE 44 Lífið 19. júní 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.