Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Blaðsíða 16
H. f. Eimskipafélag íslands
AÐALFUNDUR
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags Islands verður haldinn
í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík laugardaginn 11. júní
1955, og hefst hann kl. 1.30 e. h.
DAGSKRÁ:
I. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu
starfsári og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári og ástæðum
fyrir henni og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða reksturs-
reikninga til 31. desember 1954 og efnahagsreikning með athuga-
semdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til
úrskurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögu stjórnarinnar um skiptingu ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins í stað þeirra, sem úr
ganga samkvæmt samþykktum félagsins.
4. Kosning eins endurskoðanda, í stað þess er frá fer, og eins vara-
endurskoðanda.
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að
vera borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðs-
mönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 7.—9.
júní n.k. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja
fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný
umboð og afturkallanir eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins
í hendur til skrásetningar ef unnt er 10 dögum fyrir fundinn, þ. e.
eigi síðar en 1. júní 1955.
Reykjavík, 10. janúar 1955.
STJÓRNIN.
14 ÁSGARÐUR