Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Blaðsíða 42

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Blaðsíða 42
Þvottavélin MJÖLL er traustbyggð, örugg og ódýr. Er þegar í notkun á liundruðum íslenzkra heimila. Fœst með afborgunar- skjlmálum. Vélsmiðjan H É Ð I N N H. F. alveg sérstakar ástæður séu fyrir hendi, svo sem að fært sé að beita heimild 2. málsgr. 25. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, til að leyfa starfsmanni að vinna % starfstíma gegn samsvarandi launafrádrætti. Með sama hætti er rétt að veita manni lausn frá starfi vegna heilsubrests, ef hann hefur verið frá vinnu vegna veikinda tvöfaldan þann tíma, er hann átti rétt til að halda launum í fjarveru sinni sam- kvæmt 1. mgr. 6. gr. Þetta gildir þó eigi, ef læknir vottar að líkur séu til fulls bata á næsta misseri, enda sé starfsmanni þá veitt lausn að liðnu því misseri, ef hann er þá enn óvinnufær. Ekki skulu framangreindar reglur um veikindafor- föll vera því til fyrirstöðu, að starfsmanni verði veitt lausn frá störfum vegna vanheilsu, er hann æskir þess, ef hann er samkvæmt læknisvottorði orðinn varanlega ófær um að gegna starfi vegna vanheilsu. Fer þá um greiðslu launa samkvæmt 1. mgr. 21. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. 40 ÁSGARÐUR 10. gr. Halda skal skrá yfir veikindadaga oginberra starfs- manna við hverja stofnun. Ef starfsmaður flytzt milli starfa, skal leggja saman veikindadaga hans í báðum störfum, eftir því sem við á. 11. gr. Vegna bamsburðar skal kona eiga rétt á að vera fjarverandi með fullum launum í samtals 90 daga. Séu lengri frátafir nauðsynlegar að dómi lækna, skal meta þær eftir ákvæðum um veikindadaga, sbr. 6. gr. 12. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum nr. 38 14. apríl 1954, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, öðlast gildi 1. júlí 1954, og falla þá jafnframt úr giidi eldri ákvæði, er brjóta kunna í bága við ákvæði hennar. Fjármálaráðuneytið, 15. júní 1954. Skúli Guðmundsson. / Sigtr. Klemenzson.

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.