Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1958, Qupperneq 4

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1958, Qupperneq 4
Sigurður Ingimundarson kennari, form. B S.R.B. Fyrir nokkrum áratugum var markmið launþegasamtakanna einkum hækkun kaups og stytting vinnutíma. Vaxandi afskipti hins opinbera af efnahags- og atvinnumálum ásamt ýmis- konar þjóðfélagslegum umbótum og skipu- lagningu hafa á ýmsan hátt gert störf launþegasamtaka flóknari og vandasam- ari en áður var. Samþykktir félaga og landssambanda bera glögg merki þessa. Samþykktir 18. þings B. S. R. B., sem haldið var í nóvember 1956, eru hér engin undantekning. Verkefni þess þings voru auk launamála m. a. skattamál og húsnæðismál, sem hvorttveggja eru mjög þýðingarmikil mál, og mun ekki óalgengt að um 50% af tekjum launþega fari í þessa útgjaldaliði. Skiptir því miklu að hér sé málum skipað á réttlátan hátt og skynsamlega. Hér mun nánar vikið að húsnæðismálum opinberra starfsmanna, einkum lánsfjármöguleikum til húsbygg- inga og viðhorfi síðasta þings bandalags- ins til þessa máls. Erfiðleikar um útvegun lánsfjár til bygginga hafa farið ört vaxandi undan- farin ár, en jafnframt hefur byggingar- kostnaður vaxið svo mjög, að lán þau, sem opinberir starfsmenn hafa fengið hjá lífeyrissjóðum sínum, hafa sífellt orðið Byggingarlán minni og minni hluti af heildarbyggingar- kostnaði. Astandið í byggingarmálum margra opinberra starfsmanna var því orðið mjög alvarlegt. Margar íbúðir höfðu verið í smíðum árum saman, og menn höfðu ekki bolmagn til þess að ljúka smíði þeirra. 18. þing bandalagsins tók því lánsfjármálin til rækilegrar athugun- ar og samþykkti tvær tillögur, aðra um byggingalán lífeyrissjóða, hina um bygg- ingalán hins almenna lánakerfis. Skal hér vikið nánar að þessum tillögum hvorri fyrir sig og gerð grein fyrir að- gerðum bandalagsstjórnarinnar, til þess að fá þeim framgengt. Byggingarlán lífeyrissjóða. 18. þing B. S. R. B. fól bandalagsstjórn- inni að vinna að því við stjórnir lífeyris- sjóða opinberra starfsmanna, að lán þau, er sjóðirnir veita til íbúðabygginga yrðu hækkuð sem frekast væri unnt, jafnvel þó nauðsynlegt reyndist að fækka lánun- um með lengri biðtíma eða öðrum tak- mörkunum. Jafnframt var þess óskað, að reynt yrði að láta hækkanimar verka aftur fyrir sig, þannig að þær næðu einnig til þeirra, sem þegar hefðu fengið lánin, en væru í vandræðum með það að ljúka íbúðum sínum. Bandalagsstjómin kom þessum óskum strax á framfæri við stjórnir lífeyrissjóð- anna og hélt síðan fund með fulltrúum frá stjórnum þeirra, og voru þessi mál athuguð mjög ítarlega, sem of langt mál yrði að gera grein fyrir hér. 2 ÁSGARÐUR

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.