Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1958, Blaðsíða 17

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1958, Blaðsíða 17
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS AÐALFUNDU R Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags Islands verður haldinn í fundar- salnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugardaginn 7. júní 1958 og hefst kl 1,30 eftir hádegi. 1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfs- ári og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. des. 1957 og efnahagsreikning með athugasemdum endurskoð- enda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endur- skoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu ársarðsins. 3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins í stað þeirra, sem úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins. 4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess, er frá fer, og eins varaendur- skoðanda. 5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins. 6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að verða borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hlut- hafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 3.—5. júní næstkomandi. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Oskað er eftir að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu komin skrifstofu fléagsins í hendur til skráningar, ef unnt er, 10 dögum fyrir fundinn. Rey\javík, 10 janúar 1958 STJÓRNIN. ÁSGARÐUR 15

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.