Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1958, Side 17
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
AÐALFUNDU R
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags Islands verður haldinn í fundar-
salnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugardaginn 7. júní 1958 og hefst kl 1,30
eftir hádegi.
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfs-
ári og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir
henni, og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga
til 31. des. 1957 og efnahagsreikning með athugasemdum endurskoð-
enda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endur-
skoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins í stað þeirra, sem úr
ganga samkvæmt samþykktum félagsins.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess, er frá fer, og eins varaendur-
skoðanda.
5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins.
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að
verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hlut-
hafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 3.—5. júní næstkomandi. Menn geta
fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í
Reykjavík. Oskað er eftir að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu komin
skrifstofu fléagsins í hendur til skráningar, ef unnt er, 10 dögum fyrir fundinn.
Rey\javík, 10 janúar 1958
STJÓRNIN.
ÁSGARÐUR 15