Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1958, Blaðsíða 29

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1958, Blaðsíða 29
Vegna sérstöðu nokkra starfsmanna þótti ekki fært að gera ákveðnar tillögur um skipun þeirra í launa- flokk. Starfsmenn þessir eru: 1. Bæjarstjórar sem hafa þá sérstöðu að þeir eru yfirleitt ráðnir til takmarkaðs tíma, eins kjörtímabils, og hæfa því ekki þau kjör, sem fastráðnum starfs- mönnum eru ætluð. 2. Rafveitustjórar eru flestir orðnir fastráðnir starfs- menn ríkisins og þótti því ekki ástæða til þess að taka þá með í þessu frumvarpi, en þeir fáu, sem enn eru fastir starfsmenn kaupstaða eru væntanlega ráðnir á hliðstæðum kjörum við rafveitustjóra ríkisins. 3. Bæjargjaldkerar hafa sérstöðu meðal fastra starfs- manna sumra kaupstaðanna, að því er laun snertir, og þótti því ekki fært að skipa þeim í launaflokka. Sama máli gegnir um aðalbókara, líka nefndir aðal- ritarar, þeir verða að kallast skrifstofustjórar, enda eru þeir það sumsstaðar. Öðrum starfsmönnum hefur hins vegar verið skipað í launaflokka IV. til XIV. og skal getið hér nokkura at- riða í sambandi við þessa flokkun. IV. fl. Gert er ráð fyrir að hér sé um að ræða vara- bæjarstjóra eða jafngilt starf. V. fl I þessum flokki eru skrifstofustjórar stærri kaupstaða og forstjórar bæjarfyrirtækja svo sem bæjar- útgerða. VI. fl. I þennan flokk kæmu skrifstofustjórar smærri kaupstaða og ýmissa stofnana kaupstaðanna. VII. fl. Til fulltrúa I. stigs heyra m. a. framfærslu- fulltrúar, lóðarskrárritarar og/eða byggingarfulltrúar. Í þennan flokk kæmu einnig forstöðumenn bæjarstofn- ana, svo sem sjúkrahúsa og ennfremur aðal-bókarar og -gjaldkerar stærri kaupstaða og stofnana. VIII. fl. Til fulltrúa II. stigs teljast innheimtustjórar. og þar má skipa ýmsum eftirlitsmönnum og öðrum þeim er vinna sambærileg eða hliðstæð störf. Þá koma í þennan flokk aðal-bókarar og -gjaldkerar smærri kaupstaða og ýmsra stofnana og fyrirtækja, þó þeim verði ekki skipað í neinn, ákveðinn launaflokk svo einsætt þyki. IX. fl. Til fulltrúa III. stigs teljast eftirlits- og að- stoðarmenn, er vinna störf, sem ekki verða talin jafn vandasöm eða umfangsmikil og störf fulltrúa II. stigs. X. —XV. fl. Þessir flokkar þurfa varla sérstaka skýr- inga við þar sem starfsheitin skýra sig að mestu sjálf. Það skal þó tekið fram að með aflvélstjórum, er átt við þá, sem stjórna mikilvirkum vélum, krönum, skurð- gröfum og jarðýtum af stórri gerð. Hjúkrunarkonur og lögregluþjónar eru alls staðar 1 sömu launaflokkum og hafa laun annarra starfsmanna mjög verið við það miðað. Sama gildir um verkamenn og iðnlærða starfsmenn. Flokkstjórum var sleppt vegna þess að þeir munu óvíða vera starfandi, en í launastiga er þeim ætlað þrep næst fyrir ofan sérverkamenn eða iðnaðarmenn séu þeir iðnlærðir. Réttara þótti að nota ekki starfsheitin eftirlits- og aðstoðarmenn, þar sem þau eru oft villandi og gefa enga hugmynd um starfann sjálfann. Hins vegar voru tekin úr launalögum starfsheitin fulltrúar, bókarar og ritarar I. II. og III. stigs, þar sem ætla má að þau festist í málinu og fái ákveðna merkingu. Meðalalýsi Fóðurlýsi MEÐALALÝSI, bæði ÞORSKALÝSI og UFSALÝSI, í eftirgreindum umbúð- um: Flöskur, innihald 325 gr., 24 og 48 fl. í kassa. Dósir, innihald 2,5 kg., 6 dósir í kassa. Brúsar, innihald 21 kg. Tunnur, innihald 105 kg. Tunnur, innihald 193 kg. LÚÐULÝSI í dósum, innihald 2,5 kg. FÓÐURLÝSI í eftirgreindum umbúð- um: Dósir, innihald 2,5 kg., 6 dósir í kassa. Brúsar, innihald 21 kg. Tunnur, innihald 105 kg. Tunnur, innihald 180 til 195 kg. Vitamíninnihald lýsisins: Þorskalýsi yfir 1000 A 100 D Ufsalýsi yfir 2000 A 200 D Lúðulýsi yfir 50000 A Fóðurlýsi yfir 1000 A 100 D Sendum gegn póstkröfu til kaupenda úti á landi. Fyrirspumum svarað í síma 15212. — Afgreiðsla lýsisins er á Grandavegi 42. LÝSI H.F. Hafnarhvoli, P. O. Box 625. Reykjavík. í ÁSGARÐUR 27

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.