Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1958, Blaðsíða 7

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1958, Blaðsíða 7
"7 ABENDiNG til deilda og stofnana ríkisins. Þér forstjórar, fulltrúar og aðrir, sem annist innkaup fyrir ríkið eða ríkisfyrirtæki, hafið í huga að stofnun vor er til þess að annast öll innkaup fyrir ríkið og einstakar deildir þess, að einkasölunum frátöldum. Lög og reglugerð hér að lútandi hefir verið sniðgengin að verulegu leyti. Fjölmargar ríkisstofnanir hafa þó gert innkaup sín fyrir milli- göngu vora á mjög ánægjulegum og hagkvæmum grundvelli. Sannanir eru fyrir því, að milljónir króna hafa sparazt fyrir ríkið vegna tilveru og starfa Innkaupastofnunar ríkisins. Innkaupastofnun ríkisins var stofnsett í tvennum tilgangi: í 1. lagi, að safna á eina hönd öllum innkaupaþörfum ríkis og ríkisfyrirtækja, þannig að í krafti þess mikla vörumagns fengist allra lægsta verð á heims- markaðinum. í 2. lagi, að spara sömu stofnunum að hafa mann með sér- stakri verzlunarþekkingu, og jafnframt spara dýr- mæta starfskrafta tæknisérfræðinga, s. s. verk- fræðinga, lækna, veðurfræðinga o. s. frv., sem víða veita opinberum stofnunum forstöðu, og hafa þurft að vasast í vöruinnkaupnm jafnhliða starfi sínu. Kynnið yður starfsemi stofnunar vorrar; forstjóri vor mun gefa yður allar upplýsingar. Innkaupastofnun ríkisins Ránargötu 18, símar: 18565—18566. ÁSGARÐUR 5

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.