Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1958, Qupperneq 6
eftir fresti þar til séð yrði, hver fjárráð
hún fengi. Og síðar þótti bandalagsstjórn
ekki ráðlegt að láta til skarar skríða fyrr
en séð væri fyrir um afgreiðslu hins nýja
frumvarps um húsnæðismálastjórn.
Þegar hið nýja frumvarp lá fyrir,
reyndust í því ákvæði, sem í framkvæmd
hefðu algjörlega lokað fyrir það, að opin-
berir starfsmenn fengju lán, þar sem til-
tekið var, að forgangsréttar um lán skyldu
þeir njóta, er eigi höfðu fengið önnur
föst veðlán út á byggingar sínar.
Bandalagsstjórnin fór strax að vinna
að því að fá þetta ákvæði frumvarpsins
fellt niður. I því sambandi var talað við
3 ráðherra, einn úr hverjum stjórnmála-
flokki, og þingnefndum þeim, sem málið
höfðu til afgreiðslu, var skrifuð ítarleg
greinargerð um viðhorf opinberra starfs-
manna til þess. Þetta bar þann árangur,
að ákvæðið var fellt niður.
I heild tel ég að frumvarpið hafi aukið
líkurnar fyrir því, að okkur verði eitt-
hvað ágengt í þessu máli. Frumvarpið
gaf okkur sérstakt tækifæri til þess að
kynna okkur málstað á æðri stöðum, og
auk þess má nota ýmis atriði þess sem
ný rök fyrir málsstað okkar, t. d. ákvæðin
um skyldusparnað, en framlag okkar til
lífeyrissjóðsins verkar að öllu leyti sem
skyldusparnaður, og ef réttmætt er að
verðlauna aðra fyrir skyldusparnað, er
varla réttmætt að refsa opinberum starfs-
mönnum fyrir slíkan sparnað.
Þá er einnig rétt að geta þess, að lögin
gera ráð fyrir 1% tekjuskattsviðauka, sem
renna skal í lánasjóðinn.
Af þeim atriðum, sem hér hafa verið
dregin saman, er það ljóst að opinberar
ráðstafanir hafa þrengt um lánsfjármögu-
leika á frjálsum markaði og að skyldur
og álögur samkv. þessum lögum og ráð-
stöfunum hvíla jafnt á opinberum starfs-
mönnum sem öðrum, og er þess þá að
vænta að þeir fái svipaða hlutdeild í rétt-
indunum og aðrir menn, og var banda-
lagsstjórnin því vongóð um árangur.
Var nú beðið eftir því að samin væri
reglugerð um úthlutun íbúðarlána samkv.
lögunum. Reglugerð þessi liggur nú fyrir,
en í henni eru ákvæði, sem valdið hafa
bandalagsstjórninni sárum vonbrigðum.
Skulu hér raktar nokkrar helztu regl-
umar um úthlutun lána.
Reglugerðin gerir ráð fyrir að fyrst
um sinn sé aðeins lánað til byggingar
íbúða sem eru 360 m3 eða minni og er
lánsþörf manna metin eftir sérstöku stiga-
kerfi, sem í aðalatriðum er sem hér
segir:
a. Vegna þröngbýlis ........ 0—65 stig.
b. Vegna ástands íbúðar og
þægindaskorts ........... 10—70 stig.
c. Vegna heilsufarsástæðna 10—35 stig.
d. Vegna aldurs umsóknar allt að 60 stig.
Frá stigafjölda þeim, sem fæst sam-
kvæmt framanrituðu, eru dregin stig sem
hér segir, vegna eftirfarandi aðstæðna:
a. Eigi umsækjandi eða hafi átt
fullnægjandi íbúð á s.l. tveim
árum......................... 100 stig.
b. Ef nettótekjur samkv. skatt-
skrá eru yfir 100 þús. kr. 40—100 stig.
c. Skuldlaus eign yfir 300 þús-
und kr....................... 60 stig.
d. Vegna annarra lánsmöguleika:
Lán að upphæð 50—80 þús. kr. 20 stig.
Lán að upph. 81—120 þús. kr. 40 stig.
Lán yfir 120 þús.......... kr. 60 stig.
Þegar stigakerfi þetta er athugað, verð-
ur það ljóst, að opinberir starfsmenn eru
litlu nær því er áður var, að njóta rétt-
inda hjá hinu almenna lánakerfi. Þeir eru
að vísu ekki skilyrðislaust útilokaðir, en
í framkvæmd mun algengt að þeir fái
40 stiga frádrátt vegna lífeyrissjóðsláns-
ins, og verður það þungt á metunum
meðan umsóknarfjöldi er jafnmikill og
nú er.
Eins og sýnt var fram á í upphafi þess-
arar greinar eru lífeyrissjóðslánin svo
4 ÁSGARÐUR