Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1958, Blaðsíða 15
Jón Þórðarson sjúkrahússtjóri:
Þankor um skipulags
mól B.S. R. B.
Skipulagsmál B. S. R. B. hafa stöðugt
verið á dagskrá síðustu bandalagsþinga.
Fyrir þingin hafa verið lagðar fram marg-
ar tillögur og nefndarálit, án þess þó að ná
fram að ganga.
Á síðasta bandalagsþingi (18.) voru á
þingskjali IV. lagðar fram breytingartil-
lögur við aðildarráð að bandalaginu.
Nefnd sú, er fékk málið til meðferðar,
taldi ekki rétt að afgreiða málið á þinginu.
Áleit hún rétt að milliþinganefnd fjallaði
um málið og tæki þá skipulag B. S. R. B.
og lög þess í heild til endurskoðunar. Var
það samþykkt.
í greinargerð, er nefndin lét fylgja, taldi
hún þessar breytingar æskilegar:
a. Að sett verði ákvæði um lágmarks-
fjölda félagsmanna í hverju banda-
lagsfélagi.
b. Að fámennir starfshópar myndi sam-
bönd, er séu aðilar að bandalaginu.
c. Að hverju bandalagsfélagi sé tryggð-
ur lágmarksréttur til tveggja full-
trúa.
d. Að fulltrúaþing verði fámennari en
nú er, með því m. a. að sett séu
ákvæði um hámark fulltrúafjölda frá
hverju bandalagsfélagi.
e. Að sett sé fast fulltrúaráð, skipað
einum fulltrúa frá hverju bandalags-
félagi.
Við fyrstu yfirsýn, verður strax á vegi
manns sá höfuðvandi, að ákveða starfs-
svið og starfssvæði félagsins. Ennþá eru
ekki nein ákvæði eða reglur, er binda
þetta. Hafa þó komið fram dæmi, er fært
hafa heim sanninn um, hve knýjandi nauð-
syn er á, að þær verði settar sem fyrst.
Innan bandalagsins eru margskonar
félög, s. s. landsfélög, félög bundin við
ákveðnar stofnanir, félög ákveðinna starfs-
félög, er ná yfir starfsfólk ákveðinna
starfshópa í einum landshluta og lands-
félög, er ná yfir starfsfólk ákveðinna
stofnana. Ennfremur eru þar félög opin-
berra starfsmanna ríkis og bæja í ákveðn-
um kaupstöðum.
Innan vébanda ýmissa þessara félaga
eru einstaklingar, sem hvorki eru starfs-
menn ríkis né bæjarfélaga. Er þar sérstak-
lega átt við starfsmenn sjálfseignastofn-
ana, sem starfa samkv. sérstökum lögum,
eða ríki og bæjarfélög eru þar hluthafar,
svo og stofnanir, sem reknar eru með
styrktarfé frá þessum aðilum. En vegna
menntunar sinnar og starfsins, eiga þessir
einstaklingar hvergi heima, nema innan
félaga, sem eru aðildarfélög að bandalag-
inu. Má þar nefna fríkirkjupresta, hjúkr-
unarkonur við sjálfseignastofnanir, kenn-
ara við einkaskóla og m. fl.
Auðsætt má vera af upptalningu þess-
ari, að uppbygging B. S. R. B. er harla
laus í reipunum. Hjá því verður ekki
komizt, að starfssvið og starfssvæði verði
eitthvað mismunandi. Tvær ættu þó að
vera aðalleiðirnar:
a. Að binda félögin við stofnanir.
b. Að binda félögin við starf eða
menntun.
Eftir þessum tveim meginleiðum ætti
að stefna að því, að aðildarfélögin verði
ÁSGARÐUR 13