Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1958, Blaðsíða 33
Þingtíðindi 18. þings B.S.R.B.
Síðasta þing B. S. R. B., hið 18. í röðiimi, var
haldið í nóv. 1956, hófst fösitudaginn 16. kl. 17 og
lauk þriðjudaginn 20. nóv. kl. 24. Það stóð þann-
ig í 5 daga samfleytt og fór fram í isamkomusal
Melaskólans í Reykjavík.
Fulltrúi Sambands ísl. bankamanna, Einvarður
Hallvarðsson, flutti þinginu kveðjur og árnaðar-
óskir frá samtökum sínum, en aðrir slíkir full-
trúar félagsheilda voru ekki viðstaddir þing-
setningu. Hafði þó einnig verið boðið fulltrúum
frá Alþýðusambandi íslands, Stéttarsambandi
bænda, Verzlunarmannasambandi íslands og
Farmanna- og fiskimannasambandinu.
Þingið sóttu 105 fulltrúar frá 24 sambands-
félögum. Þingforsetar voru kjörnir: Björn L.
Jónsson veðurfr. (aðalforseti), Júlíus Björnsson
umsjónarmaður og Maríus Helgason símstjóri.
Aðalritarar: Guðjón Gunnarsson framfærslufull-
'trúi og Arsæll Sigurðsson kennari.
Þessar nefndir störfuðu á þinginu: Nefndanefnd
(framsögumaðm Pálmi Jóisefsson skólastjóri),
dagskárnefnd, fjárhagsnefnd (framsögum. Jón
Tómasson isímstj.), allsherjarnefnd ( framsögum.
Eggert Einarsson héraðslæknir), menningarmála-
nefnd (framsögum. Baldur Pálmasson útviltr.),
dýrtíðarmálanefnd (fram.sm. Guðjón B. Baldvins-
son deildarstj.), starfskjaranefnd (frams.m. Agnar
Stefánsson loftskeytam.), eftirlaunamefnd (fram-
sögum. Eyjólfur Jónsson lögfr.), sikattamálanefnd
(framsögum. Ólafur Sveinsson deildarstj. og
Sigríður Eiríksdóttir hjúkrunarkona), laga- og
skipulagsnefnd (framsögum. Helgi Þorláksson
kennari) og launamálanefnd (framsögum. Val-
borg Bentsdóttir skrifststj.).
Er að stjórnarkjöri kom, baðst formaðurinn,
Ólafur Björnsson prófessor, undan endurkosn-
ingu. Þakkaði hann meðstjórnendum gott sam-
starf á liðnum árum og öllum þeim, er stutt hafa
hann í starfi fyrir bandalagið. Óskaði hann sam-
tökunum alls góðs í framtíðinni. Hið sama gerði
og varaformaðurinn, Arngrímur Kristjánsson
skólastjóri, sem baðst einnig undan endurkosn-
ingu. Voru þessum forustumönnum þökkuð
mikil og góð störf fyrir samtökin, ólatmuð og
óeigingjörn störf.
-Stjórnarkosning. I formannskjöri voru Baldur
Mö-ller stjórnarráðsfltr. og Sigurður Ingimundar-
son kennari. Sigurður varð hlutskarpari og hlaut
58 atkv., en Baldur fékk 47 atkv. og varð sjálf-
kjörinn varaformaður. Með þeim voru kjörnir í
Baldur Möller varaformaður.
stjórn bandalagsins þessir 7 menn: Guðjón
Gunnarsson framfærslufltr., Hafnarfirði (98
atkv.), Júlíus Björnsson umsjónarm. (96 atkv.),
Eyjólfur Jónsson lögfræðingur (91), Miagnús
Eggertsson lögreglum. (85), Andrés Þormar
gjaldk. (82), Kristján Gunnarsson kennari (81)
og Aðalsteinn Halldórsson tollv. (72), allir í
Reykjavík. Guðjón B. Baldvinsson deildarstj.
hlaut 61 atkv. og Kristján Jakofosson póstm. 48
atkv. Þrír seðlar voru ógildir. I varastjóm voru
kosin: Elín Eggerz Pétursdóttir hjúkrunarkona
(82 atkv.), Aðalsteinn Norberg símafltr. (68),
Guðjón B. Baldvinsson deildarstj. (58) og Ólafur
Bjarnason læknir (55 atkv.).
Endurskoðendur vom kosnir: Björn L. Jónsson
veðurfr. og Karl Torfason aðalbókari, — og til
vara Hannes Jónsson fyrrv. alþm.
Kosnar voru tvær milliþinganefndir. I laga-
og skipulagsmálum: Jón Þórðarson sjúkrahússtj.
Skarphéðinn Pétursson póstm., Guðmundur
Magnússon kennari, Aðalsteinn Norberg símafltr.
og Björn L. Jónsson veðurfr. I laimamálum
kvenna: Valborg Bentsdóttir skrifstofustj., Inga
Jóhannesdóttir skrásetj. og Anna Loftsdóttir
hjúkmnarkona.
Á þinginu flutti Eyjólfirr Jónsson lögfr. erindi
um dvöl sína í enskum skóla á næstliðnu sumri,
en isá skóli er starfræktur af starfsmannasamtök-
um þar í landi.
Að kvöldi næstsíðasta fundardags sátu þing-
fulltrúar matarveizlu í ráðhierrabústaðnum við
Tjarnargötu í boði fj ármálaráðherra, Eysteins
ÁSGARÐUR 31