Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1958, Blaðsíða 35
Jónssonar. Þótti öllum þar gott að dvelja. Ráð-
herra talaði til gesta sinna, en af þeirra hálfu
töluðu próf. Olafur Bjömsson fráfarandi for-
maður og Bjöm L. Jónsson fyrsti forseti þingsins.
Hér á eftir fer fyrst skýrsla bandalagsstjórnar,
sú er lá fjölrituð fyrir þinginu, en síðan sam-
þykktir þingsins.
Skýrsla bandalagsstjórnar.
Launamálið.
Frá því er síðasta aukaþingi bandalagsins lauk
í maí 1955, hefir launamálið verið mikilvægasta
máhð, er stjóm bandalagsins hefir haft til með-
ferðar.
Nefnd sú er ríkisstjórnin skipaði haustið 1954
til þess að undirbúa setningu nýrra launalaga,
skilaði áliti sínu í sept. 1955. Samkvæmt tillögum
nefndarinnar skyldu grunnlaun opinberra sitarfs-
manna hækka um 9—10% frá gildandi launalög-
um að viðbættri 20% hækkun. Greidd skyldi
ennfremur full dýrtíðaruppbót skv. gildandi
kaupgjaldsvísitölu á öll laun. Ennfremur vom
nokkrir starfshópar og einstaklingar hækkaðir
um 1—2 launaflokka. Fmmvarp til launalaga
var svo sem ráð hafði verið gert lagt fyrir
Alþingi í byrjun nóv. 1955. Allmargar óskir um
hækkanir í launaflokkum til handa starfshópum
og einstaklingum bárust fjárhagsnefndum þings-
ins frá bandalagsfélögum. Var öllum þeim vísað
til launalaganefndar til umsagnar og voru flestar
þær hækkunarbeiðnir er nefndin mælti með
teknar til greina með breytingartillögum, er
fjárhagsnendirnar fluttu við frv. Lögin voru
endanlega samþykkt fyrir jól 1955. Verður nánari
grein gerð fyrir launalagafrv. og meðferð þess í
framsögu af hálfu bandalagsstjórnarinnar.
Orlof opinberra starfsmanna.
I samningum atvinnurekenda og verkalýðs-
félaga eftir verkfallið 1955 var ákveðið að orlofsfé
skyldi hækka úr 5% í 6% af greiddu kaupi. Þar
sem svo langt var liðið á orlofsárið (er reiknað
er frá 1. júlí til 30. júní), gerði stjórn banda-
lagsins ekki kröfu til lengingar orlofs sumarið
1955, en fékk loforð þáverandi ríkisstjómar fyrir
því, að orlof opinberra starfsmanna skyldi á
næsta ári lengt til samræmis við lengingu or-
lofs á almennum vinnumarkaði. A s. 1. verti bar
stjóm bandalagsins fram kröfu um það að öll
orlof opinberra starfsmanna yrðu lengd um 3
daga. í reglugerð um orlof opinberra starfs-
manna, er út var gefin í marz s. 1. voru 15 og
18 daga orlofin lengd um 3 daga, en lengri orlof
látin haldast óbreytt. Fyrir Alþingi það, er nú
situr, hefir verið lagt frv. til staðfestingar reglu-
gerð þessari. Stjóm bandalagsins hefir lýst þeirri
skoðun sinni gagnvart ríkisstjóminni að hún
teldi ákvæði frumvarpsins ófullnæga lausn á
orlofsmálinu og hefir enn eigi náðst um það
samkomulag.
Þing norrœnna bœjarstarfsmanna í
Reykjavík.
I lok júnímánaðar s. 1. var háð hér í Reykjavík
fulltrúaþing norrænna bæj arstarfsmanna. Ann-
aðist stjóm bandalagsins, Starfsmannafélög
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, Reykjavíkurbær
og Hafnarfjarðarkaupstaður móttökurnar. Full-
trúaþingið fór hið bezta fram og virtust erlendu
fulltrúamir vera mjög ánægðir með förina.
SAMÞYKKTIR
18. þings Bandalags starfsmanna
ríkis og bœja.
Launamál.
i.
18. þing B. S. R. B. telur, að þótt launalög væm
sett á síðasta Alþingi, hafi margir opinberir
starfsmenn ekki fengið viðunandi lausn á launa-
málum sínum, hvorki að því er snertir sam-
ræmingu við aðrar stéttir þjóðfélagsins né launa-
flokkun, þannig að störf þeirra em ekki metin
sem skyldi með tilliti til þeirrar ábyrgðar, er
þeim fylgir.
Felur þingið stjóm bandalagsins að vinna
ötullega að því í nánu samstarfi við hlutaðeig-
andi félög, að rétta hlut allra þeirra, sem við
órétt búa.
II.
18. þing B. S. R. B. felur stjórn bandalagsins
að vinna að því, að endurmetin verði þau störf
hjá ríki og bæjarfélögum, sem hingað til hafa
verið vanmetin til launa, vegna þess að þau
vom talin „kvennastörf", þegar þeim var skipað
í launaflokka. Má þar nefna hjúkrunarkonur,
talsímakonur, vélritara og Ijósmæður.
Ennfremur felur þingið stjórninni að vinna
að því, að lagfærð verði svo fljótt sem auðið
er þau mistök, sem orðið hafa við setningu og
framkvæmd launalaga, að ýmis ritarastörf og
fleiri störf, hafa raunvemlega lækkað í launa-
stiga.
ÁSGARÐUR 33