Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1958, Qupperneq 41
að rannsaka, með hvierjum hætti er unnt að fá
keypta tryiggingu fyrir opinbera starfsmenn, er
greiðist út, ef þeir andast áður en þeir hafa náð
hámarksstarfsaldri eða rétti til fullra eftirlauna.
Stjórnin vinni síðan að því, að opinberir launa-
greiðendur kaupi slíka tryggingu fyirr starfs-
menn sína.
V.
18. þing B. S. R. B. felur væntanlegri stjóm
bandalagsins að fá rannsakað, hversu mikla
hækkun á iðgjaldi til lífeyrissjóðs myndi þurfa
til þess, að hægt væri að gera þær breytingar
á lögum sjóðsins, að lífeyrir næði til eftirlifandi
foreldra sjóðfélaga, og bama, sem eru öryrkjar.
Menningarmál.
I.
18. þing B. S. R. B. skorar á forsætisráðuneytið
að gefa út á næsta ári skrá um ríkisstofnanir og
starfsfólk þeirra, þar sem tilgreint sé nafn og
staða hvers fastráðins manns, og fylgi þá
gjarnan upplýsingar um, hve lengi hlutaðeigandi
starfsmaður hefur verið í ríkisþjónustu. Gagn-
legt væri, að í þessum ritlingi yrði einnig stutt
ágrip úr starfssögu hverrar ríkisstjórnar.
Handbókin verði síðan endurskoðuð og gefin
út á fimm ára fresti. Upplaginu verði helzt dreift
ókeypis til ríkisstofnana í hlutfalli við tölu
starfsdeilda á hverjum stað, og einnig verði hluti
þess hafður til sölu við hóflegu verði.
Samtímis beinir þingið þeirri áskorun til
stjómar Sambands ísl. sveitarfélaga, að hún
beiti sér fyrir samningu samskonar handbókar,
að því er tekur til kaupstaða og stofnana þeirra.
II.
I framhaldi af samþykkt 18. þings B. S. R. B.
um 5 þús. króna framlag til styrktar bágstödd-
um Ungverjum, vill þingið lýsa fordæmingu
sinni á beitingu ofbeldis í skiptum þjóða í milli
og vottar samúð öllum þjóðum, sem eiga í bar-
áttu fyrir frelsi sínu og sjálfstæði.
Ýmsar samþykktir.
i.
18. þing B. S. R. B. telur óréttmætt að fast-
ráðnir opinberir starfsmenn skuli ekki hafa
fenigið lán hjá neinu hinu almenna lánakerfi og
skorar á stjórnarvöld landsins að sjá um, að
þeirri venju verði breytt. Þingið leggur áherzlu
á, að lögboðin fasteignaveðslán á 1. veðrétt verði
tryggð opinberum starfsmönnum jafnt og öðr-
um, og vekur athygli á því, að iðgjöld opinberra
starfsmanna til lífeyrissjóða eru þeirra spari-
fjársöfnun.
II.
Eftirfarandi till. var vísað til bandalagsstjómar:
Bandalagsstjóm skal fara fram á við hlutað-
eigandi ráðuneytisstjóra að þeir láti formönnum
bandalagsfélaga í té nokkur eintök af sérprent-
uðum reglugerðum, er varða störf opinberra
starfsmanna, þegar er þær hafa öðlast staðfest-
ingu.
III.
18. þing B. S. R. B. felur stjóm bandalagsins
að vinna að því við stjómir lífeyrissjóða opin-
berra starfsmanna í samráði við hlutaðeigandi
fulltrúa bandalagsins o gstéttarfélaga í stjórnum
sjóðanna, að lán er lífeyrissjóðirnir veita til
íbúðabygginga, verði hækkuð svo sem frekast
er unnt, og athugi í því sambandi, hvaða leiðir
væm hentugastar til þeirrar fækkunar á lán-
um, sem óhjákvæmilega kunna að verða vegna
hækkunar lánanna.
Þingið felur bandalagsstjóm að láta athuga
möguleika á því, að lán þau, er samþykkt hafa
verið á þessu ári, verði hækkuð.
IV.
I tilefni iaf því, að „Intemational Federation
of Unions of Employees in Public and Civil
Servioes“ hefur ritað bandalaginu og farið þess
á leit að það gerist aðili að sambandinu, álykt-
aði þingið að svara erindinu ekki ákveðið að
svo stöddu, en fól stjórn bandalagsins málið til
frekari upplýsinga og athugunar fyrir næsta
reglulegt bandalagsþing.
Skipulagsmál.
18. þing B. S. R. B. samþykkir að vísa till. á
þskj. IV til þriggja manna nefndar, er það kýs
til að endurskoða lög og skipulag bandalagsins
fyrir næsta reglulegt fulltrúaþing.
Stjórn bandalagsins skal innan eins árs kalla
saman ráðgjafarþing skipað 2 fulltrúum frá
hverju bandalagsfélagi. Leggi nefndin tillögur
sínar fyrir þingið til umræðu og athugunar.
Fjárhagsmál.
Samþykktar voru tillögur fj árhagsnefndar um
hluta starfslauna, sem ráð er gert fyrir á fjár-
hagsáætlun að varið verði til erindreksturs.
Þingið lagði ríka áhrezlu á, að stjóm banda-
lagsins vinni áfram að því við Alþingi og ríkis-
stjóm, að bandalagið njóti styrks úr ríkissjóði
til starfsemi sinnar hliðstætt því, sem önnur
hagsmunasamtök hafa hlotið.
Þá var samþykkt að stofna hússjóð með 40
þús. króna stofnfé.
ÁSGARÐUR 39