Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1965, Page 15

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1965, Page 15
í hinni vistlegu baðstofu S.Í.B.S. á sjöttu hæð eru frambornar myndarlegar veitingar fyrir starfsfólk og ber þar ýmis- legt á góma yfir rjúkandi kaffibollum og glæsilegu meðlæti. Komið við á kjörstað. Yfirkjörstjórn atkvæðagreiðslunnar er til húsa í kennarastofu skólans, þar sem kosið er, en hana skipa þau Hrefna Sig- valdadóttir, Hörður Bjamason og Þor- steinn Óskarsson, sem er varamaður Ein- ars Ólafssonar, sem er fjarverandi úr bænum. Þá er og Þórður Hjaltason þeim til aðstoðar. Þau bera sig illa yfir dræmri sókn og láta í það skína, að fólk sé orðið vant því að hugsað sé fyrir það að minnsta kosti í félagsmálum, og Þorsteinn segir, að vinnuþrælkunin drepi allan áhuga fólks fyrir félagsstörfum og í raun og veru sé varla hægt að halda uppi neinni eðlilegri áhugastarfsemi, þegar fólk hafi ekki tíma til neins nema rétt að sofa og eta. Þegar komið er niður á neðri hæð hitt- ist svo á, að í þriðju kjördeild er að greiða atkvæði lágvaxinn, snaggaralegur, rosk- inn maður, sem blaðið víkur sér að og spyr heiti. „Ég heiti Ólafur Blöndal og starfa hjá Sauðfj árveikivörnunum“. „Og hvert er starf þitt?“ „Ja, það tæki langan tíma að telja þau öll upp,“ segir Ólafur og brosir, „en á pappímum er ég kallaður skrifstofustjóri, en í rauninni er ég ýmislegt fleira, og ef þú nennir að hlusta, þá get ég látið þér í té nokkrar upplýsingar um starf mitt. Sauðfjárveikivarnir tóku til starfa sem sjálfstæð stofnun í apríl 1937 og þá byrj- aði ég að starfa þar. Þetta var alveg sér- Ólafur Blöndal kýs. stæð stofnun og engin fyrirmynd um bók- hald eða annað og kom því í minn hlut að „stilla“ upp bókhaldi, sem að gagni mætti koma, þannig að réttar greiðslur kæmu á tilheyrandi kostnaðar- liði, og hefur bókhaldinu aldrei verið breytt síðan. Starf mitt hefur því m. a. verið allt bókhald stofnunarinnar, þar í innifalin móttaka á skilagreinum frá um 28 fulltrúum, er hafa eftirlit með girð- ingum og vörzlu á hinum ýmsu svæðum á landinu. Það eru stórar fjárhæðir, sem þessum fulltrúum er sent árlega, og skila- greinar þurfa að berast vel tímanlega fyrir hver áramót. Þá hef ég og haft gjaldkerastarf með höndum að öllu leyti síðan 1947. Einnig hef ég með að gera móttöku á öllu girðingarefni, sem pantað ÁSGARÐUR 15

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.