Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1965, Blaðsíða 17

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1965, Blaðsíða 17
Kosið í Hafnarfirði. andi áhugi, á síðasta aðalfundi mættu sextán félagar í fjögur hundruð manna félagi.“ Hafnarfjörður. í Hafnarfirði er kosið í Lækjarskólan- um, eins og barnaskólinn við Lækinn er kallaður. Formaður undirkjörstjórnar í Firðinum er Eiríkur Pálsson, skattstjóra- fulltrúi. í Hafnarfirði eiga kjörsókn ríkis- starfsmenn búsettir í Hafnarfirði og Garðahreppi. Einn þriðji hluti félags- manna hefur neytt atkvæðisréttar síns, þegar litið er inn að kvöldi laugardags. Með Eiríki Pálssyni sitja í kjörstjórn þeir Snorri Jónsson kennari og Þorgeir Ibsen skólastjóri og allir eru þeir hressir og vongóðir um að Hafnarfjarðarkjördæmi muni áreiðanlega skila sér vel. Laugardagskvöld. Klukkan er rúmlega tíu að kvöldi laug- ardags, og síðustu listar eru að berast upp á skrifstofuna á Bræðraborgarstíg neðan úr skóla. í ljós kemur að um það Framámenn í Starfsmannafélagi ríkisstofnana. bil þriðjungur félagsbundinna manna hefur greitt atkvæði fyrri daginn í Reykjavík. Utan af landsbyggðinni ber- ast þær fréttir, að atkvæðagreiðslan hafi gengið þar yfirleitt fjörugar til og m. a. hafa allir félagar á Siglufirði skilað sér á kjörstað, og frá fleiri stöðum berast góðar fréttir. Aróðursnefndin leggur á ráðin fyrir sunnudaginn, og ákveðið er að mæta snemma og skipuleggja harða sókn. Allir eru á einu máli um það, að litið verði á úrslit allsherjaratkvæðagreiðslunnar sem nokkurs konar barómet um áhuga ríkis- starfsmanna fyrir nýjum samningum. Sunnudagurinn. Veður er hagstætt á sunnudag, og kjör. sókn helzt svipuð og daginn áður. Fjöl- menni er á skrifstofunni á Bræðraborgar- stíg og sífellt kapphlaup um símann, allir vilja hringja og ýta við þeim, sem enn hafa ekki greitt atkvæði. Flestir sem nást til hafa uppi einhverjar afsakanir og lofa að bæta ráð sitt, sumir eru fjarverandi ÁSGARÐUR 1 7

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.