Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1965, Blaðsíða 18
♦
♦
♦
♦
♦
♦
Spyrjið um skrautskeyti
LANDSSÍMANS
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
þegar þér sendið vinum yðar tækifæriskveðjur.
Sýnishorn eru í Símaskránni.
aðrir veikir sem sagt allur gangur. Reynt
er að hafa samband við sem flesta trún-
aðarmenn til að þeir geti safnað sínu
fólki saman.
Starfið á skrifstofunni líkist nú meir
venjulegum kosningarstörfum, en daginn
áður, menn eru einbeittari á svipinn og
allir virðast keppa að sama marki. Spáð
er um þátttöku og virðast menn á einu
máli um, að gott geti talizt, ef næst yfir
sjötíu prósent.
Það líður að lokum og síðasti sprettur-
inn er harður og horfur góðar. Um mið-
nætti kemur í ljós, að rúmlega áttatíu
prósent félagsmanna í kaupstöðum lands-
ins, þar sem greitt hefur verið atkvæði á
laugardag og sunnudag, hafa mætt á kjör-
stað. Miklu betra en bjartsýnustu menn
höfðu leyft sér að vona.
Úrslitin.
1. marz lauk yfirkjörstjórn talningu og
sendi frá sér eftirfarandi greinargerð til
blaða og útvarps:
Allsherjaratkvæðagreiðslu um upp-
sögn kjarasamninga ríkisstarfsmanna er
nú lokið og voru atkvæði talin 1. marz.
Á kjörskrá voru 3870 félagsbundnir
meðlimir B.S.R.B. og neyttu 3066 at-
kvæðisréttar síns eða 79,3%. Einnig höfðu
atkvæðisrétt ófélagsbundnir ríkisstarfs-
menn, sem voru á kjörskrá 1105 og
greiddu 573 þeirra atkvæði eða 51,9%.
Þannig tóku þátt í atkvæðagreiðslunni
3639 ríkisstarfsmenn af 4975 á kjörskrá
eða alls 73,1%.
Tillaga stjórnar B.S.R.B. um að segja
upp samningum var samþykkt með 3468
atkvæðum eða 95,3% greiddra atkvæða
alls. Andvígir uppsögn voru 128 eða 3,5%.
Auðir seðlar og ógildir voru 43 eða 1,2%.
B.
18 ÁSGARÐUR