Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1965, Page 16
er, og séð um afhendingu þess og ýms
ferðalög í sambandi við það. Nú þá hef
ég og þurft að senda mánaðarlega yfirlit
um reksturskostnað hvers mánaðar til
fjármálaráðuneytisins og samrit til land-
búnaðarráðuneytisins, sem stofnunin
heyrir undir. Alla vélritunarvinnu hefi
ég einnig unnið, sem sagt ég hef ætíð
leyst þessi störf einn af hendi og hvorki
haft aðstoð á skrifstofu né við girðingar-
afhendinguna.“
„Heldurðu ekki að það sé frekar fá-
títt, að litlar eða engar breytingar hafi
verið gerðar á mannahaldi hjá opinberri
stofnun í svo langan tíma eins og raun
er hjá þér?“
„Jú, áreiðanlega og ég mundi segja, að
með starfsafköstum mínum hafi skapast
fordæmi, er ýmsar stofnanir mættu taka
sér til fyrirmyndar, hafa færra fólk, láta
það hafa nóg að starfa og greiða því
hærra kaup.“
„Og í hvaða launaflokki ertu svo Ólaf-
ur?“
„I sextánda," segir Ólafur og brosir.
„Það má skjóta því inn í þetta spjall
okkar, að í september s.l. átti ég 60 ára
starfsafmæli, byrjaði sem „innanbúðar
lærlingur“ hjá danskri selstöðuverzlun í
Hólminum, frá þeim tíma væri margt
hægt að rifja upp, bæði gaman og alvöru,
og ég held sannast sagna, að unga kyn-
slóðin hefði gott af að heyra eitthvað um
vinnubrögðin í þá daga, en það er önnur
saga.“
„Þú lætur ekki standa á þér að mæta
hér á kjörstað, þrátt fyrir allt annríkið?“
„Nei aldeilis ekki, fólk á að standa
saman til að ná fram sínum málum.“
Og Ólafur segir frá ýmsu skemmtilegu
í starfinu og segist vona, að hann eigi
eftir að starfa hjá því opinbera um lang-
an aldur.
Á skrifstofu F. í. S.
í Landsímahúsið.
Á þriðju hæð í Landsímahúsinu er
skrifstofa Félags íslenzkra símamanna til
húsa. Þegar tíðindamaður blaðsins lítur
þar inn sitja tveir menn önnum kafnir
yfir spjöldum og fylgjast nákvæmlega
með því, sem gerist á kjörstað.
Bjami Ólafsson, línumaður verður fyrir
svörum, en hann er í stjórn Félags ís-
lenzkra símamanna.
„Okkar félag er víst eina félagið, sem
stjórnar sínum áróðri í eigin húsakynn-
um. Eins og þið sjáið hef ég hér bunka
af spjöldum fyrir framan mig á skrifborð-
inu, en í hverjum bunka eru nöfn félaga
í hverri deild félagsins. Þetta gengur ekki
nógu vel hjá okkur, en á morgun verður
settur meiri kraftur á þetta og þá verða
deildarformennirnir gerðir ábyrgir fyrir
sínum deildum. Það gerir okkur hægara
um vik að hafa deildarskiptinguna,"
segir Bjarni.
„Hvernig er með félagsáhuga hjá ykk-
ur símafólki?"
„Það er sama sagan og hjá öðrum, dvín-
16 ÁSGARÐUR