Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1965, Síða 23
með einu handtaki gæti náð símasam-
bandi vð næstu flugvelli bæði í Evrópu
og Ameríku. Fengum við að heyra til
flugumferðastjóra báðum megin hafs.
Efst í tuminum er radar flugvallarins
m. a. staðsettur og fengum við að fylgjast
með flugvél á radarnum, sem var á leið
til Vestmannaeyja.
Að lokinni yfirferð um efstu hæðar
turnsins bauð flugmálastjóri til kaffi-
drykkju á einkaskrifstofu sinni, sem er
á fjórðu hæð. Var ýmislegt spjallað yfir
rjúkandi kaffi og rjómapönnukökum, og
urðu menn fróðari um ýmsa þætti flugs-
ins, og m. a. gat flugmálastjóri þess, að
ekki hefði fjölgað að höfðatölu við störf
í flugtuminum síðan 1947 fyrr en á þessu
ári. Hann taldi alla aðstöðu mjöíg til
fyrirmyndar og hefði mikil breyting orðið
á til batnaðar, er flutt var í nýju bygg-
inguna.
Þegar staðið var upp frá kaffinu tjáði
flugmálastjóri mönnum, að nú yrði flogið
til Keflavíkurflugvallar og yrði mönn-
um skipt í tvo hópa, þar eð flugvél flug-
málastjórnarinnar væri ekki nægilega
stór fyrir allan hópinn.
Tíðindamaður blaðsins lenti í þeirri
vélinni, sem flugmálastjóri stýrði. Lagði
flugmálastjóri sig mjög í framkróka við
að skýra hin ýmsu tæki og mæla flug-
vélarinnar fyrir ráðsmönnum, og þóttust
sumir hafa orðið margs fróðari. Flug-
ferðin tók skamma stund og var lent
eftir á að gizka tíu mínútna flug. Skömmu
síðar kom svo vél frá flugskólanum Þyt
með afganginn.
Á Keflavíkurflugvelli voru skoðuð
mjög fullkomin blindlendingartæki eða
nánar tiltekið hluti af þeim, svo kallað
„glite slope“. Tæki þessi eru mjög dýr
og eru þau einu hérlendis sem þama eru.
Á meðan tæki þessi voru skoðuð var ein
flugvél Loftleiða ásamt nokkrum þotum
frá Varnarliðinu að æfa lendingar með
aðstoð þessara tækja. Flugmálastjóri gat
þess, að amerískir aðilar fylgdust með
viðhaldi á tækjum þessum, sem er al-
gjörlega í höndum íslendinga, og höfðu
þeir látið þá skoðun sína í ljós, að hvergi
væri viðhaldið betra en hér.
Að lokinni skoðun tækja þessara var
haldið heimleiðis og flaug þá undirritað-
ur með Þytarvélinni, sem er alveg ný af
nálinni, mjög hraðfleyg og fullkomin.
Lent var á Reykjavíkurflugvelli klukkan
rúmlega sex og voru menn á einu máli
um að þetta boð hafi tekizt með miklum
ágætum og þökkuðu góðan greiða. ■— B.
Frá kaupstöðunum
Eftirfarandi úrslit urðu í atkvæða-
greiðslu um uppsögn samninga í kaup-
stöðunum: Með Móti Auð og
uppsögn uppsögn óg. atkv.
Kópavogur 41 í 0
Isafjörður 39 í 0
Vestmannaeyjar .. 54 0 1
Keflavík 37 4 0
Akranes 30 2 0
Akureyri 64 3 0
Reykjavík 367 24 0
Enn hafa ekki borizt fréttir um úrslit
frá Hafnarfirði eða Siglufirði.
Starfsmannafélag Reykjavíkur hefur
að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu
samþykkt að óska eftir aðild að lögum
um kjarasamninga opinberra samninga.
Var tillaga þar að lútandi samþykkt í fé-
laginu með 221 atkvæði gegn 119.
ÁSGARÐUR 23